Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Síða 65
KYNNING
Polefitness og dans stúdíóið Eríal Pole hefur verið starfandi síðan september 2012 og sérhæfir
sig í ýmsum og fjölbreyttum afbrigð-
um af súludansi. Á allra síðustu árum
hefur þessi líkamsrækt orðið þekktari
og vinsælli. „Þetta hefur verið dálítið
tabú,“ segir Monika Konowski, annar
eigenda Eríal Pole, en hún segir það
ekkert feimnismál að súludans geti
verið erótískur jafnframt því að vera
hörkupúl og mjög holl líkamsrækt:
„Sumar vilja ekki nálgast þetta
sem íþrótt heldur vilja bara dansa.
Við tökum á móti öllum og erum með
alla flóruna í þessu hér. Við erum með
Lyru þar sem notast er við loftfim-
leikahringi og erum svo að fara að
byrja með silki sem er annað loftfim-
leikaáhald. Einnig erum við með Flex
liðleikatíma en þar er áherslan lögð á
aukinn styrk og liðleika.
Síðan er það súlufitness á stigum
eitt til fimm þar sem stig eitt er fyrir
byrjendur og stig fimm fyrir þá sem
eru lengst komnir; þar er lögð mikil
áhersla á að auka styrk og þol og
höfum við séð ótrúlegan árangur hjá
nemendum sem hafa jafnvel engan
bakgrunn í íþróttum. Auk þess erum
við með opna tíma þar sem fólk getur
komið og æft sig sjálft. Jafnframt
erum við með danstíma þar sem
kenndir eru alls konar súludansstíl-
ar, svo sem „contemporary pole“ og
meiri „sensual“ dans. Hjá Eríal Pole
er líka æfingaaðstaða með lóðum og
tækjum þar sem nemendur geta æft
samhliða námskeiðum og einnig er
boðið upp á einkatíma.“
Fjölbreytnin er gífurleg en Eríal
Pole leggur líka mikla áherslu á gæði
kennslunnar og þjálfunarinnar: „Allir
kennararnir hér eru með alþjóðlega
viðurkennd kennararéttindi í faginu
og við förum reglulega í gegnum
símenntun. Kennarar frá Colorado og
New York koma hingað einu sinn á ári
og eru með fjögurra daga námskeið
þar sem við erum átta tíma á dag að
læra á fullu,“ segir Monika.
Súludans og fitness er afar holl lík-
amsrækt og segir Monika að það sem
heillar mest sé að nemendur vinna
eingöngu með sína eigin líkamsþyngd.
Þessi íþrótt stóreykur liðleika, jafn-
vægi og þol auk þess að styrkja mjög
vöðvana. Íþróttin byggir upp langa og
vel tónaða vöðva og eflir líkamsímynd
hjá þeim sem iðka hana af kappi.
Haldnar eru tvær keppnir í súlu-
dansi/polefitness á ári, Pole Theatre,
sem er alþjóðleg keppni og mjög
þekkt innan sportsins, og Pole Fit
Open, sem er innlend keppni.
Eríal Pole er stærsta Pole Fitness
og Pole dansstúdíó á landinu og er
til húsa að Rauðarárstíg 31, Reykja-
vík, í bakhúsi. Nánari upplýsingar eru
veittar í síma 770-2012 en auk þess
eru ítarlegar og áhugaverðar upp-
lýsingar á vefsíðunni erial.is. Þar er
meðal annars að finna stundatöflu,
upplýsingar um kennara, verðskrá og
upplýsingar um alla tíma sem í boði
eru. Næstu námskeið hjá Eríal Pole
hefjast 5. febrúar og því er um að
gera að kynna sér þessa áhugaverðu
íþrótt og skrá sig á spennandi nám-
skeið.
Erótískur dans eða frábær
íþrótt sem kemur þér í toppform
Sætoppur ehf. l Lónsbraut 6 l 220 Hafnarfirði l Sími 551 7170 l www.saetoppur.is