Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Blaðsíða 56
56 sakamál 25. maí 2018
V
ið stöndum öll ráðþrota
frammi fyrir þessu og skilj-
um ekki hvað hefur get-
að gerst. Einar Örn er ekki
maður þeirrar gerðar að hann láti
sig hverfa á þennan hátt. Það er
óhugsandi.“
Þetta sagði Atli Helgason lög-
fræðingur skömmu eftir hvarf
Einars Arnar Birgissonar. Atli drap
Einar Örn með því að berja hann
ítrekað með hamri í höfuðið 8.
nóvember árið 2000. Árásin átti sér
stað í Öskjuhlíð. Atli hefur sagt að
hann hafi verið sturlaður af kóka-
ínneyslu þegar hann drap Einar
og kom honum fyrir í skotti bif-
reiðar en talið er að Einar hafi ver-
ið með lífsmarki á þeirri stundu.
Atli átti síðan eftir að taka þátt í
leitinni að Einari, sitja fundi með
fjölskyldunni og furða sig á hvarf-
inu í samtali við fjölmiðla. Morðið
á Einari er eitt þekktasta sakamál
sem upp hefur komið hér á landi.
Þjóðin var slegin óhug þegar hinn
ungi, reglusami dugnaðarforkur
hvarf sporlaust og buðust ótal Ís-
lendingar til að taka þátt í leitinni.
Má segja að andrúmsloftið hafi
verið svipað á þessum tíma og
þegar Birnu Brjánsdóttur var leit-
að. Fjölskylda Einars heldur því
fram að Atli hafi aldrei sýnt í verki
að hann sjái eftir að hafa myrt Ein-
ar. Atli sat í fangelsi í níu ár vegna
morðsins. Birgir Örn Birgis faðir
Einars sagði í viðtali árið 2016:
„Hann hefur aldrei nokkurn
tíma gert eitt eða neitt til að sýna
iðrun. Mér finnst það bara vera í
beinu framhaldi af því hversu út-
smoginn hann var á meðan þetta
var að ganga yfir.“
Atli hefur frá því að morðið var
framið verið áberandi í fjölmiðl-
um. Hann var talsmaður fanga og
var margsinnis á síðum blaðanna
vegna þessa. Þá hefur hann far-
ið í viðtöl til að ræða um morðið á
Einari og eins út af öðrum smærri
málum. Atli fékk uppreist æru árið
2016. Það sama ár lagði hann fram
beiðni um að fá lögmannsréttindi
sín aftur. Hann dró síðan beiðn-
ina til baka og sagði þá ákvörðun
byggja á að hann hefði endurvak-
ið þjáningar aðstandenda Einars.
Hann ákvað svo að sækja um
réttindin að nýju en ekki er vit-
að um ástæður þess að Atla sner-
ist hugur og ákvað að óska eftir
réttindunum á nýjan leik en hann
var sviptur þeim eftir morðið á
Einari.
Atburðarásin
Atli og Einar Örn voru viðskipta-
félagar og höfðu nýverið opnað
tískuverslunina GAP Collection á
Laugavegi 7. Það hafði verið nokk-
uð átak að opna búðina en með
eljusemi Einars hafði það tekist.
Einar átti 80 prósent í fyrirtæk-
inu en Atli 20 prósent. Atli og Ein-
ar kynntust í gegnum knattspyrn-
una. Atli var fyrirliði Víkings þegar
Einar Örn hóf að leika þar með
meistaraflokki og var fyrirmynd
allra ungra drengja í félaginu. Úr
Víkingi lá leið Einars í Val, þaðan
í Þrótt og svo til norska 1. deildar-
liðsins Lyn í Ósló þar sem Einar
lék eina leiktíð. Eftir heimkomuna
frá Noregi gekk Einar Örn til liðs
við KR en hætti hjá félaginu vegna
ósættis við þjálfara KR, Pétur
Pétursson. Kallaði Einar Örn þá
Atla félaga sinn til liðs við sig til að
standa að samningi um starfslok
sín hjá knattspyrnudeild KR.
Atli Helgason starfaði um tíma
á lögmannsstofu Atla Gíslason-
ar og var látinn hætta þar vegna
ógætilegrar meðferðar á fjár-
munum lögmannsstofunnar. Var
talið víst að það atferli Atla tengd-
ist neyslu hans og viðskiptum
með fíkniefni sem hann var háð-
ur. Reyndu velunnarar Einars að
vara hann við ástandi viðskiptafé-
lagans rétt áður en tískuverslunin
þeirra var opnuð en Einar sagðist
bera traust til félaga síns og taldi
hann vera hættan öllu rugli.
Einar Örn var glaður í bragði
síðdegis þann 7. nóvember árið
2000 þegar hann kvaddi starfsfólk
sitt í GAP Collection. Um nóttina
horfði hann á bandarísku forseta-
kosningarnar og svaf fram eftir
þann 8. nóvember. Einar mælti sér
mót við Atla. Hann hringdi í versl-
unina og lét vita að hann ætti fund
með Atla. Einnig sagði hann versl-
unarstjóranum að Atli hefði greint
frá því að ökutæki hans væri bil-
að og að Atli hefði beðið hann að
aðstoða sig. Var verslunarstjórinn
hissa á því þar sem bíll Atla hafði
skömmu áður verið í viðgerð.
Miklir áverkar en sagði Atli
allan sannleikann?
Ekkert spurðist til Einars eftir
þennan dag en Atli er einn til frá-
sagnar um atburðarásina. Telja
ættingjar að hann hafi aldrei sagt
alla söguna. Atli segir að þeir Ein-
Sagði Atli allan sannleikann?
Foreldrar einars dóu úr sorg
n Skilaboð frá miðlum n Atli sagði Einar á lífi n Leitaði með fjölskyldunni
Æviferill Atla Helgasonar í hnotskurn
7. mars 1967 Fæðist í Reykjavík.
September 1980 Missir bróður sinn á voveiflegan
hátt.
31 nóvember 1984 Missir föður sinn.
1987 Stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti.
1987 Fer úr Þrótti til Víkings.
1989 Eignast barn.
September 1991 Leiðir Víking til sigurs á Íslands-
meistaramótinu í knattspyrnu.
September 1991 Ásgeir Elíasson velur hann í lands-
liðshópinn. Hann kemst þó ekki í liðið.
1993 Yfirgefur herbúðir Víkings og gengur til liðs við Val.
1993 Útskrifast sem lögfræðingur frá Háskóla Íslands.
1993 Hefur störf á lögmannsstofu Atla Gíslasonar.
1996 Hættir störfum hjá lögmannsstofu Atla Gísla-
sonar 1996. Fer í meðferð vegna fíkniefnaneyslu.
1999 Er bústjóri í dánarbúi Agnars W. Agnarssonar
sem Þórhallur Ölver Gunnlaugsson banaði á Leifsgötu
16. júlí 1999.
Sumarið 2000 Er lögmaður Einars Arnar Birgissonar
þegar samningi hans við KR er rift í október.
2000 Verslun Atla og Einars Arnar, GAP Collection,
opnuð 8. nóvember.
2000 Er valdur að dauða Einars Arnar Birgissonar 14.
nóvember.
2000 Handtekinn af lögreglunni, grunaður um aðild
að hvarfi Einars Arnar 16. nóvember.
2000 Játar að hafa banað Einari Erni.
Maí 2001 Dæmdur í 16 ára fangelsi.
2001 Segir frá því í viðtali í bók hvernig neysla eiturlyf-
ja hafi breytt honum í morðingja.
2003 Sendir opið bréf í DV og gagnrýnir refsikerfið.
2004 Segir í viðtali við DV að fyrsta eina og hálfa árið
hafi verið hreint helvíti á Litla Hrauni.
2004 Svarar spurningu dagsins á DV og segir enga
stefnu vera í fangelsismálum. Hún snúist aðeins um
refsivist. Atli tjáði sig ítrekað við fjölmiðla á þessum
árum sem talsmaður fanga.
2005 Fær dagsleyfi úr fangelsi og fer í jarðarför og
kaupir ís með fjölskyldunni.
2010 DV greinir frá því að Atli sé laus úr fangelsi eftir
níu ára vist á Hrauninu og sé kominn á Vernd.
2014 DV greinir frá því að Atli Helgason sé hluthafi í
Versus lögmönnum.
2015 Fær uppreist æru.
2016 Sækir um lögmannsréttindi en hættir við.
2018 Fær lögmannsréttindi aftur.
„Það er bara stað-
reynd með þenn-
an mann. Það er sama
við hvern þú talar. Það
var ekki einn illan blett á
Einari að finna.
Einar Örn var
elskaður og
dáður af fjölda
manns. Hans
er enn í dag
sárt saknað en
minningin lifir.