Dagblaðið Vísir - DV - 25.05.2018, Qupperneq 74
74 fólk 25. maí 2018
M
amma þú ert svo miklu
skemmtilegri þegar þú
átt kærasta,“ sagði dótt-
ir mín um daginn þegar
við lágum saman í hrúgu í sóf-
anum og ég dundaði mér við að
fletta gegnum úrvalið á Tinder.
Ég hummaði og umlaði eitthvað
um að þetta væri nú ekki svo ein-
falt, allt þyrfti að smella saman,
áhugi, óskalisti og aðlöðun, bætti
því svo við í skyndibiturð að karl-
menn væru líka upp til hópa spes
og tilfinningalega óaðgengileg-
ir. „Af hverju deitarðu ekki kon-
ur líka?“ spurði hún þá. „Tjah,“
sagði ég hugsi, „mér finnst kon-
ur mjög sætar, mjúkar og æðis-
legar, klárar og skemmtilegar.
En ég hugsa að ég yrði nú seint
ástfangin af konu.“ Hún hvatti mig
þá til að prófa. „Mamma, prófaðu
það bara. Þú getur ekki verið viss
nema þú prófir.“
Fegurðin í komandi kynslóð-
um er mikil. Pælingin er einföld,
elskaðu bara þann sem þú vilt
elska.
Mig grunar að einmitt í dag
séum við að ganga í gegnum
undarlegt ofurskilgreiningar-
tímabil. Við höfum hafnað tví-
hyggjunni varðandi kynhneigð,
að fólk sé annað hvort gagnkyn-
hneigt eða samkynhneigt, og við
höfum meira að segja opnað aug-
un fyrir því að kynin séu fleiri en
tvö. Orð eins og pankynhneigð,
fjölgerva, kynsegin og intersex
eru að verða okkur töm og hafa
meira að segja ratað inn í ræðu
sjálfs forseta Íslands á málþingi
um transbörn og -ungmenni sem
haldið var í Iðnó á dögunum.
Gömlu skilgreiningarnar eru á
undanhaldi og það rýkur úr höfð-
um afturhaldsseggjanna. „Má
þetta ekki bara vera einfalt eins
og í gamla daga? Karlar karlar og
konur konur. Erum við ekki sköp-
uð þannig? Erum við komin í stríð
gegn náttúrunni?“ segja þeir og
hrista sína rykugu hausa.
Þegar ég heyri í þeim rykugu
verður mér einhverra hluta vegna
hugsað til Kristjáns eðlisfræði-
kennara míns úr Hlíðaskóla.
Þegar ég sat í tímum hjá honum
á síðustu öld og lærði um alheim-
inn hélt hann á kennaraprikinu
sínu og benti á mynd af atómi.
Hann útskýrði að heimurinn
væri búinn til úr litlum einingum
sem heita atóm, eða frumeindir.
Kristján benti á kjarnann og út-
skýrði að þar héldu róteindir og
nifteindir til. Svo sveiflaði hann
prikinu kringum kjarnann til að
sýna okkur hvernig æstu rafeind-
irnar mynduðu ský í kring.
Hvað ætli Kristján og aðr-
ir eðlisfræðikennarar hafi gert
þegar tilvist Higgs-bóseindar-
innar var staðfest með hjálp hins
risavaxna hraðals í Cern? Peter
Higgs hafði fyrst spáð fyrir um til-
vist eindarinnar árið 1964 en það
var ekki fyrr en með tilrauninni í
Cern í júlí 2012 að hún var stað-
fest. Áhugasömum má benda á
heimildamyndina Particle Fever
sem nálgast má á Netflix, en þar
er fylgst með vísindafólkinu sem
vann að þessari mjög svo áhuga-
verðu og risavöxnu tilraun sem
staðfesti tilvist þess agnarsmæsta
sem við vitum um í veröldinni.
Hverju ætli Kristján svari þegar
12 ára stelpa réttir upp hönd í eðl-
isfræðitíma og spyr um smæstu
þekktu einingar alheimsins? Ég
efast um að hann hristi hausinn,
hnussi og haldi gömlu ræðuna
um róteindirnar í kjarnanum og
rafeindaskýið. Ég er viss um að
hann hefur uppfært þekkingu
sína og útskýrir fyrir barninu að
líklega séu það kvarkar, meðal
annars Higgs-bóseindin. Kennar-
ar fylgjast nefnilega með, og
stunda endurmenntun, það er
partur af því að vera kennari.
Að bera virðingu fyrir og hlusta
á reynslu annarra er líka partur
af því að vera manneskja. Ef
strætóbílstjórinn í ellefunni fíl-
ar sig meira sem konu í dag og
setur á sig naglalakk í stíl við bíl-
stjórabúninginn – er það ekki
bara frábært? Ef gaurinn á næsta
borði í vinnunni finnur að hann
langar að prófa kynlíf með karl-
manni, má hann það ekki alveg?
Þarf hann að endurskilgreina
kynhneigð sína? Vill hann það?
Ókei… þá má hann það!
Kannski reynist ég sannspá
líkt og Peter Higgs. Kannski hætt-
um við að hafa þörf fyrir skil-
greiningarnar og finnum okkur í
veruleika þar sem fólk fær í alvöru
að elska manneskjur. Núna skul-
um við samt slaka á, anda djúpt
og læra. Læra af fólkinu sem hef-
ur efast um tilverurétt sinn og
upplifað jaðarsetningu vegna tví-
hyggju og stífrar notkunar orða og
vel merktra hólfa. Svona, andið
ofan í maga, þetta er allt í lagi!
Ragnheiður Eiríksdóttir er
hjúkrunarfræðingur og kynlífs-
ráðgjafi hjá Áfalla- og sálfræðim-
iðstöðinni, Hamraborg 11
raggaeiriks@gmail.com
www.raggaeiriks.com
35% auglýsenda í einkamáladálkum
eru giftir
Ummál íslenskra lima í stinningu er að
meðaltali 12,9 cm samkvæmt könnun
Kynlífspressunnar. Það er rúmum sentí-
metra yfir meðaltali í öðrum löndum.
Lengd íslenskra lima er um 15 cm í
stinningu.
Lengsti limur sem mældur hefur
verið á núlifandi manni svo vitað sé
er 32 cm langur.
n Elskaðu þann sem þú vilt elska n Hlustum á reynslu annarra„Ef gaurinn á
næsta borði í
vinnunni finnur að hann
langar að prófa kynlíf
með karlmanni, má hann
það ekki alveg?
Kynhneigðir og
Higgs-bóseindin
Gefið hvort öðru pláss. Þegar við verðum
hluti af pari – biti í stærra púsluspili – er
kannski aldrei mikilvægara að halda í
sitt persónulega líf. Eitt af því yndisleg-
asta sem hægt er að gera fyrir makann
er að leyfa honum að vera einn heima.
Já, bara heima, án þess að neinar kvaðir
fylgi því. Reglulegar fjarvistir beggja
aðila eru líka mikilvægar – þegar maður
saknar verður svo gott að hittast aftur!
Ragnheiður Eiríksdóttir
raggaeiriks@gmail.com
Það er
staðreynd að …
Svona heldur þú
í rómantíkina
Viltu kaupa fasteign á spáni ?
Masa international býður þér í skoðunarferð
til Costa blanCa á spáni, þar seM drauMaeignina
þína gæti Verið að finna
Hafðu samband / S. Jón Bjarni & Jónas 555 0366