Breiðfirðingur - 01.04.1998, Page 56
54
BREIÐFIRÐINGUR
var svo fylgst þaðan á áfangastað með Kirkjuhvammsfólki,
enda frændfólk og mikill vinskapur á milli þess og fólksins
heima.
Mér eru sumar þessar ferðir minnisstæðar, bæði að sullast í
Vaðlinum í hlákumyrkri og einnig man ég heimferðina þar sem
við gengum á hjamsköflum í glaðatunglskini frá fullu tungli.
Man ég sérlega vel skaflinn fram með Suðurfossánni sem létti
okkur gönguna, en neðan hans var sjórinn sem fallið hafði í
ána og brotið bakka á skaflinn, en tunglið merlaði í sjónum.
Þegar komið var í Félagshúsið var þar fyrst anddyri sem
náði þvert yfir húsið. Þar fóru menn úr utanyfirfötum, en þessi
litli gangur átti þó eftir að þjóna öðru hlutverki áður en lyki
skemmtuninni
Síðan var gengið í „salinn“ ef hægt er að nefna þess litlu
vistarveru svo virðulegu nafni. En þar gaf svo sannarlega á að
líta. Á miðju gólfi stóð jólatréð í öllu sínu dýrðlega skrúði og
gæti sómt sér vel enn þann dag í dag á hverri jólasamkomu.
Áður hef ég lýst því hvemig það leit út, en ekki er hægt að
lýsa öllu skrautinu sem þarna ljómaði í birtunni frá 40 til 50
kertum sem á jólatrénu loguðu ásamt ljósinu frá stóra hengi-
lampanum sem hékk aðeins til hliðar við miðju hússins.
Mér er nær að halda að minnstu bömin, sem aldrei höfðu
komið þarna áður, hafi oftari verið agndofa og man ég eftir því
að sjá þau standandi á gólfinu með fingur upp í sér og stara á
alla dýrðina. Húsið var einnig skreytt með ýmsu pappírsskrauti
sem bæði var hengt á veggi og einnig hom úr homi.
Fyrst settist fólk í sæti meðfram veggjum og einhver full-
orðinn setti samkomuna og hélt þar oft einhverskonar hug-
vekju, eða sagði jólasögu. Því næst var farið að ganga í kring
urn tréð og héldust allir í hendur. Þar voru sungnir jólasálmar
og ýmis jólakvæði. Mér er minnisstætt í þrengslunum þama
að einstaka smágrísinn varð dáleiddur af þessu öllu saman og
færðist smámsaman innar og innar úr hringnum og varð alltaf
við og við að kippa honum inn í röðina.
Fyrir jól hafði einhverjum sem fór í jólaferðina á Patreks-
fjörð verið falið að útvega sælgætið sem notað var þama.