Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 28
Sumarnámskeið 18. maí 2018KYNNINGARBLAÐ
Komdu að sigla!
Siglingafélag Reykjavíkur – Brokey er íþróttafélag sem er öllum opið sem hafa áhuga á siglingum, jafnt
byrjendum sem lengra komnum.
Á hverju sumri heldur Brokey sigl-
inganámskeið í Nauthólsvík. Þar æfir
öflugur hópur ungmenna kænusiglingar.
Á æfingum er lögð áhersla á að öllum
þátttakendum líði vel og að dagskrá
námskeiðsins sé fjölbreytt, þroskandi
og skemmtileg. Mikil áhersla er á öryggi
þátttakenda og starfsfólks. Siglingar
eru háðar duttlungum veðurguðanna
og því getur dagskráin tekið breyting-
um. Samt verður farið út á sjó hvernig
sem viðrar. Farið er yfir helstu atriði
siglinga, öryggisatriði og almenna sjó-
mennsku. Þessi námskeið henta bæði
byrjendum og lengra komnum. Kennt er
samkvæmt námskrá Siglingasambands
Íslands og miðast við að nemendur geti
siglt kænu einir og með öðrum undir
eftirliti að námskeiði loknu. Kennt er á
eins og tveggja manna kænur.
Námskeiðin eru ætluð 9 ára og eldri.
Áhugasamir geta prófað einn eða tvo
æfingadaga ókeypis.
Byrjendur geta skráð sig í sérstaka
byrjendamóttöku sem verður 11. júní,
18. júní, 25. júní, 9. júlí og 16 júlí. Til-
gangurinn með henni er að byrjendur
fái nánari leiðsögn fyrstu vikuna. Athug-
ið að byrjendur greiða sama gjald og
aðrir.
Þegar byrjendaviku er lokið byrja allir
í B-hópi sem æfir mánudaga til föstu-
daga frá kl. 12 til 16.
Markmiðið hjá B-hópnum er að
skemmta sér við siglingar og verða fær-
ari í siglingum; þeir sem hafa metnað
til þess geta færast síðan upp í A-hóp
og keppt að því að komast í keppnislið
félagsins. A-hópur æfir mánudaga til
föstudaga frá kl. 16 til 19.
Nánari upplýsingar og skráning eru
inni á vefsvæðinu: http://brokey.is/sigl-
inganamskeid/aefingahopur/.
SigliNgANÁMSKeið Í NAuThólSvÍK FyRiR 9 ÁRA og eldRi: