Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Page 63
sport 6318. maí 2018
Mun lítil leikæfing lykilmanna hafa áhrif á HM?
Aron Einar Gunnarsson
8 leikir með félagsliði árið 2018
Fyrirliði þjóðarinnar hefur heldur betur gengið í gegn-
um mikið með Cardiff á þessu ári, Aron hefur í tvígang
farið í aðgerð. Um síðustu jól fór Aron í aðgerð á ökkla
og þegar hann virtist vera að nálgast sitt besta form
meiddist hann á hné. Aron er nú í kappi við tímann en
endurhæfing hans fer fram í Katar.
Gylfi Þór Sigurðsson
7 leikir með félagsliði árið 2018
Besti leikmaður Íslands spilaði síðast
fótboltaleik 10. mars á þessu ári. Þá meiddist
Gylfi í leik með Everton, hann hefur spilað sjö
leiki á þessu ári. Gylfi er byrjaður að sparka í
boltann en mikilvægt er fyrir hann að spila
æfingaleiki Íslands í byrjun júní. Þar þarf hann
að komast í leikæfingu fyrir átökin í Rússlandi.
Kári Árnason
6 leikir með félagsliði árið 2018
Miðvörðurinn hefur sjálfur talað
um að það hafi í raun verið
jákvætt að hann væri ekki að spila
alla leiki. Það er hins vegar ljóst að
Kári hefur verið í betri leikæfingu,
hann hefur spilað sex leiki með
Aberdeen á þessu ári, í tveimur
leikjum hefur hann spilað allar
90 mínútur leiksins. Kári mun svo
koma heim til Íslands eftir HM.
Hörður
Björgvin
Magnússon
14 leikir með
félagsliði árið 2018
Hefur komið við sögu
í mörgum leikjum en
oftar en ekki voru
mínúturnar fáar. Frá því
um miðjan mars hefur
Hörður aðeins leikið 45
mínútur með Bristol,
þessi öflugi vinstri
bakvörður meiddist og
missti af endaspretti
liðsins í næstefstu deild
Englands. Hörður lék um
1.500 mínútur á þessu
tímabili sem er ekkert
sérstaklega mikið.