Breiðfirðingur - 01.04.1998, Page 138
Theódór Daníelsson
Minningar frá Breiðafirði
Ég er fæddur í Hvallátrum á Breiðafirði 2. febrúar 1909. For-
eldrar mínir voru María Guðmundsdóttir frá Skáleyjum, dóttir
hjónanna þar, Guðmundar Jóhannessonar og Steinunnar Svein-
bjömsdóttur, og Daníel Jónsson, sonur Jóns Þórðarsonar,
bónda í Skógum í Þorskafirði, og konu hans Kristínar Daníels-
dóttur frá Hlíð í sömu sveit. Þegar ég fæddist vora foreldrar
mínir vinnuhjú í Hvalllátrum hjá Olafi bónda Bergsveinssyni
og Ólínu Jónsdóttur, systur Daníels.
Um frumbernsku mína veit ég ekkert, en fyrsta minningin
er tengd fráfalli móður minnar, sem dó af bamsförum, þegar
ég var fjögurra ára. Ég minnist þess, að ég var leiddur að
rúminu hennar og man hvemig hún leit út og hverju hún hvísl-
aði að mér veikum rómi, og af því álykta ég, að hún hafi vitað
að hverju dró. Ég man ekki orðrétt hvað hún sagði, en veit það
hefur verið fyrirbæn og áminning um að vera ávallt góður
drengur. Annað man ég ekki frá móður minni að segja, en mér
hefur verið sagt, að hún hafi verið bókhneigð og mjög vel
gefin. Og Samúel Eggertsson, sem um eitt skeið fékkst við
bamakennslu, lét svo urn mælt, að hún væri meðal greindustu
nemenda hans.
Næstu minningar mínar eru svo um föður minn, sem stóð nú
einn uppi með bamahópinn sinn, fimm syni, og var ég yngstur
þeirra, og eina dóttur, sem var yngsta bamið. Eldri systir mín
hafði andast, áður en ég fæddist. Ég minnist þess, hversu
hændur ég var að honum, enda var hann mér bæði sem faðir
og móðir þau tvö ár, sem hann átti ólifuð, en hann drukknaði
ásamt elsta bróður mínum og einum syni þeirra hjónanna í