Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 53
Viðhald og framkvæmdir 25. maí 2018 KYNNINGARBLAÐ
Nám í Margmiðlunarskólanum hentar þeim sem hafa áhuga á þrívíddarvinnslu, eftirvinnslu
kvikmynda, tölvuleikjagerð og teikni-
myndagerð. Allt þetta er hluti náms í
Margmiðlunarskólanum. Í náminu er
lögð mikil áhersla á hugmyndavinnu,
frumkvæði og sjálfstæð vinnubrögð.
Skólinn leggur áherslu á að útskrifa
nemendur með frjóa hugsun og vilja
til að fara nýjar leiðir. Við í Margmið-
lunarskólanum kennum á öll helstu
forritin sem notuð eru í bransanum
og leggjum áherslu á að
fylgja þróun í forritum og
lausnum því tengt. Skólinn er
vel tengdur atvinnulífinu.
Dæmi um starfssvið
nemenda sem útskrifast úr
Margmiðlunarskólanum eru
tæknibrellur í kvikmyndum
eins og Star Wars, Infini-
ty Wars og Guardians of
the Galaxy Vol I og II. Flest
leikjafyrirtæki á landinu hafa
á sínum snærum útskrifaða
nemendur úr Margmiðlun-
arskólanum, fyrirtæki eins og CCP og
Sólfar.
Skólinn er vel tækjum búinn, er
með green screen stúdíó, hljóðstúdíó,
mocap og allskonar græjur og dót til
myndatöku.
Senur úr kvikmyndunum Two
Guns og Djúpinu voru líka teknar
upp í green screen stúdíói skólans.
Veggirnir eru í sérstökum grænum lit
sem er síaður út fyrir þann bakgrunn
sem leikararnir eru settir í en hann
getur verið hvort sem er tölvugerður
eða myndskeið.
Nám í Margmiðlunarskólanum er
2ja ára 120 eininga diplomanám.
Möguleiki er á að taka viðbótarár við
erlenda háskóla til BA gráðu. Skólinn
er í samstarfi við skóla í Bretlandi og
Kanada.
Námið er verkefnadrifið með
áherslu á tæknilausnir og skapandi
framsetningu.
Námið er einstaklingsmiðað en
hópavinna er líka stór þáttur í því.
Þetta er heimur þar sem þróun er
afskaplega hröð og krefst stöðugrar
símenntunar og nemendur fá þjálfun
í því að temja sér þann hugsunar-
hátt að halda sífellt áfram að læra.
Margmiðlunarskólinn er ein af mörgum
áhugaverðum námsbrautum og skól-
um sem eru undir regnhlíf Tækniskól-
ans. Skólinn á sér hins vegar dýpri ræt-
ur en hann var stofnaður fyrir síðustu
aldamót og var einkaskóli fyrst um sinn.
Nám í Margmiðlunarskólanum fer núna
fram í gamla Sjómannaskólahúsinu,
húsi Tækniskólans á Háteigsvegi.
Nánari upplýsingar um námið og
umsóknir er að finna á tskoli.is og hjá
Ragnhildi Guðjónsdóttur í síma 514 9601
eða í gegnum netfangið rag@tskoli.is
MArGMIðluNArSKólINN:
Tæknilausnir og
skapandi framsetning
Vefskólinn er nýleg námsbraut innan Tækniskólans sem býður upp á nám sem er í senn mjög
skapandi og afar hagnýtt. Jónatan
Arnar Örlygsson er verkefnastjóri hjá
Vefskólanum og segir hann námið
bjóða upp á kunnáttu sem er mikil
þörf á í atvinnulífinu:
„Nemendur fá kennslu á breiðu
sviði um allt sem kemur að þróun vef-
lausna. Þeir fá kennslu í vefforritun og
er áhersla lögð á framendaforritun,
öllu því sem er sýnilegt notendum.
Við erum t.d. með kúrsa í vefhönnun,
notendaupplifun, frumkvöðlafræði
og verkefnastjórnun. Allt gagnast
þetta við gerð vefsíðna, vef-appa og
hvers konar útgáfur af því sem við
eigum í gagnvirkum tengslum við á
internetinu í dag. Við útskrifum góða
framendaforritara sem hafa gott
auga fyrir útliti. Aðrir nemendur sér-
hæfa sig að námi loknu í vefhönnun.“
Námið veitir mikla at-
vinnumöguleika. Stúdentspróf þarf
til að fá inngöngu í Vefskólann og
einnig er einhver bakgrunnur í annað
hvort grafískri hönnun eða forritun
mikill kostur. „Almennt er góð tölvu-
kunnátta nauðsynleg en einnig þurfa
nemendur að vera mjög skapandi í
náminu og hafa gott auga fyrir útliti.
Mikilvægt er að lausnir sem búnar eru
til á vefnum séu notendavænar og
einfaldar,“ segir Jónatan.
Helstu upplýsingar um
nám í Vefskólanum:
n Vefskólinn er 2ja ára nám með
sérhæfingu á viðmótsforritun. Nem-
endum gefst kostur á að læra m.a
vefhönnun, viðmótsforritun, verk-
efnastjórnun og frumkvöðlafræði.
n Námskráin var byggð upp með
aðstoð atvinnulífsins með það að
markmiði að kenna leikni sem er mikil
eftirspurn eftir á atvinnumarkaðnum.
n Námið er eina námið sinnar
tegundar á Íslandi.
n Vefskólinn vinnur náið með at-
vinnulífinu og fær fjölda gesta-
kennara til sín.
n Nemendur eiga þess kost að taka
3 annir til viðbótar í Copenhagen
School of Design and Technology til
að ljúka BA-gráðu.
n Nemendur sem stundað hafa nám
í Vefskólanum starfa nú í dag hjá
mörgum af flottustu tæknifyrirtækj-
um landsins.
n Námið er verkefnadrifið þar sem
sköpunarkraftur einstaklingsins fær
að njóta sín. Mikið er lagt upp úr
hópavinnu og þjálfun í að vinna með
öðrum.
n Námið er byggt á fyrirlestrum og
kennslu en mikil áhersla er lögð á
verkefnavinnu og að nemendur hafi
greiðan aðgang að kennurum.
n Nemendur Vefskólans fengu tvær
tilnefningar á Íslensku vefverðlaunun-
um sem haldin var í Hörpu í janúar
2018 af Samtökum Vefiðnaðarins.
Nánari upplýsingar og
innritun á www.tskoli.is
VeFSKólINN er SPeNNANDI NáMSBrAuT INNAN TæKNISKólANS:
Skapandi framhaldsnám með
miklum atvinnumöguleikum