Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Síða 8
8 21. sept 2018FRÉTTIR K onur á þingi eru dýrari en karlar. Þetta má sjá á út­ gefnum tölum um laun og aðrar kostnaðargreiðslur til alþingismanna fyrir fyrstu sjö mánuði ársins. Mikil umræða hefur verið um laun þingmanna og annarra embættismanna að undanförnu enda hafa þeir feng­ ið ríflegri hækkanir en flestir aðrir launþegar og hefur það valdið tölu­ verðri ólgu á vinnumarkaði. DV rýndi í tölurnar til að sjá hverjir væru dýrustu og ódýrustu þingmennirnir, dýrustu og ódýr­ ustu flokkarnir, muninn á stjórn og stjórnarandstöðu, pólitískum skoðunum og kynjunum. Dýrustu þingmennirnir n Steingrímur J. Sigfússon – 15.637.222 kr. n Logi Einarsson – 15.179.363 kr. n Ásmundur Einar Daðason – 14.459.034 kr. Þegar DV gerði úttekt fyrr á ár­ inu voru þess­ ir þrír í sömu sætum. Þing­ forsetinn Stein­ grímur sem hefur setið á þingi síðan árið 1983 og gegnt flestum ráð­ herraembættum á ferli sínum. Steingrímur er með sömu föstu laun og ráðherrarnir en fær auk þess greiðslur fyrir að halda heim­ ili í Þistilfirði. Hann hefur þó búið í Seljahverfinu í Reykjavík í minnst 30 ár. Logi Einarsson, hjá Samfylkingu, fær 550 þúsund krónur ofan á þing­ fararkaupið fyrir að vera formað­ ur í stjórnarandstöðuflokki. Auk þess heldur hann heimili á Akur­ eyri og er í næstefsta sæti í föstum mánaðar legum greiðslum og hefur verið í efra laginu á listanum yfir aðrar greiðslur. Ásmundur Einar Daðason, fé­ lagsmála­ og nýskipaður barna­ málaráðherra, vermir þriðja sætið á listanum. Hann er bæði ráðherra og landsbyggðarþingmaður og þiggur því greiðslur fyrir að halda heimili í Dalasýslu. Að miklu leyti er annar kostnaður ráðherra á huldu en það sem fleytir Ásmundi svo hátt eru tæplega 400 þúsund króna auka­ greiðslur frá Alþingi sem er mun meira en aðrir ráðherrar fá, en flest­ ir þeirra eru með engar. Ódýrustu þingmennirnir n Helgi Hrafn Gunnarsson – 7.825.283 kr. n Björn Leví Gunnarsson – 8.261.657 kr. n Guðmundur Ingi Kristinsson – 8.263.863 kr. Píratinn Helgi Hrafn var í fimmta sæti yfir ódýrustu þingmennina þegar DV gerði sambærilegan lista fyrr á árinu. Hefur hann því hert sultarólina vel í sumar og lítið ferðast. Sömu sögu má segja um félaga hans, Björn Leví, sem hækkar úr þriðja sæti í annað á listanum yfir ódýra þingmenn. Líkt og Helgi er Björn Reykjavíkurþingmaður sem ferð­ ast lítið, eða að minnsta kosti lítið á kostnað Alþingis. Guðmundur Ingi hjá Flokki fólksins var efstur á listanum í vor en hrapar nú niður í bronssætið. Guðmundur er þó langt því frá að vera eyðslukló. Sem dæmi um út­ sjónarsemi Guðmundar má sjá á vef Alþingis að hann tók innan­ landsflug fyrir 905 krónur. Annað­ hvort var þetta stysta flug sögunnar eða þá að hann hefur náð að prútta vel fyrir Íslands hönd. Dýrasti þingflokkurinn n Framsóknarflokkurinn – 12.336.217 kr. að meðaltali n Vinstri græn – 11.622.957 kr. n Sjálfstæðisflokkurinn – 11.381.963 kr. n Samfylkingin – 11.130.111 kr. Framsóknarmenn eru dýrustu þingmennirnir og kostuðu þeir tæpar 99 milljónir þrátt fyrir að vera aðeins átta talsins. Vega þar lands­ byggðarþingmennirnir þungt sem og þrír ráðherrar flokksins. Eini þingmaður flokksins í Reykjavík er einmitt Lilja Dögg menntamálaráð­ herra. Vinstri græn eiga dýrasta þing­ manninn, þingforsetann Steingrím J. Sigfússon, og þrjá ráðherra. Einn þeirra er Katrín Jakobsdóttir sem er með hærri grunnlaun en aðrir ráð­ herrar. Ástæðan fyrir því að flokk­ urinn er ekki efstur er þrír Reykja­ víkurþingmenn í ódýrari kantinum. Litlu munar á meðaltölum Sjálf­ stæðisflokks og Samfylkingar, þrátt fyrir að hinn fyrrnefndi eigi fimm ráðherra. Hafa verður þó í huga að aðrir kostnaðarliðir ráðherra en grunnlaun eru ekki inni í þessum tölum. Ódýrasti þingflokkurinn n Píratar – 9.004.795 kr. að meðaltali n Viðreisn – 9.690.662 kr. n Flokkur fólksins – 10.169.925 kr. n Miðflokkurinn – 10.732.059 kr. Píratar eru langódýrustu þing­ mennirnir. Helsta ástæðan fyrir því er sú að flestir þeirra koma frá höfuð borgarsvæðinu. Einnig eru þeir formannslausir og enginn þeirra fær því sérstakt formanns­ álag í stjórnarandstöðu. Píratar eiga tvo ódýrustu þingmennina, þá Helga Hrafn Gunnarsson og Björn Leví Gunnarsson. Viðreisn er með lægstan heildar­ kostnað þingflokka, aðeins tæp­ lega 39 milljónir. Þau eru aðeins fjögur talsins. Eftir kosningarn­ ar árið 2017 missti flokkurinn alla landsbyggðarþingmenn sína en hélt stöðu sinni ágætlega á höfuð­ borgarsvæðinu. Formaðurinn, Þor­ gerður Katrín Gunnarsdóttir, hífir meðaltalið hins vegar þónokkuð upp. Flokkur fólksins er einnig að­ eins fjögurra þingmanna flokkur en þingmennirnir dreifast nokkuð jafn yfir heildarlistann. Formaðurinn, Inga Sæland, er í dýrari kantinum en Guðmundur Ingi Kristinsson er með þeim ódýrustu. Miðflokkurinn er merkilega lágur þrátt fyrir sterka stöðu á landsbyggðinni og eru allir þingmenn flokksins á svipuðum slóðum á listanum fyrir utan for­ manninn, Sigmund Davíð Gunn­ laugsson. Stjórn og stjórnarandstaða n Ríkisstjórn – 420.276.633 kr. (11.674.350 að meðaltali) n Stjórnarandstaða – 286.506.318 kr. (10.323.368) Munurinn á stjórnarþingmanni og stjórnarandstöðuþingmanni er um 1,3 milljónir á þessum sjö mánuðum sem Alþingi hefur gefið út tölur fyrir. Skipta laun ellefu ráð­ herra þar miklu og auk þess verð­ ur að hafa í huga að Vinstri græn skipuðu umhverfisráðherrann, Guðmund Inga Guðbrandsson, en hann er ekki kjörinn alþingis­ maður. Laun hans eru því viðbót­ arkostnaður sem ellegar hefði ekki verið til staðar. Einnig verður að hafa í huga að allir stjórnarflokk­ arnir þrír eru með sterka stöðu á landsbyggðinni á meðan andstöð­ uflokkarnir eru heilt yfir sterkari á höfuðborgarsvæðinu. Stjórnmálaskoðanir n Hægrimenn – 220.874.063 kr. (11.043.703 að meðaltali) n Miðjumenn – 214.493.855 kr. (11.289.150) n Vinstrimenn – 271.415.033 kr. (10.856.601) Ef þingheimi er skipt niður í blokkir kemur í ljós að mjög lítill munur er á milli þeirra. Sjálfstæðis­ menn og Viðreisn eru til hægri, Framsóknarflokkur, Miðflokkur og Flokkur fólksins í miðjunni og Sam­ fylkingin, Vinstri græn og Píratar mynda vinstri blokkina. Kynin n Karlar – 424.172.584 kr. (10.604.314 að meðaltali) n Konur – 282.610.367 kr. (11.775.431) Kosningarnar haustið 2017 voru taldar mikið bakslag í kvenréttinda­ baráttunni en þá fækkaði konum á Alþingi úr 30 niður í 24. Körl­ um fjölgaði hins vegar úr 33 í 39 og í þessum tölum er einnig talinn með karlkyns utanþingsráðherra. Engu að síður eru þingkonur um­ talsvert launahærri en starfsbræður þeirra og er munurinn rúmlega 1,1 milljón á sjö mánaða tímabili. Hluti Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202 Ryðga ekki Brotna ekki HAGBLIKK Álþakrennur & niðurföll Litir á lager: Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt DÝRUSTU OG ÓDÝRUSTU ÞINGMENNIRNIR n Konur dýrari en karlar n Formannsálag drjúgt n Segjast gefa til góðgerðarmála Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is Helgi Hrafn Gunnarsson Steingrímur J. Sigfússon

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.