Breiðfirðingur - 01.04.1998, Síða 25
SKÁLI EIRÍKS RAUÐA
23
snúna vígamanns, sem síðar nam Grænland. Hins vegar kemur
uppdráttur Þorsteins Erlingssonar af Eiríksstiiðum ekki heim
og saman við þær hugmyndir sem við höfum nú á dögum um
húsakost frumbýlinga þessa lands. Eldstæðið er allt of breitt
og setin of mjó. Auk þess vildi Þorsteinn hafa hlóðir í skálan-
um, en þess háttar eldstæði voru óþekkt þegar Eiríkur rauði
var uppi.
Fomleifafræðin fæst ekki við persónusögu og byggir skil-
yrðislaust á áþreifanlegum sönnunum. Frá því má ekki hvika.
En þó að íslensk fomleifafræði hafi verið nefnd „hjálenda hins
þaulræktaða höfuðbóls íslenskra fræða“, svo að enn sé vitnað í
Kristján Eldjám, kynnu í þessu efni ilmjurtir höfuðbólsins að
fölna andspænis kjamgrasi hjálendunnar. Kæmi í ljós að bær-
inn væri reistur miklu seinna en Eiríkur rauði átti að hafa rutt
land í Haukadal eða að búið hefði verið í honum löngu eftir að
Eiríkur hraktist úr dalnum, væri þá ekki fallinn minnisvarðinn
um landkönnuðinn Leif heppna Eiríksson? Hvað hefði þá
orðið um hinar stórhuga framkvæmdir, sem fyrirhugaðar eru,
um gerð göngustíga og útsýnispalla við rústirnar og endurgerð
skálans um 100 m vestan við þær? Er ekki örgrannt um að
einhverjum þætti sem við Guðmundur Ólafsson lékum okkur
eins og tröll að menningarsögulegu fjöreggi Dalabyggðar.
Eiríksstaðanefnd var sett á stofn til að halda á lofti minn-
ingu Leifs Eiríkssonar á þessum tímamótum, reisa minnis-
merki og standa að endurgerð bæjar Eiríks rauða í Haukadal.
Formaður er Friðjón Þórðarson, fyrrverandi ráðherra, en auk
hans eiga sæti í nefndinni Jóhann Sæmundsson, bóndi í Asi í
Laxárdal, séra Óskar Ingi Ingason, Sigurður Rúnar Friðjóns-
son, oddviti í Búðardal, og sveitarstjóri Dalabyggðar, sem nú
er Stefán Jónsson. Nefndin hafði fallist á tillögu Þjóðminja-
safnsins um að rannsaka Eiríksstaði á nýjan leik til þess að
tilgátubærinn mætti verða sem nákvæmust endurgerð hins
forna skála. Þannig þjónaði hann ekki aðeins því hlutverki að
laða að ferðamenn í Dalina, heldur og vísindalegum tilgangi,
en margt má læra af uppbyggingu fomra bústaða sé fyrir-
myndinni fylgt í hörgul. Eiríksstaðanefndin fylgdist enda með