Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 9
25. maí 2018 fréttir 9
→ Inni- og útimerkingar
→ Sandblástursfilmur
→ Striga- og
ljósmyndaprentun
→ Bílamerkingar
→ Gluggamerkingar
→ Prentun á símahulstur
→ Frágangur
... og margt fleira
Skoðaðu þjónustu
okkar á Xprent.is
SundaBorG 1, reykjavík / SímI 777 2700 / XPrent@XPrent.IS
útlendingar skráðir með lögheim-
ili sitt, hluti þeirra hefur verið á
launaskrá hjá Elju. Þá má nefna
Bröndukvísl 9 í Árbænum en í því
einbýlishúsi eru 38 erlendir starfs-
menn skráðir með lögheimili.
Það sýnir ágætlega umfangið að
samkvæmt lauslegri talningu DV á
fasteignum í eigu ofangreindra fé-
laga eru um 506 erlendir einstak-
lingar skráðir með lögheimili sitt
í 19 fasteignum, sem flest eru ein-
býli eða raðhús, í eigu félaga sem
tengjast GAMMA.
Þannig vill til að eigendur Elju
er flestir starfsmenn dótturfélags
GAMMA, Heildar fasteignafélags.
Stærsti eigandi starfsmannaleig-
unnar er Arnar Hauksson með
86,67% hlut. Hann á 80% í gegnum
félagið ÞA eignarhaldsfélag ehf. og
6,67% í gegnum félagið Quarks ehf.
Arnar er fyrrverandi starfsmaður
GAMMA en færði sig nýlega um
set yfir í Heild fasteignafélag ehf.,
dótturfélag GAMMA. Þar starfar
hann sem ráðgjafi. Þess má geta
að Arnar er bróðir Gísla Hauks-
sonar, annars af tveimur stofnend-
um GAMMA og fyrrverandi for-
stjóra og síðar stjórnarformanns
félagsins. Gísli lét af störfum hjá
GAMMA í febrúar á þessu ári en
hann er ennþá einn stærsti hlut-
hafinn. Framkvæmdastjóri Arnars
hjá Heild er einnig hluthafi í Elju.
Það er Pétur Árni Jónsson, sem er
helst þekktur fyrir að vera eigandi
Viðskiptablaðsins. Hann á 6,67%
hlut í gegnum félagið PÁJ Invest
ehf. Síðasti hluthafinn er Jón Einar
Eyjólfsson sem á einnig 6,67% hlut
í gegnum félag sitt Hemju ehf.
Hafa gert athugasemdir
við starfsemina
Viðmælandi DV er meistari í sinni
iðn, eins og áður hefur komið
fram. Í ljósi þess ætti hann með
réttu að vera skráður í Samiðn eins
og fjölmargir kollegar hans sem
státa af sambærilegri menntun.
Það er þó ekki svo heldur er
meirihluti starfsmanna á vegum
Elju skráður í Eflingu sem er ætl-
að ófaglærðu starfsfólki. „Það eru
engir starfsmenn Elju í byggingar-
iðnaði skráðir hjá Samiðn. Að okk-
ar mati er félagið ekki að virða
nám og réttindi starfsmanna
og við höfum gert alvarlegar
athugasemdir við þessa háttsemi,“
segir Þorbjörn Guðmundsson,
framkvæmdastjóri Samiðnar.
Lágmarkstaxti Samiðnar fyr-
ir menntaðan iðnaðarmann er
2.249 krónur og því uppfyllir við-
mælandi DV þær kröfur. Þorbjörn
bendir á að það þurfi ekki að gilda
varðandi aðra erlenda iðnaðar-
menn sem hingað koma á veg-
um Elju. „Þeir eru skráðir inn sem
ómenntaðir iðnaðarmenn og gætu
því þurft að sætta sig við laun sem
eru samkvæmt kjarasamningum
Eflingar og því lægri en þeim ber.
Það er brot á EES-reglum að viður-
kenna ekki nám og réttindi starfs-
manna,“ segir Þorbjörn. Hann segir
að Samiðn hafi átt fundi með Elju
vegna málsins og úrbótum hafi
verið lofað. Lítið hafi þó orðið um
efndir. „Við höfum sent ítrekanir en
þeim hefur ekki verið svarað,“ segir
Þorbjörn.
Þorbjörn segir að starfsmanna-
leigur ættu að vera góð viðbót
við íslenskt atvinnulíf ef rétt væri
haldið á spilunum. „Það er að mínu
mati jákvætt ef fyrirtæki hafa þann
valkost að ráða erlenda starfs-
menn tímabundið til þess að brúa
ákveðin tímabil. Þróunin virðist þó
vera á þá leið að hér eru að verða til
tvö launakerfi, eitt fyrir útlendinga
og annað fyrir Íslendinga. Það tel
ég vera slæma þróun,“ segir Þor-
björn.
Eiga í harðri samkeppni
um starfsmenn
Arthúr Vilhelm Jóhannesson, fram-
kvæmdastjóri Elju, telur gagnrýni
Þorbjörns byggjast á misskilningi.
„Það er ekki mikil ásókn í iðnað-
armenn yfir vetrartímann. Með
hækkandi sól reikna ég með að
það fjölgi í þeim hópi hjá okkur. Við
leggjum okkur fram að við að skrá
okkar starfsmenn í rétt stéttarfé-
lög,“ segir Arthur. Hann nefnir sem
dæmi að talsvert hafi verið um að
rafvirkjar hafi verið ráðnir til starfa
og þeir séu að sjálfsögðu skráðir í
Rafiðnaðarsambandið. „Við förum
eftir kjarasamningum í hvívetna
og ráðningarsamningar eru send-
ir til Vinnumálastofnunnar. Við
teljum okkur einnig hafa átt mjög
gott samstarf við verkalýðsfélög og
samstarfsfyrirtæki,“ segir Arthúr.
Hann segir ósanngjarnt að
halda því fram að Elja borgi erlend-
um starfsmönnum lág laun. „Það
er gríðarleg eftirspurn eftir góðum
starfsmönnum í Evrópu og við eig-
um í harðri samkeppni við Noreg
og Þýskaland. Við þurfum því að
geta boðið uppá samkeppnishæf
laun. Þá leggjum við líka mikið
upp úr faglegum ráðningum með
samstarfi við erlendar ráðningar-
stofur auk þess sem við gerum
ýmsar aukakröfur eins og að starfs-
menn framvísi sakavottorði. Það
er til dæmis ekki farið fram á það í
Þýskalandi, slík er eftirspurnin eftir
starfskröftum og krafa um að ferl-
ið gangi hratt fyrir sig,“ segir Arthúr.
Elja gerir venjulega um sex
mánaða samninga við starfs-
menn sína en fyrirtækið metur það
sem svo að samstarfið hafi geng-
ið upp ef starfsmaðurinn ílengist
hér á landi. „Við heyrum í öllum
starfsmönnum tveimur mánuðum
fyrir samningslok og tökum stöð-
una hjá þeim. Sumir ráða sig áfram
hjá okkur en aðrir ráða sig kannski
beint til fyrirtækjanna sem við átt-
um samstarf við. Við lítum á það
sem sigur og að samstarfið hafi ver-
ið til hagsbóta fyrir alla,“ segir hann.
Húsaleiga ekki skilyrði fyrir vinnu
Varðandi háa húsaleigu seg-
ir Arthúr að Elja hafi engar tekj-
ur umfram kostnað af því að út-
vega erlendum starfsmönnum
húsnæði. „Það er ekki skilyrði
fyrir ráðningu starfsmanns að
hann leigi af Elju heldur er þetta
nauðsynleg þjónusta fyrirtæk-
isins vegna mjög erfiðs ástands
á húsnæðismarkaðinum, sér-
staklega á höfuðborgarsvæðinu,“
segir hann. Starfsmenn ráði því
hvar þeir búa. „Þeir starfsmenn
sem kjósa að leigja af Elju greiða
húsaleigu og Elja útvegar allan
búnað sem þarf til daglegra nota,
líkt og leirtau, rúm og sængur-
föt, þráðlaust net, þvottavél og
þurrkara.“
Hann bendir á að Elja sé með
langtímahúsnæði á leigu og
það sé ekki alltaf í fullri nýtingu.
„Þegar starfsmenn fara í frí, til
dæmis í kringum jólin, þá greiða
þeir ekki fyrir húsnæði á meðan
og þá fellur kostnaður á okkur. Þá
eru við með starfsmenn á laun-
um sem þjónusta húsnæðið. Ef
starfsmenn kjósa að við útvegum
húsnæði er leigukostnaðurinn
kynntur fyrir starfsmönnum áður
en þeir koma til landsins og farið
yfir það í ráðningaviðtali. Við telj-
um leiguna hjá okkur sanngjarna
að teknu tilliti til þjónustunnar.
Starfsmenn greiða leiguna eftir á
og við förum ekki fram á sérstakar
tryggingar eins og á hefðbundn-
um leigumarkaði,“ segir Arthúr. n
Rukka erlenda starfsmenn um 150 þúsund
krónur í leigu fyrir 10 fermetra herbergi
n Eigendur Elju starfa fyrir dótturfélag GAMMA n Samiðn telur fyrirtækið ekki virða nám og réttindi erlendra starfsmanna n Segja leiguna sanngjarna