Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 18

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Page 18
18 25. maí 2018fréttir - erlent Í febrúar kom til harðra átaka á milli hersveita Bashar al-Assad Sýrlandsforseta og mörg hund- ruð rússneskra málaliða frá einkafyrirtæki, sem er þekkt und- ir heitinu Wagner, við banda- ríska hermenn nærri Deir ez-Zor í austurhluta Sýrlands. Hersveitir Assads og rússnesku málaliðarn- ir sóttu fram gegn olíuhreinsistöð sem kúrdískar hersveitir höfðu á valdi sínu en Kúrdarnir njóta stuðnings Bandaríkjanna. Banda- ríkjaher beitti stórskotaliði og B-52 sprengjuflugvélum gegn herliði Assads og rússnesku málaliðun- um er orustan stóð yfir, í um þrjár klukkustundir. Rússnesk yfirvöld þvertóku í upphafi fyrir að Rússar hefðu tek- ið þátt í bardögunum og sögðu að fréttir þar um væru rangar. Á end- anum neyddist utanríkisráðu- neytið þó til að viðurkenna að fimm Rússar hefðu fallið í orustunni. Áður höfðu nokkrir rússneskir fjöl- miðlar nafngreint að minnsta kosti 10 Rússa, sem tengjast Wagner, en nokkrir Vestrænir fjölmiðlar á borð við Reuters og Bloomberg segja að mun fleiri Rússar hafi fallið. Reuters hafði eftir rússneskum her- lækni að um 100 Rússar hafi fall- ið og annar heimildarmaður sagði þá hafa verið rúmlega 80. Þá særð- ist fjöldi Rússa og voru þeir fluttir á hersjúkrahús í Moskvu. Rússarnir eru sagðir hafa ver- ið málaliðar á vegum Wagner en það er rússneskt fyrirtæki sem er fjármagnað af rússneskum stjórn- völdum. Fyrirtækið hefur sent fjölda málaliða til Úkraínu og Sýr- lands. Kom upp um Wagner Síðasta sumar sótti sjúkrabíll of- urölvi mann í úthverfi St. Péturs- borgar og flutti til lögreglunnar sem vistaði manninn í fangaklefa. Í fórum mannsins fundust skjöl sem sýndu að hann var ofursti í varaliðssveitum rússneska hers- ins. Hann var með 550.000 rúblur á sér (það jafngildir um 8,8 millj- ónum íslenskra króna) og 5.000 dollara (það jafngildir rúmlega 500.000 íslenskum krónum). Auk þess var hann með lista yfir vopn, pöntunarseðil fyrir mörg tjöld, flugmiða til Krasnodar í suðvest- urhluta Rússlands og kort af Sýr- landi. Lögreglan komst síðan að því að ofurstinn var næstráðandi hjá fyrirtækinu Wagner sem hefur sent málaliða til Úkraínu og Sýr- lands eftir því sem segir í frétt rúss- neska miðilsins Fontanka. Vopnin og tjöldin voru ætluð Wagner. Þjálfunarbúðir Wagner eru í Krasnodar þar sem málaliðar æfa fyrir aðgerðir utan Rússlands. Samkvæmt rússneskum lögum er starfsemi sem þessi stranglega bönnuð en ofurstanum var sleppt án frekari eftirmála. Þar kom sér vel að hann og Wagner eiga valda- mikla vini í Pétursborg og Moskvu. Wagner kom fram á sjón- arsviðið 2014 í tengslum við ver- kefni utan Rússlands en þá tóku málaliðar frá fyrirtækinu þátt í bardögum í austurhluta Úkraínu. Yfirmaður Wagner er Dmitrij Utkin, fyrrverandi háttsettur leyniþjónustumaður, og er fyrir- tækið nefnt eftir honum. Hann er að sögn mikilli áhugamað- ur um þýska hernaðarsögu og er hann því kallaður eftir þýska tón- skáldinu Wagner. Frá bækistöð Wagner í Krasn- odar er aðgerðum málaliðanna stýrt. Í næsta nágrenni eru sveit- ir frá rússnesku GRU leyniþjón- ustunni en svo ótrúlega vill til að Dmitrij Utkin starfaði áður hjá GRU. Rússneski netmiðillinn Republic segir að um 3.660 málaliðar séu að störfum hjá Wagner og séu reiðubúnir til að hætta lífi sínu fyrir upphæð- ir sem svara til 160.000 til 480.000 íslenskra króna á mánuði. Vinir Pútíns fjármagna Wagner Málaliðarnir eru vel vopnum bún- ir og í Sýrlandi hafa þeir yfir stórskotaliði og skrið- drekum að ráða. Allt kostar þetta peninga. Repu- blic segir að á síðustu tveimur árum hafi þetta kostað Wagner sem nemur um 35 milljörðum íslenskra króna. Peningarn- ir koma frá „stuðningsað- ilum“. Einn þeirra er Jevgenij Pri- gozjin, 56 ára kaupsýslumaður frá St. Pétursborg. Hann er góðvinur Pútíns forseta og á síðustu árum hefur hann tryggt sér samninga um sölu á matvörum til rússneska hersins fyrir sem nemur 112 millj- örðum íslenskra króna. Prigozjin hefur ekki neina hernaðarreynslu eftir því sem best er vitað en hefur eytt 10 árum í fangelsi eftir bankarán. Áður en orustan við Deir ez-Zor hófst hler- uðu bandarískar leyniþjónustur samskipti Pribozjin við minnst einn ráðherra í ríkisstjórn Pútíns og starfsmannastjóra Pútíns, Ant- on Vaino. Wasington Post skýr- ir frá þessu. Í þessum samskipt- um kom fram að Prigozjin lofaði Assad „óvæntum tíðindum“ en þar er hann talinn hafa átt við olíu- hreinsistöðina sem ráðist var á. Allt fór þetta þó út um þúfur eins og áður er rakið. Líklegt verð- ur þó að teljast að á næstu árum muni liðsmenn Wagner láta til sín taka þar sem rússnesk stjórnvöld telja sig eiga hagsmuna að gæta. n Smiðjuvegi 4C 202 Kópavogur | Sími 587 2202 | hagblikk@hagblikk.is | hagblikk.is HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Þakrennurnar eru frá GRÖVIK VERK í Noregi Þær eru einfaldar í uppsetningu HAGBLIKK Ryðga ekki Brotna ekki Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt silfurgrátt og dökkgrátt Bandarískar sveitir drápu fjölda rússa n Böndin beinast að Wagner sem vinir Pútíns fjármagna n Ölvaður ofursti kom upp um Wagner Kristján Kristjánsson ritstjorn@dv.is Málaliðar eru vel vopnum búnir í Sýrlandi. Assad. Pútín.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.