Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 41

Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 41
Sumarnámskeið 18. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Sundfélag Hafnarfjarðar býður í sumar upp á sundnámskeið fyrir yngri börn og námskeið í sundknattleik fyrir eldri krakka. Sundnámskeiðin eru ætluð börnum á aldrinum 4 til 8 ára og námskeið í sundknattleik eru fyrir börn 8 ára og eldri. Við sundkennsluna er fyrst og fremst lögð áhersla á öryggi í vatninu, grunntækni í skriðsundi og baksundi, og leiki. Ef vel gengur er síðan hægt að kynna aðrar sundaðferðir fyrir nemendunum. Sundnámskeiðin eru í þremur aldursflokkum: 4–5 ára, 5–6 ára og 6–8 ára. Verða þau haldin í Ásvalla- laug á tímabilinu 11. júní til 3. ágúst í sumar eða sem hér segir: 11. – 21. júní, 26. júní – 6. júlí, 9. – 20. júlí og 23. júlí – 3. ágúst. Í sumar býður Sundfélag Hafnar- fjarðar í fyrsta upp á æfingar í sund- knattleik fyrir börn. Verða námskeiðin fyrir aldursflokkana 8–10 ára og 10 ára og eldri. Þessi námskeið verða haldin í Ásvallalaug á tímabilinu 23. júlí til 3. ágúst. Námskeiðin verða undir stjórn þjálfara Sundfélags Hafnarfjarðar og leiðbeinenda úr afrekshópum félags- ins. Ítarlegar upplýsingar um nám- skeiðin, tímasetningar og fleira, er að finna á heimasíðu Sundfélags Hafnarfjarðar, www.sh.is . Þar er einnig hægt að skrá barn á námskeið og ganga frá greiðslu. Allar upplýsingar eru einnig veitt- ar á skrifstofu SH, að Seljavallalaug í Hafnarfirði, í síma 555 6830 eða í tölvupósti á netfanginu skrifstofa@sh.is Sundnámskeið og námskeið í sundknattleik Námskeið sem veita börnum forskot til framtíðar Skema er deild innan Opna háskólans í HR sem býður upp á forritunarkennslu fyrir börn. Skema býður upp á fjölbreytt nám- skeið sem gera börn hæfari til að fóta sig í heimi tölvutækninnar og efla þroska þeirra á margvíslegan annan hátt. Kennsluaðferðir Skema hafa verið þróaðar út frá rannsókn- um á sviði sálfræði, kennslufræði og tölvunarfræði. Undirstöðuatriði kennslunnar eru jákvæðni, myndræn framsetning og notkun á þrívíðum forritunarumhverfum til að auðvelda börnum að stíga fyrstu skrefin inn í heim tækninnar. Námskeiðin eru ætluð börnum og unglingum á aldrinum 4–16 ára. Þau efla allt í senn rökhugsun, sköp- unarhæfni, félagsfærni, samvinnu- færni, samskipti og sjálfsmynd, auk þess sem börnin eflast mjög í því að leysa þrautir. Meðal námskeiða í boði í sumar eru C# forritun sem kemur mjög við sögu við þróun tölvuleikja, grunnnám- skeið í forritun, Kano tölvan og python forritun en þar setja nemendur tölvuna sem þeir nota saman sjálfir, Minecraft-námskeið þar sem nem- endur laga Minecraft-leikinn að eigin ímyndunarafli, Kodu-forritun þar sem krakkar kynnast hönnun tölvuleikja og leysa einföld stærðfræðiverk- efni með tölvuleikjagerð, Maya þar sem áhersla er á þrívíddarhönnun og hreyfimyndir, og ýmis fleiri skyld námskeið. Námskeiðin hjá Skema efla börn í leik og starfi og veita þeim forskot til framtíðar í heimi sem verður sífellt tæknivæddari. Ítarlegar upplýsingar, þar á með- al stundaskrá, er að finna á www. skema.is. Þar er jafnframt hægt að skrá sig inn á námskeiðin. SKEMa HjÁ HÁSKólaNUM Í REyKjaVÍK:

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.