Breiðfirðingur - 01.04.1998, Page 85
FERÐ UNDAN JÖKLI
83
Lending í Keflavík á Hjallasandi, innsta lending.
baka með landi fram og hugsum okkur að taka Hrísaklett. Þar
er góð lending í norðan en hvorugur hafði lent þar fyrri. Gekk
það sæmilega. Kom bóndinn ofan að sjónum og hjálpaði okk-
ur með dót okkar og síðan að setja bátinn. Sagði hann okkur
að hann byggist við að hann væri að gera norðanstorm sem
stæði fram yfir páska, bauð okkur síðan heim. Vorum við þar
til næsta laugardags í bestu aðhlynningu. Minnir mig að það
væri þar ekki nema hjónin og faðir bóndans, gamall maður
sem hét Jón, en bóndinn hét Sigurður.
Á páskadaginn bauð hann mér að koma og skoða kindumar
sínar. Sýndi hann mér þar gemling sem var dálítið einkenni-
legur, það var hvorki hrútur né gimbur, en þó líklega frekar að
hann teldist hrútur, því hann hafði sin, en hún lá uppundir
rófu, svo hann pissaði undan rófunni, en hann hafði hvorki
pung né eistu. Sagðist bóndinn hafa sett lambið á að gamni
sínu, sagðist gera sér vonir um að þetta yrði væn kind. Þama í
húsunum kom hann með pela upp úr vasa sínum og gaf mér
bragð, en ekki varð ég var við það meir.
Það fór eins og hann sagði, það kom norðanstormur með
frosti og snjó sem stóð alla vikuna, en á mánudaginn annan