Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Side 65
sakamál 6518. maí 2018
væri úr unga manninum. Á líki
Hlöðvers fannst forhlað, innan úr
haglabyssuskoti, sem rannsókn
sýndi að passaði við Remington-
byssuna. Þegar leyfi fékkst fyrir að
skoða símhringingar sást að í níu
skipti hafði verið hringt úr síma
unga mannsins til Hlöðvers þessa
nótt.
Játaði og sagði frá misnotkun
Að fengnum þessum gögnum var
ungi maðurinn aftur handtekinn í
febrúar og þá úrskurðaður í gæslu-
varðhald. Líkt og áður þrætti hann
fyrir verknaðinn en þegar hann
fékk að sjá gögnin játaði hann að-
ild að málinu.
Þá sagðist hann hafa verið
fórnarlamb Hlöðvers frá þrettán
til fimmtán ára aldurs. Þetta hafi
legið eins og mara á honum all-
ar götur síðan og í desember hafi
hann verið mjög langt niðri. Í
nokkur skipti hafi hann ætlað að
svipta sig lífi en líka hafi hann vilj-
að mæta Hlöðveri og hræða hann.
Þessa nótt hafi hann fengið tauga-
áfall og ákveðið að láta til skarar
skríða. Hann sagði að enginn úr
fjölskyldunni hefði vitað af mis-
notkuninni. En jafnframt að það
hafi aldrei verið ætlun hans að
drepa Hlöðver og ef einhver ann-
ar hefði verið ákærður fyrir dráp-
ið hefði hann stigið fram og játað.
Daginn eftir hafi hann ekki einu
sinni vitað að Hlöðver væri lát-
inn og því hafi hann hringt í síma
Hlöðvers úr sjoppu. Gögn stað-
festu að sú hringing átti sér stað.
Tældu drengi í tuttugu ár
Maðurinn var ákærður fyrir
manndrápið á Hlöðveri og í júní
var réttað yfir honum í Héraðs-
dómi Reykjaness. Þann 4. júní var
atvikið sviðsett við Krýsuvíkuraf-
leggjarann að viðstöddum dómur-
um, lögmönnum og ákærða. Í rétt-
arhöldunum stigu einnig fram tvö
vitni sem sögðust hafa orðið vitni
að misnotkun Hlöðvers á hon-
um. Það hefði átt sér stað í Krýsu-
víkurhrauni, á heimili Hlöðvers
við Álfaskeið 4 og við Hafnar-
fjarðarhöfn þar sem hann starfaði
sem vaktmaður. Þeir tveir menn
sem báru vitni sögðust báðir hafa
verið misnotaðir af Hlöðveri og
Árna og höfðu haldið því leyndu
líkt og ungi maðurinn. Einnig vissu
þeir um fleiri sem höfðu orðið fyrir
barðinu á bræðrunum.
Lengi hafði verið vitað að
mennirnir væru að eiga við unga
drengi í Hafnarfirði. Foreldrar
vöruðu börn sín við þeim og lög-
reglan var á varðbergi og bægði
ungum drengjum frá höfninni.
Engin kæra hafði birst fyrr en árið
1992 þegar móðir andlega fatlaðs
drengs tók af skarið. Í frétt DV frá
13. nóvember það ár segir:
„Ég veit að þessir bræður eru
búnir að stunda þetta í fjölda-
mörg ár. Hversu margir drengir
hafa orðið fyrir barðinu á þeim
veit ég ekki en ég vil vara foreldra
við þeim. Svo virðist sem bræð-
urnir hafi stundað þá iðju að
lokka drengi bæði um borð í skip
í Hafnarfjarðarhöfn og á heimili
sitt í gamla bænum í Hafnarfirði.
Þar hafa þeir sýnt ungum drengj-
um klámmyndbönd, boðið upp á
sælgæti, áfengi og tóbak og borgað
fyrir samræði við þá.“
Manndráp framið í geðshrær-
ingu
Eftir þetta virtist sem bræðurnir
hafi hætt iðju sinni en margir voru
sárir eftir þá, þar á meðal ungi
maðurinn sem sagðist hafa feng-
ið sting í magann í hvert sinn sem
hann sá Hlöðver á höfninni.
Þann 26. júní var hann dæmd-
ur til tíu ára fangelsisvistar, en
einn dómarinn skilaði sérákvæði
og vildi tólf ára refsivist. Töldu þeir
ólíklegt að maðurinn hafi ætlað
sér að myrða Hlöðver en hann hafi
engu að síður mátt vita að svona
gæti farið ef hann skyti í átt að hon-
um með haglabyssu á nokkurra
metra færi. Misnotkunin sem ungi
maðurinn varð fyrir réttlætti ekki
gjörðir hans en réðu engu að síð-
ur miklu um hugarástand hans.
Var verknaðurinn talinn hafa ver-
ið framinn í geðshræringu og því
ekki ítrustu refsiheimildum beitt.
Árni lést þann 27. desember árið
1997. n
„Þar hafa
þeir sýnt
ungum drengjum
klámmyndbönd,
boðið upp á sæl-
gæti, áfengi og
tóbak og borgað
fyrir samræði
við þá.
Álfaskeið 4, Pressan 19. nóvember 1992.
Sígarettustubbur á mælaborði.
Forhald úr halgaskoti.
Bíldshöfða 12 / S. 587 6688 / fanntofell.is
SÉRHÆFUM OKKUR Í FRAMLEIÐSLU
Á FORMBEIGÐUM BORÐPLÖTUM