Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 39
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Börnin njóta þess að vera með hestunum og mynda strax tengsl við þá. Mörg börn sem
hafa verið hjá okkur í gegnum árin
muna vel eftir sínum uppáhaldshesti
í Faxabóli. Í samskiptum sínum við
hestana læra börnin að sýna ábyrgð
og veita dýrinu umhyggju, enda er
þeim kennt að umgangast hestana af
væntumþykju og virðingu,“ segir Þóra
Þrastardóttir, stofnandi og eigandi
Reiðskólans Faxabóls í Víðidal.
Faxaból hefur starfað frá árinu
2000 en Þóra hefur stundað hesta-
mennsku frá barnæsku og tekið
virkan þátt í heimi hestamennskunnar
ásamt fjölskyldu sinni.
Núna er hafin skráning á sumar-
námskeiðin hjá Faxabóli en fyrsta
námskeiðið hefst 11. júní og standa
þau fram yfir miðjan ágúst. Hvert
námskeið stendur yfir í tvær vikur,
frá mánudegi til föstudags. Kennt er
frá kl. 9-12 eða 13-16. Reiðskólinn sér
um að útvega allan öryggisbúnað,
reiðtygi og góða hesta. Hver nem-
andi fær að prófa sem flesta hesta
meðan á námskeiðinu stendur til að
geta öðlast meira öryggi og þekkingu
í hestamennskunni. Kennslan byggist
á verklegum æfingum og reiðtúrum
ásamt bóklegri kennslu. Nemendur
eru beðnir um taka með sér létt nesti
og klæða sig eftir veðri. Nemendum
er skipt í hópa eftir getu og þekkingu
og fá allir kennslu við sitt hæfi. Nám-
skeiðin eru ætluð börnum á grunn-
skólaaldri.
„Við leggjum áherslu á að í Faxa-
bóli á að vera gaman og þar á öllum
að líða vel. Námskeiðin einkennast
því af gleði og krakkarnir eru duglegir
og starfsamir. Við leggjum áherslu á
að kynna nemendum okkar hesta-
mennskuna þann tíma sem þau eru
hjá okkur, kenna þeim grunntökin í
reiðmennsku með því að flétta leik inn
í þær æfingar sem þjálfa þau til að
verða sjálfstæð í stjórnun hestsins.
Sem fyrr segir leggjum við mikið upp
úr vellíðan hestsins og að börnin sýni
dýrunum virðingu,“ segir Þóra.
Hún segir jafnframt að mörg börn
taki ástfóstri við hestamennskuna
eftir að hafa kynnst henni í gegnum
sitt fyrsta námskeið hjá Faxabóli og
mörg börn sækja þessi námskeið
ár eftir ár, sum fara að sækja líka í
námskeið yfir vetrartímann og taka
að gera hestamennskuna að lífsstíl:
„Við í Faxabóli erum stolt af því að
geta sagt að margur afburðaknapinn
hefur hafið sína hestamennsku hjá
okkur og meira að segja nokkur þeirra
útskrifast frá Hólaskóla og starfa sem
tamningamenn og reiðkennarar,“
segir Þóra.
Ítarlegar upplýsingar er að finna
um námskeiðin á vefsíðunni faxabol.
is og þar er jafnframt hægt að ganga
frá skráningu.
SuMaRNáMSKeið Í Faxabóli:
Þar sem börnin búa til
skemmtilegar minningar