Breiðfirðingur - 01.04.1998, Síða 153
MINNINGAR FRÁ BREIÐAFIRÐI
151
boðstólum nema á hátíðum og tyllidögum, en þó oftast er
mikið hey var hirt í hlöðu, og svo fengu þær þeir menn, er
unnu að einhverjum óþrifalegum verkum eða sérlega erfiðum.
Man ég vel, að okkur unglingunum þótti tilvinnandi að lenda í
einhverju slíku, þar sem slíkrar umbunar var von. Töðugjöld
voru alltaf haldin einhvern sunnudag seinnihluta heyanna með
veglegri veislu.
Jólahald heima fór fram með hefðbundnum hætti. Það var
kallað, að orðið væri heilagt klukkan sex eftir miðdegi. Klædd-
ust þá allir sínum bestu fötum svo fljótt sem unnt var. Urðu
þeir helst seint fyrir, er sinntu skepnuhirðingu, einkum þeir er
önnuðust fjósaverkin, það er að segja fjósamaður og mjalta-
konur. Þegar allir voru komnir inn og höfðu snyrt sig, var les-
inn húslestur og sungnir jólasálmar. Að því loknu settust allir
að kaffiborði, sem var hlaðið alls konar kökurn og súkkulaði.
Er því lauk var sú athöfn eftir, sem við krakkarnir hlökkuðum
mest til, en það var að ganga kring um jólatréð, en það feng-
um við aldrei að sjá fyrr en þá. Þess var vandlega gætt, að við
værum hvergi nærri, þegar jólatréð var skreytt. Jólatréð heima
var heimasmíðaður stofn, og var að mig minnir áttstrendur. I
stofninn var svo stungið tréálmum eða greinum. Voru þær
neðstu lengstar, en styttust eftir því sem ofar dró. Stofninn og
greinamar var svo klædd með sortulyngi, svo að hvergi sá í
bert tré. Varð að afla lyngsins frá landi, því að ekki spratt það í
eyjunum. Efst á trénu var svo komið fyrir toppi úr messing
eða einhverjum öðrum málmi, og var hann upprunninn er-
lendis frá. Jólatréð var svo skreytt með heimatilbúnum blóm-
um, gerðum úr pappír, og körfum af ýmsum gerðum. Körfum-
ar voru fylltar af einhverju góðgæti, og munu þær hafa verið
jafnmargar heimilisfólkinu, því að hver og einn fékk körfu,
þegar kertin voru útbrunnin, en kerti logaði á hverri grein
trésins. Gengið var í kringum tréð, þannig að allir héldust í
hendur og sungu, meðan kertin brunnu. Mig minnir, að sein-
ustu ár mín heima hafi ekki verið kveikt á jólatrénu, fyrr en á
jóladagskvöld, en það mun hafa hentað betur tímans vegna.
Eg minnist þess, að aðrar skemmtanir voru og viðhafðar á