Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Side 57
sakamál 5725. maí 2018
ar hafi rætt um fjármál og það hafi
soðið upp úr. Þá hafi Atli slegið
hann með hamri í höfuðið. Atli
hefur haldið fram að hann hafi eft-
ir höggin þungu reynt hjartahnoð
og að blása lífi í Einar. Áverkar á
líkinu voru miklir, sérstaklega á
höfði. Atli kvaðst „í mesta lagi“
hafa slegið Einar Örn tvisvar með
hamri. Lögreglumaður sem rann-
sakaði morðstaðinn, það er bíla-
stæði í Öskjuhlíð, kom fyrir dóm-
inn og sagði að miðað við þá
áverka sem Einar hlaut hefði blóð
átt að finnast á staðnum. En ekkert
slíkt fannst í Öskjuhlíð – aðeins við
gjótu í hrauninu við Grindavíkur-
veg þar sem Atli benti lögreglu á
líkið nokkrum dögum síðar. Lík-
lega hefur Einar verið nýlátinn
eða með lífsmarki þegar Atli losaði
sig við líkið í Arnarseturshrauni
ekki langt frá Grindavík. Hundruð
manna og kvenna leituðu Einars
og öll þjóðin fylgdist með.
„Við Einar vorum báðir búnir
að vinna mikið fyrir opnunina og
vorum þreyttir en það var ekkert í
fari Einars sem benti til þunglynd-
is. Hann er ákaflega jákvæður og
hvers manns hugljúfi og það var
einmitt þetta þægilega og jákvæða
viðhorf hans sem varð til þess að
hann tryggði okkur GAP-umboðið
hér á landi,“ sagði Atli Helgason í
viðtali við DV á meðan leitin stóð
yfir. Í sama viðtali lét hann hafa
þetta eftir sér: „Einar hringdi í mig
klukkan rétt rúmlega tíu á mið-
vikudagsmorguninn og sagðist þá
vera á leiðinni til min; yrði kominn
innan fimm mínútna. Síðan hef
ég ekki heyrt frá honum. Ég stend
á gati og hugsa í hringi því ég skil
þetta ekki.“
Skilaboð frá miðlum
– Atli segir Einar á lífi
„Atli reyndi að komast hjá því að
taka þátt í leitinni og sagðist með-
al annars þurfa að fara með kon-
una sína til tannlæknis. Hann lét
þó til leiðast að lokum en menn
tóku eftir því að hann var hálfutan-
gátta við leitina,“ sagði einn heim-
ildarmanna DV og bætti við að Atli
virtist ruglaður og úti á þekju. DV
ræddi einnig við Atla á meðan leit
stóð, en að kvöldi föstudags lýsti
Atli harmi sínum vegna hvarfs fé-
laga síns og sagðist standa á gati og
hugsa í hringi. Að öðru leyti virt-
ist Atli yfirvegaður og í jafnvægi.
Honum varð tíðrætt um hversu
undarlegt það væri að leitarhund-
ar hefðu ekki fundið nein spor frá
bifreið Einars Arnar þegar hún
fannst um síðir við Hótel Loftleið-
ir. Þá gat hann þess sérstaklega að
fjölskylda félaga síns, sem væri
harmi slegin, hefði leitað til fjöl-
margra miðla í örvæntingu sinni
og þeim bæri öllum saman um að
Einar Örn væri á lífi. Fjórum sól-
arhringum síðar var Atli Helgason
handtekinn, grunaður um að eiga
aðild að hvarfi félaga síns.
Leitaði með fjölskyldunni
Atli tók þátt í víðtækri leit sem
fjölskylda og vinir Einars skipu-
lögðu ásamt björgunarsveitum og
lögreglu. Þá mætti hann einnig
á bænastundir og fór í viðtöl við
fjölmiðla. Þar lýsti hann yfir djúp-
um áhyggjum vegna „vinar“ síns.
Sex dögum síðar var hann hand-
tekinn og framkvæmd húsleit á
heimili hans. Þar fundust blóðug
föt. Þá kom einnig í ljós að símar
þeirra höfðu verið á sama svæði á
Suðurnesjum. Atli var kominn út í
horn og játaði morðið.
Kenndi Einari um neysluna
Óttar Sveinsson blaðamaður var í
réttarsal þegar málið var tekið fyr-
ir. Hafði hann setið nokkur rétt-
arhöld vegna morðmála. Fullyrti
hann að aldrei hefði verið eins
tilfinningaþrungið andrúmsloft í
dómsal. Óttar skrifaði:
„Atli, sem sat mestallan daginn
álútur við hlið lögmanns síns, leit
vart upp, svaraði gjarnan með lok-
uð augu og grúfði höfuðið í greip-
ar sér. Kannski ekki undarlegt
því öll fjölskylda Einars heitins –
sambýliskona, foreldrar, systkini
og fleiri fylgdust með hverju orði
og hverri hreyfingu örfáa metra
frá sakborningnum og heill hóp-
ur fréttamanna að auki. Í dómsal
vildi Atli meina að Einar hefði átt
þátt í því að hann hefði byrjað aft-
ur í neyslu.“
Hvernig Einar átti að hafa feng-
ið Atla til að byrja aftur í neyslu
var eðlilega spurt. Atli svaraði því
til að þeir hefðu saman neytt am-
fetamíns – þögn sló á fólk og menn
litu hver á annan enda fór orð af
Einari Erni sem bindindismanni.
Greinilegt var að fjölskylda Einars
og fleiri i dómsalnum gáfu ekki
mikið fyrir sannleiksgildi þessar-
ar fullyrðingar. Ekki var laust við
að fleirum þætti hún til hreinnar
og beinnar óþurftar fyrir ákærða
sjálfan. Stjórnandi lögreglurann-
sóknarinnar fullyrti síðan að ekk-
ert hefði komið fram um að Ein-
ar hefði neytt neinna fíkniefna. Á
hinn bóginn hefði það verið upp-
lýst að hann hefði verið á móti
áfengisölvun og fíkniefnum –
hann hefði t.d. einungis neytt víns
með mat. Þegar saksóknari spurði
Atla um það hvort einhver annar
gæti staðfest að þeir hefðu neytt
fíkniefna saman sagði Atli að hann
gæti það ekki.
Á meðan hvert vitnið á fætur
öðru var leitt í dómsalinn grúfði
Atli yfirleitt höfuð í greipar sér
með lokuð augu – ekki síst þegar
heimilislæknir fjölskyldu Einars
Arnar og sálfræðingur sambýl-
iskonu hans lýstu líðan fólksins
undanfarna mánuði. n
Foreldrar einars dóu úr sorg
Betri
Svefn
„Atli sat álútur við
hlið lögmanns
sins, leit vart upp, svaraði
gjarnan með lokuð augu
og grúfði höfuðið í greip-
ar sér.
Foreldrar Einars.