Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Qupperneq 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Qupperneq 26
26 fólk - viðtal 25. maí 2018 í miklum sársauka og við meidd- um hvort annað. Við vorum saman sirka frá 2009 til 2011 og þá gerist það sem sagt að pabbi tekur líf sitt og líf mitt fór að snúast í rétta átt ef svo má að orði komast.“ Hvernig var sú atburðarás? „Það er kannski ekki auðvelt að rekja það hvernig þetta byrj- ar en sirka 2005 keypti hann Stál- smiðjuna í félagi við tíu aðra. Svo fer hann auðvitað að drekka aftur. Þeir hringja í hann einn morgun- inn og boða hann í viðtal. Segja að þeir vilji ekki að hann mæti áfram nema hann fari fyrst í áfengismeð- ferð. Hann fór heim eftir þetta við- tal og skaut sig. Konan hans var líka búin að segja við hann að ef hann klúðraði vinnunni þá myndi hún yfirgefa hann og taka allt sem hann átti. Svo kom hún að honum inni í bílskúr þar sem hann var búinn að fyrirfara sér.“ „Ég var líka hrikalega reið mann- eskja á þessum tíma“ Evu bárust fréttirnar með þeim hætti að móðir hennar hringdi í hana og var mikið niðri fyrir. Sagði að þær yrðu að hittast því hún þyrfti að segja henni svolítið. Þarna var Eva stödd heima hjá sambýlis- manninum sem hún var þá nýlega hætt með en var ennþá að hitta af og til. „Mamma segist vilja keyra uppá Kjalarnes til bróður míns og hitta mig þar. Ég hélt að þetta snerist um ömmu sem var búin að vera veik og ég man að ég hugsaði:„Nú er kannski amma að deyja“. Ég fatt- aði ekki af hverju ég gæti ekki bara keyrt beint upp á spítala, af hverju það mætti ekki segja neitt í símann. Það fauk í mig. Ég var líka hrikalega reið manneskja á þessum tíma. Það þurfti mjög lítið til að gera mig reiða á þessum árum. Ég var stödd uppi í Mosó og sagðist geta hitt hana á bílastæðinu við N1 á leiðinni upp á Kjalarnes:„Fyrst þú endilega vilt!““ „Það var blæja yfir þar sem höfuðið á honum hafði verið“ Á bílastæðinu fær Eva þær fréttir að faðir hennar sé látinn. „Ég meðtók þetta ekki. Varð ógeðslega reið og skildi ekkert hvaða helvítis kjaftæði þetta væri. Seinna sagði systir mín mér að augnaráð mitt hefði dugað til að drepa hana. Næstu viðbrögð mín voru að hringja í strákinn sem ég var þarna að hætta með og segja honum að pabbi minn sé dáinn. Hann bauðst til að keyra mig upp á Kjalarnes og þangað fórum við. Næstu dagar voru bara í móðu. Ég var svo reið út í konuna hans og ég varð líka hrikalega reið út í prestinn sem jarðaði hann, því sá vildi ekk- ert við mig tala. Þetta var allt hræði- legt. Í fyrsta lagi tók langan tíma fyrir okkur að fá líkið þar sem það voru einhver veikindi hjá starfsfólki spítalans, svo fengum við viðvörun þegar við komum að honum í kist- unni. Það var blæja þar sem höf- uðið hafði verið.“ Hótaði að hætta samskiptum ef hún ætlaði áfram að vera reið „Eins sárt og það var að missa pabba þá gerðist eitthvað svaka- legt í kjölfarið og allt hófst það með yfirþyrmandi reiði. Ég einfaldlega brjálaðist út í tilveruna og konuna hans pabba. Mér fannst hún eiga sök á svo mörgu og ég óð bara yfir allt og alla í mínum sársauka. Svo kom að því að systir mín setti mér stólinn fyrir dyrnar og sagðist ekki geta verið í samskiptum við mig ef ég ætlaði að halda áfram að vera svona reið,“ segir Eva og bætir við að systir hennar sé dýrmætasta manneskjan í hennar lífi. „Ég myndi gera allt fyrir hana svo við þetta fór ég að skoða hegð- un mína, fortíðina, framkomu, tilfinningar og allt sem þessu fylgir. Mamma útvegaði mér sam- talsmeðferð hjá presti og með því hófst mín sjálfsvinna.“ Lenti í bílslysi nokkrum mínútum eftir nauðgun Þegar Eva er nýlega byrjuð í sam- talsmeðferð hjá prestinum vís- ar læknir henni til meðferðaraðila sem átti að hjálpa henni með sýk- ingu sem hún fékk í tannholdið. Þar varð hún fyrir nauðgun en þetta var í byrjun desember 2011. „Þegar ég kom út frá honum settist ég undir stýri og ók af stað í algjöru sjokki. Örfáum mínút- um seinna lendi ég svo í hrikalegu bílslysi. Við það slitnuðu liðbönd á hægri ökkla og ég hlaut mik- il meiðsli á hrygg, hálsi og öxlum. Þegar ég lít um öxl finnst mér eins og mér hafi verið kippt út úr lífinu til að ég gæti valið aðra braut en þá sem ég var komin á. Þarna missti ég vinnuna og neyddist til að fara í endurhæfingu á sál og líkama.“ „Fannst ég vera að deyja“ Fyrstu skrefin hjá Evu voru að skoða meðvirkni í samskiptum og því næst fékk hún endurhæfingar- styrk frá Virk og fór í mjög reglu- bundna meðferð hjá sálfræðingi. „Í janúar 2013 skrái ég mig svo í Ráðgjafarskóla Íslands en það var of mikið fyrir mig. Smátt og smátt byrjar mér að líða mjög illa, svo illa að mér fannst ég hreinlega vera að deyja. Eftir tvær innlagnir, rannsóknir og ferðir á göngudeild Landspítalans finna læknarnir svo æxli í kviðnum á mér. Sennilega var ég byrjuð að þróa krabbamein í brisi sem varð svo fyrir hnjaski í bílslysinu, sprakk út í kviðinn og byrjaði að vaxa inn í líffærin í kring.“ Lífið tók 90 gráðu viðsnúning Í apríl 2013 leggst Eva á skurðar- borðið. Læknarnir fjarlægðu með- al annars miltað úr hennni ásamt hluta af brisi, maga, ristli, þind og þörmum. „Ég fór inn og út af Landspítal- anum fram í júlí það ár með sýk- ingar sem þurfti að drena út og var gríðarlega veik. Samt má segja að bílslysið hafi bjargað mér frá því að þurfa að takast á við krabbameinið því læknarnir náðu að skera allt í burtu og ég þurfti ekki á krabba- meinsmeðferð að halda.“ Samkvæmt ráðleggingum læknis þurfti Eva að taka sér hlé frá endurhæfingarprógraminu með Virk meðan hún var að jafna sig eftir aðgerðina. Ég var samt alveg viðþolslaus að komast í að gera eitthvað og tók því feginsamlega þegar vinir mín- ir buðu mér með sér á samskipta- námskeið í Borgarfirði. Við það tók líf mitt 90 gráðu viðsnúning og síð- an hefur öll mín tilvera snúist til betri vegar. Lærði að bera ábyrgð á sjálfri sér Námskeiðið sem um ræðir kallast Umhyggjurík samskipti eða Non Violent Communication og var upp- haflega þróað af geðlækninum og sálfræðingnum Marshall Rosenberg: „Hann hugsaði mikið um af hverju við bregðumst við eins og við gerum. Af hverju sumir bregð- ast við mótlæti af æðruleysi og samkennd á meðan aðrir reiðast og beita ofbeldi. Samskipti snúast í raun mikið um tilfinningalæsi og viðurkenningu og þarna lærði ég bæði að skilja sjálfa mig og annað fólk alveg upp á nýtt. Ég verð þess- um vinum mínum sem buðu mér með sér þarna upp í Borgarfjörð ævinlega þakklát því þarna lærði ég að bera ábyrgð á sjálfri mér og leyfa öðrum að bera ábyrgð á sér. Ég skildi einnig að enginn getur gefið mér það sem ég get ekki gef- ið mér sjálf og að ég má hafa þarfir, og uppfylla þær, og biðja aðra um að vera með mér í að gera lífið dá- samlegt ef þeir vilja.“ Umhyggjurík samskipti þau áhrifamestu Nú eru liðin fimm ár frá því Eva Dís kynntist þessari leið sem meðal annars hefur verið notuð af Sam- einuðu þjóðunum, hjá trúnaðar- mönnum í fyrirtækjum á borð við Mercedez Benz og IBM, af kennur- um og þjálfurum víða um heim og fangelsismálayfirvöldum í Banda- ríkjunum svo fátt eitt sé nefnt. Eva segir að af öllum þeim sjálfsbjargarleiðum sem hún hafi kynnt sér í þeirri viðleitni að ná sér af áföllum og afleiðingum ofbeldis og vændis séu Umhyggjuríku sam- skiptin þau allra áhrifamestu. „Fyrir tveimur árum kom upp sú staða hjá mér að hluti maga- veggjarins gaf sig eftir stóra skurðinn og ég tók mér hlé frá því að mennta mig frekar í Um- hyggjuríkum samskiptum til að fara í aðgerð. Að henni lokinni fór ég svo í Stígamót til að reyna að greiða betur úr sálarlífinu og af- leiðingum af kynferðisofbeldi og vændi sérstaklega. Þar bauðst mér að taka þátt í hópavinnu sem gerði kraftaverk fyrir mig. Frá áramótum hef ég svo sjálf starfað sem leið- beinandi hjá Stígamótum og fyrir skemmstu gafst mér nýtt tækifæri til að kenna Umhyggjurík sam- skipti hjá Bjarkarhlíð, sem er mið- stöð fyrir þolendur ofbeldis og er styrkt af Velferðarráðuneytinu.“ Að lokum biður þessi hugrakka kona um að fá að koma því á fram- færi að eftir kosningar verði ný námskeið í Umhyggjuríkum sam- skiptum auglýst á Facebook síðu með sama nafni. „Ég veit að ég á dökka fortíð að baki en það er mikilvægt fyrir mig að ég fái sjálf rými til að skilgreina hana. Mér finnst erfiðleikarnir og allt það sem ég hef gengið í gegn um hafa gert mig að bæði sterkri og víðsýnni manneskju. Mig langar að nota allt það sem hefur komið fyrir mig, bæði sjálfri mér og öðr- um til góðs,“ segir Eva Dís að lok- um. n „Fannst það bara góð hugmynd að losna úr baslinu, láta sjá fyrir mér og það eina sem ég þyrfti að gera væri að leyfa einhverjum að rass- skella mig og ríða mér, m y n d H a n n a Lækjarbrekka Bankastræti 2 101 RVK s. 551 4430 Alltaf sígild alltaf ljúf
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.