Breiðfirðingur - 01.04.1998, Page 76
74
BREIÐFIRÐINGUR
38
Nafnið bjóða þjóð skal þá
þrykkt í óðar fari,
marar glóð69 sem girnist fá 69 Glóð marar (sjávar) = gull
garpa fróður skari.
39
Ljóða strengi stansa finn
stillt sem mengið70 gleður, 70 Mengi = fóik.
ég veit enginn óðinn minn
ítur drengur kveður.
Það skal tekið fram að sumar skýringarnar kunna að orka tví-
mælis, eða vera ónákvæmar.
Um höfundinn
Ögmundur Jóhannesson fæddist í Ólafsvík 12. apríl 1841, dó
á Hellissandi 29. mars 1908. Ögmundur ólst upp í Staðarsveit,
en átti lengst af heima í Breiðuvíkurhreppi, bjó í Einarslóni,
Görðum í Beruvík og á Öndverðarnesi, á Hellissandi frá 1897.
(Sjá Breiðfirðing 1994: Ævi þurrabúðarmanns).
Formannavísur þessar eru til í þrem uppskriftum, ein er í
eigu undirritaðs og tvær í handritadeild Landsbókasafnsins,
Lbs. 2640 8vo, og Lbs. 3922 8vo. Engin þeirra er frá höfund-
arins hendi og er því viðbúið að þær séu ekki nákvæmar.
Þegar afi minn Ögmundur Jóhannesson samdi formanna-
vísur þessar var hann orðinn mjög sjóndapur og hættur að geta
skrifað. Uppskrift þessa átti faðir minn og virðist hún vera
réttust, en í hana vantaði vísu nr. 15, og nokkur orðamunur er
á þessum þrem uppskriftum.
Kvæðasafn sitt skildi Ögmundur eftir sig og er það nú
komið til handritadeildar Þjóðarbókhlöðunnar. í því er eftirfar-
andi vísa gerð af Jóni nokkrum Guðmundssyni, en honum
hafði Ögmundur lánað handritið: