Breiðfirðingur - 01.04.1946, Blaðsíða 66
56
BREIÐFIRÐINGUB
víslegustu, að því ógleymdu, að vinna að undirbúningi
nýbýla í sambandi við hlutaðeigandi aðila, til þess að
það komi ekki lengur fyrir, að nokkur æskumaður, sem
vill búa i sveit, þurfi að flýja þaðan vegna skorts á
hentugu jarðnæði.
En hver svo sem verkefnin yrðu, yrði það mest um
vert, að æskan ljái fram sína örvandi hönd. Með því
að gera æskuna að ábyrgum aðila i endurreisnarstarf-
inu, beinum vér áhuga hennar að framtíðarverkefnum
sveítanna.
Til þess að svo megi verða, þurfa allir aðilar að stuðla
að: heimilin, skólarnir, kirkjan og ungmennafélögin.
Hugsjón brúarinnar er að byggja landið.
Megi sú hugsjón falla í umgjörð lijartans í dag og
ljómi hennar heilla þróttinn í hrjóstum ungra og gam-
alla, til samstilltra starfa og baráttu fyrir því, að skapa
hér lífsskilyrði, þar sem æskumenn vorir finni svigrúm
fyrir stórhuga framtíðardrauma sína, og að hér megi
skapast
„gróandi þjóðlif með þverrandi tár,
sem þroskast á Guðsríkis braut.“
Pétur T. Oddsson.
Staka
Brátt er hauðnr hélugrátt
hjúpað vetrarskugga,
og draugalega döpur nótt
drepur fingri’ á glugga.
N i g e r.