Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Page 8
8 21. sept 2018FRÉTTIR
K
onur á þingi eru dýrari en
karlar. Þetta má sjá á út
gefnum tölum um laun og
aðrar kostnaðargreiðslur
til alþingismanna fyrir fyrstu sjö
mánuði ársins. Mikil umræða
hefur verið um laun þingmanna
og annarra embættismanna að
undanförnu enda hafa þeir feng
ið ríflegri hækkanir en flestir aðrir
launþegar og hefur það valdið tölu
verðri ólgu á vinnumarkaði.
DV rýndi í tölurnar til að sjá
hverjir væru dýrustu og ódýrustu
þingmennirnir, dýrustu og ódýr
ustu flokkarnir, muninn á stjórn
og stjórnarandstöðu, pólitískum
skoðunum og kynjunum.
Dýrustu þingmennirnir
n Steingrímur J. Sigfússon –
15.637.222 kr.
n Logi Einarsson –
15.179.363 kr.
n Ásmundur Einar Daðason –
14.459.034 kr.
Þegar DV gerði
úttekt fyrr á ár
inu voru þess
ir þrír í sömu
sætum. Þing
forsetinn Stein
grímur sem
hefur setið
á þingi
síðan
árið
1983 og gegnt flestum ráð
herraembættum á ferli sínum.
Steingrímur er með sömu föstu
laun og ráðherrarnir en fær auk
þess greiðslur fyrir að halda heim
ili í Þistilfirði. Hann hefur þó búið
í Seljahverfinu í Reykjavík í minnst
30 ár.
Logi Einarsson, hjá Samfylkingu,
fær 550 þúsund krónur ofan á þing
fararkaupið fyrir að vera formað
ur í stjórnarandstöðuflokki. Auk
þess heldur hann heimili á Akur
eyri og er í næstefsta sæti í föstum
mánaðar legum greiðslum og hefur
verið í efra laginu á listanum yfir
aðrar greiðslur.
Ásmundur Einar Daðason, fé
lagsmála og nýskipaður barna
málaráðherra, vermir þriðja sætið á
listanum. Hann er bæði ráðherra og
landsbyggðarþingmaður og þiggur
því greiðslur fyrir að halda heimili
í Dalasýslu. Að miklu leyti er annar
kostnaður ráðherra á huldu en það
sem fleytir Ásmundi svo hátt eru
tæplega 400 þúsund króna auka
greiðslur frá Alþingi sem er mun
meira en aðrir ráðherrar fá, en flest
ir þeirra eru með engar.
Ódýrustu þingmennirnir
n Helgi Hrafn Gunnarsson –
7.825.283 kr.
n Björn Leví Gunnarsson –
8.261.657 kr.
n Guðmundur Ingi Kristinsson –
8.263.863 kr.
Píratinn Helgi Hrafn var í fimmta
sæti yfir ódýrustu þingmennina
þegar DV gerði sambærilegan lista
fyrr á árinu. Hefur hann því hert
sultarólina vel í
sumar og lítið
ferðast.
Sömu sögu
má segja um
félaga hans,
Björn Leví,
sem hækkar
úr þriðja
sæti í annað á listanum yfir ódýra
þingmenn. Líkt og Helgi er Björn
Reykjavíkurþingmaður sem ferð
ast lítið, eða að minnsta kosti lítið á
kostnað Alþingis.
Guðmundur Ingi hjá Flokki
fólksins var efstur á listanum í vor
en hrapar nú niður í bronssætið.
Guðmundur er þó langt því frá að
vera eyðslukló. Sem dæmi um út
sjónarsemi Guðmundar má sjá á
vef Alþingis að hann tók innan
landsflug fyrir 905 krónur. Annað
hvort var þetta stysta flug sögunnar
eða þá að hann hefur náð að prútta
vel fyrir Íslands hönd.
Dýrasti þingflokkurinn
n Framsóknarflokkurinn –
12.336.217 kr. að meðaltali
n Vinstri græn –
11.622.957 kr.
n Sjálfstæðisflokkurinn –
11.381.963 kr.
n Samfylkingin –
11.130.111 kr.
Framsóknarmenn eru dýrustu
þingmennirnir og kostuðu þeir
tæpar 99 milljónir þrátt fyrir að vera
aðeins átta talsins. Vega þar lands
byggðarþingmennirnir þungt sem
og þrír ráðherrar flokksins. Eini
þingmaður flokksins í Reykjavík er
einmitt Lilja Dögg menntamálaráð
herra.
Vinstri græn eiga dýrasta þing
manninn, þingforsetann Steingrím
J. Sigfússon, og þrjá ráðherra. Einn
þeirra er Katrín Jakobsdóttir sem er
með hærri grunnlaun en aðrir ráð
herrar. Ástæðan fyrir því að flokk
urinn er ekki efstur er þrír Reykja
víkurþingmenn í ódýrari kantinum.
Litlu munar á meðaltölum Sjálf
stæðisflokks og Samfylkingar, þrátt
fyrir að hinn fyrrnefndi eigi fimm
ráðherra. Hafa verður þó í huga að
aðrir kostnaðarliðir ráðherra en
grunnlaun eru ekki inni í þessum
tölum.
Ódýrasti þingflokkurinn
n Píratar –
9.004.795 kr. að meðaltali
n Viðreisn –
9.690.662 kr.
n Flokkur fólksins –
10.169.925 kr.
n Miðflokkurinn –
10.732.059 kr.
Píratar eru langódýrustu þing
mennirnir. Helsta ástæðan fyrir
því er sú að flestir þeirra koma frá
höfuð borgarsvæðinu. Einnig eru
þeir formannslausir og enginn
þeirra fær því sérstakt formanns
álag í stjórnarandstöðu. Píratar
eiga tvo ódýrustu þingmennina, þá
Helga Hrafn Gunnarsson og Björn
Leví Gunnarsson.
Viðreisn er með lægstan heildar
kostnað þingflokka, aðeins tæp
lega 39 milljónir. Þau eru aðeins
fjögur talsins. Eftir kosningarn
ar árið 2017 missti flokkurinn alla
landsbyggðarþingmenn sína en
hélt stöðu sinni ágætlega á höfuð
borgarsvæðinu. Formaðurinn, Þor
gerður Katrín Gunnarsdóttir, hífir
meðaltalið hins vegar þónokkuð
upp.
Flokkur fólksins er einnig að
eins fjögurra þingmanna flokkur en
þingmennirnir dreifast nokkuð jafn
yfir heildarlistann. Formaðurinn,
Inga Sæland, er í dýrari kantinum
en Guðmundur Ingi Kristinsson er
með þeim ódýrustu. Miðflokkurinn
er merkilega lágur þrátt fyrir sterka
stöðu á landsbyggðinni og eru allir
þingmenn flokksins á svipuðum
slóðum á listanum fyrir utan for
manninn, Sigmund Davíð Gunn
laugsson.
Stjórn og stjórnarandstaða
n Ríkisstjórn –
420.276.633 kr. (11.674.350 að
meðaltali)
n Stjórnarandstaða –
286.506.318 kr. (10.323.368)
Munurinn á stjórnarþingmanni
og stjórnarandstöðuþingmanni
er um 1,3 milljónir á þessum sjö
mánuðum sem Alþingi hefur gefið
út tölur fyrir. Skipta laun ellefu ráð
herra þar miklu og auk þess verð
ur að hafa í huga að Vinstri græn
skipuðu umhverfisráðherrann,
Guðmund Inga Guðbrandsson,
en hann er ekki kjörinn alþingis
maður. Laun hans eru því viðbót
arkostnaður sem ellegar hefði ekki
verið til staðar. Einnig verður að
hafa í huga að allir stjórnarflokk
arnir þrír eru með sterka stöðu á
landsbyggðinni á meðan andstöð
uflokkarnir eru heilt yfir sterkari á
höfuðborgarsvæðinu.
Stjórnmálaskoðanir
n Hægrimenn –
220.874.063 kr. (11.043.703 að
meðaltali)
n Miðjumenn – 214.493.855 kr.
(11.289.150)
n Vinstrimenn – 271.415.033 kr.
(10.856.601)
Ef þingheimi er skipt niður í
blokkir kemur í ljós að mjög lítill
munur er á milli þeirra. Sjálfstæðis
menn og Viðreisn eru til hægri,
Framsóknarflokkur, Miðflokkur og
Flokkur fólksins í miðjunni og Sam
fylkingin, Vinstri græn og Píratar
mynda vinstri blokkina.
Kynin
n Karlar –
424.172.584 kr. (10.604.314 að
meðaltali)
n Konur –
282.610.367 kr. (11.775.431)
Kosningarnar haustið 2017 voru
taldar mikið bakslag í kvenréttinda
baráttunni en þá fækkaði konum
á Alþingi úr 30 niður í 24. Körl
um fjölgaði hins vegar úr 33 í 39
og í þessum tölum er einnig talinn
með karlkyns utanþingsráðherra.
Engu að síður eru þingkonur um
talsvert launahærri en starfsbræður
þeirra og er munurinn rúmlega 1,1
milljón á sjö mánaða tímabili. Hluti
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
DÝRUSTU OG ÓDÝRUSTU ÞINGMENNIRNIR
n Konur dýrari en karlar n Formannsálag drjúgt n Segjast gefa til góðgerðarmála
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
Helgi Hrafn Gunnarsson
Steingrímur J. Sigfússon