Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Side 39

Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Side 39
 25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ Viðhald og framkvæmdir Vaskir drengir: Það er dýrt að bíða of lengi með viðhald Fyrirtækið var stofnað árið 2014 en ég hef unnið við þetta miklu lengur. Verkefnum fór að fjölga mikið upp úr 2012 þegar við fórum að vinna meira í nýbygging- um og má segja það sé um 70–80% af heildarverkefnunum. Við tökum við verkinu þegar búið er að setja glugga og hita í húsið. Við spörtlum, slípum, grunnum – og fullmálum húsið,“ segir Björgvin P. Hallgríms- son málarameistari, eigandi máln- ingarfyrirtækisins Vaskir drengir ehf. eins og kemur fram í máli Björg- vins vinna Vaskir drengir mikið í nýbyggingarverkefnum sem undir- verktakar hjá stórum byggingar- fyrirtækjum. en með vorinu fer viðhaldsverkefnum fjölgandi og þá er unnið meira úti: „Við erum að klára núna hús í Urriðaholtinu í garðabænum og verðum meira og minna í útiverk- efnum fram á haust en þá byrjum við líklega aftur í nýbyggingunum,“ segir Björgvin sem býst við að mála mörg einbýlishús og fjölbýlishús í sumar. „Við erum mikið í viðhaldsver- kefnum fyrir húsfélög, til dæmis viðhald innanhúss og endurmálun,“ segir Björgvin og bætir við að utan- hússviðhald sé afar mikilvægt: „Það er mjög mikilvægt til að vernda og viðhalda þannig verðgildi þeirra. ef rigningarvatn fær að seytla inn í sprungur og frjósa þá smátt og smátt stækka sprungurnar og múrinn/steinsteypan skemmist. Viður upplitast og fúnar að lokum ef vatn og sólarljós kemst óhindrað inn. Þakklæðning eins og bárujárn ryðgar komist vatnið óhindrað að yfirborði járnsins. Þess vegna er hægt að fullyrða að það geti verið dýrt að bíða of lengi með viðhald og þá er jafn mikilvægt að nota réttar aðferðir og efni svo viðhaldið standist álagið.“ starfsemin hefur farið vaxandi og í augnablikinu eru fimm starfsmenn hjá Vöskum drengjum en Björgvin er eini málarameistari fyrirtækisins og hefur vakandi auga og umsjón með öllum verkefnum. starfsfólki fjölgar hins vegar alltaf á sumrin og eru því ársverk hjá fyrirtækinu á milli fimm og tíu. að sögn Björgvins þarf töluvert af tækjabúnaði til að halda úti fag- mannlegri málningarþjónustu: „Við erum til dæmis með málningardæl- ur, spartlvélar, slípivélar, ryksugur, tröppur, stiga, palla og hin ýmsu smáverkfæri.“ aðspurður segir Björgvin að það sé gefandi að taka þátt í stórum nýbyggingarverkefnum og leggja lokahönd á húsnæðið: „Það breytist mikið útlitið á húsnæðinu eftir að við höfum farið um það höndum. segja má að við tökum við húsnæðinu eftir að það er rúmlega fokhelt og setjum loka- svipinn á það.“ Ljóst er að Vaskir drengir eru traustur og álitlegur aðili hvað varð- ar málningarvinnu í nýbygging- um og útimálun húsa á sumrin. Þeir sem hafa áhuga á að kynna sér betur þjónustuna geta hringt í Björgvin P. Hallgrímsson í síma 844-9188.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.