Dagblaðið Vísir - DV - 18.05.2018, Blaðsíða 73
18. maí 2018 fréttir - eyjan 73
S
víar ganga að kjör-
borðinu í haust og kjósa
til þings. Kosningabarátt-
an er þegar hafin þó ekki
sé það af fullum krafti. Segja má
að kúvending hafi átt sér stað að
þessu sinni því útlendingamál-
in verða rædd í kosningabarátt-
unni en það hafa flestir flokkanna
ekki viljað gera fram að þessu.
Svíþjóðardemókratarnir hafa
sett útlendingamálin á oddinn á
undanförnum árum en flokkurinn
er mjög gagnrýninn á stefnu Svía
í útlendingamálum og vill draga
mjög úr straumi flóttamanna og
innflytjenda til landsins. Í að-
draganda síðustu þingkosninga
lýstu allir hinir stjórnmálaflokk-
arnir því yfir að þeir myndu ekki
starfa með Svíþjóðardemókrötun-
um að kosningum loknum. Þannig
var flokkur sem fékk tæplega 13
prósent atkvæða útilokaður frá öll-
um áhrifum á sænska þinginu, um
þetta gátu hinir flokkarnir samein-
ast.
Alls 163.000 hælisleitendur
komu til Svíþjóðar 2015. Þá var
landamærunum lokað þar sem
Svíum fannst sem þeir væru að
drukkna í flóttamannastraumn-
um og réðu ekki við að taka við
svona miklum fjölda. Í kjölfarið
hafa sænsk stjórnvöld lagt áherslu
á samstöðu Evrópuríkja í mála-
flokknum.
Yfirborð sænskra stjórnmála er
að jafnaði ansi pent og útlendinga-
málin og það sem þeim tengist
hefur ekki verið til mikillar um-
ræðu. En nú hefur málaflokkurinn
brotist upp á yfirborðið, ef svo má
segja, og verður væntanlega eitt
heitasta kosningamálið. Hing-
að til hafa sænskir stjórnmála-
menn ekki rætt áhrif innflytjenda
á sænskt samfélag eða hvernig að-
lögun þeirra að sænsku samfélagi
hefur tekist eða hvernig hún á að
fara fram.
Nýlega mættust leiðtogar
stjórnmálaflokkanna í umræðum
í Sænska ríkissjónvarpinu (SVT).
Í umræðunum spurði Ulf Kristers-
son, formaður Moderaterne, sem
er frjálslyndur íhaldsflokkur, Stef-
an Löfven, forsætisráðherra og
formann jafnaðarmanna, hvort
ekki væri rétt að rannsaka þjóðerni
meintra gerenda í nauðgunarmál-
um í Svíþjóð en þeim hefur fjölgað
mikið á undanförnum misserum.
Löfven var ekki alveg á þeim bux-
unum en útsendingu þáttarins var
varla lokið þegar hann hafði skipt
um skoðun og sagði að það gæti
verið góð hugmynd að rannsaka
hvort tengsl séu á milli mikillar
fjölgunar innflytjenda og fjölgun-
ar nauðgunarmála. Í samtali við
Expressen sagði Löfven að hann
myndi að minnsta kosti ekki koma
í veg fyrir að forvarnarráðið Brå
myndi rannsaka þetta.
Ekki liðu heldur margar klukku-
stundir frá því að Löfven sagði
þetta þar til Brå skipti einnig um
skoðun og sagði að þar á bæ væri
nú ætlunin að kortleggja hvaðan
meintir gerendur í nauðgunar-
málum koma.
Algjör kúvending
Hingað til hafa bæði Brå og lang-
flestir stjórnmálamenn vísað í
niðurstöður rannsóknar frá 2005
og staðið fast á að það væri ekki
þjóðerni fólks sem væri vert að
skoða heldur margir aðrir þættir.
Aftonbladet fjallaði nýlega um
nauðgunarmál á árunum 2012–
2017 þar sem gerendur höfðu
náðst. Alls 112 dómar voru teknir
til umfjöllunar og var niðurstaða
blaðsins að 82 af þeim sem höfðu
hlotið dóma væru fæddir utan Sví-
þjóðar. Í kjölfar þessarar umfjöll-
unar hefur þrýstingur á frekari
rannsóknir á málaflokknum farið
vaxandi.
Stina Holmberg, rannsóknar-
stjóri hjá Brå, sagði í samtali við
SVT að þar á bæ væri verið að
íhuga hvort rannsaka eigi hlutfall
útlendinga í heildartölunum og
hvort hlutfall þeirra hafi aukist eða
dregist saman frá 2005.
Innflytjendamál í heild voru
einnig til umræðu í fyrrgreind-
um umræðuþætti. Dagens Nyhet-
er sagði eftir umræðurnar að þær
hafi að miklu leyti snúist um inn-
flytjendamál í stað atvinnumála,
velferðarmála, afbrota og refs-
inga. Það kom einnig skýrt fram í
umræðunum að bæði Löfven og
Kristersson, sem stefna báðir á
forsætisráðherrastólinn að kosn-
ingum loknum, munu eiga erfitt
með að fá stuðning í baklöndum
sínum við hertar reglur.
Áður en umræðurnar fóru fram
kynntu Svíþjóðardemókratarn-
ir hugmyndir sínar um stefnuna
í innflytjendamálum. Þeir lögðu
þar áherslu á að tekið yrði á móti
færri flóttamönnum og að fleiri
móttökumiðstöðvar verði settar á
laggirnar. Þá verði þeim vísað úr
landi sem fá höfnun við hælisum-
sóknum.
Svíþjóðardemókratarnir þóttu
standa sig best
Að umræðunum loknum kann-
aði SVT hug áhorfenda um hver
leiðtoganna hafi staðið sig best.
Jimmie Åkesson, leiðtogi Sví-
þjóðardemókrata, var þar efstur á
blaði. 30 prósent aðspurðra sögðu
að hann hefði staðið sig best þegar
rætt var um „lög og reglur“ og
„innflytjendamál“. Þegar fólk var
spurt af hverju því þótti hann hafa
staðið sig best var svarið að hann
„hefði sagt sannleikann“.
Kristersson þótti hafa staðið sig
best í umræðum um „atvinnu og
velferð“ en Stefan Löfven, sitjandi
forsætisráðherra, þótti hafa staðið
sig verst í mörgum málaflokkum
að mati áhorfenda.
Mats Knutson, stjórnmálaskýr-
andi SVT, segir að hugsanlega
megi skýra góða útkomu Åkesson
með að Svíþjóðardemókratarn-
ir séu í einstakri stöðu í sænsk-
um stjórnmálum. Aðrir flokkar
hafi ekki viljað starfa með þeim og
því hafi flokkurinn aldrei þurft að
fara málamiðlunarleið og geti því
gagnrýnt hina flokkana án þess að
þeir geti kallað hann til ábyrgðar.
Hann vill þó heldur ekki útiloka
að Åkesson hafi einfaldlega ver-
ið á heimavelli í umræðunni um
útlendingamálin sem hafi verið
helsta mál Svíþjóðardemókrata.
Svíþjóð er síðasta vígi jafn-
aðarmanna á Norðurlöndun-
um. Flokkurinn hefur aldrei feng-
ið minna en 30 prósent atkvæða í
kosningum og nokkrum sinnum
fengið hreinan meirihluta. Skoð-
anakannanir benda til að nú geti
orðið breyting á og að flokkurinn
geti fengið minna en 30 prósent
atkvæða í september.
Kannanir benda til að Modera-
terne haldi nokkurn veginn sama
fylgi og í síðustu kosningum. Sömu
kannanir benda til að Svíþjóðar-
demókratarnir auki enn fylgi sitt
og fái um 18 prósent atkvæða og
bæti þá við sig um 5,5 prósentu-
stigum frá síðustu kosningum. n
Nú verða útlendingamálin rædd
n 2 af þeim sem höfðu hlotið dóma fæddir utan Svíþjóðar n Svíþjóðardemókratar þóttu standa sig best
Ulf Kristersson.
Stefan Löfvén.
„Alls 112 dómar voru
teknir til umfjöllunar
og var niðurstaða blaðsins
að 82 af þeim sem höfðu
hlotið dóma væru fæddir
utan Svíþjóðar.
Guðni Einarsson
gudnieinarsson@dv.is
Flóttamenn í Svíþjóð.
Húsgagnaval - Höfn í Hornafirði I Bara snilld ehf. - Egilsstöðum
Rúmföt & lök
mikið úrval
Sloppar
fyrir bæði kyn
Handklæði
Mikið úrval
Gerið gæða- og verðsamanburð