Dagblaðið Vísir - DV - 21.09.2018, Blaðsíða 29
21. september 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Heils
Vöðvasmiðjan er fyrir-tæki einkaþjálfaranna Erlendar Guðmunds-
sonar og Helenu Pereira.
Bæði eru vel menntuð og
þrautreynd í líkamsræktar-
fræðunum og bjóða upp á
einstaklingsbundna þjálfun
þar sem þau hjálpa fólki við
að ná markmiðum sínum og
gera líkamsrækt að lífsstíl
til frambúðar. Einnig reka
þau vefverslun með líkams-
ræktartæki á síðunni vod-
vasmidjan.is.
Erlendur og Helena þjálfa
bæði í nokkrum stöðvum
World Class. Helena sér-
hæfir sig í þjálfun kvenna og
er þessa dagana að fara af
stað með hópeinkaþjálfun
sem ber heitið Sjálfstraust
& Hraust. Í þeirri þjálfun
er mikið lagt upp úr heil-
brigðri nálgun á hreyfingu
og mataræði ásamt því að
vinna að breyttu hugarfari.
Á Instagram-síðu sinni www.
instagram.com/the_helenap
talar hún mikið um jákvæða
sjálfsmynd og hennar viðhorf
til heilsu. En Helena vill hjálpa
konum að koma jafnvægi á líf
sitt, að vera við góða heilsu
og að líða vel bæði andlega
og líkamlega.
Erlendur sérhæfir sig í
þjálfun karlmanna á besta
aldri, svona upp úr 35 ára.
„Þetta eru gjarnan menn í
annasömum störfum með
fjölskyldu og þeir eiga í erf-
iðleikum með að koma reglu
á mataræði og finna líkams-
ræktinni stað í sinni rútínu. Ég
hef sérhæft mig í að hjálpa
þessum mönnum að kom-
ast í sitt besta form og þá er
mikilvægt að beita einstak-
lingsbundinni nálgun því það
sem hentar einum hentar ekki
endilega öðrum.“
Hvað er það sem knýr fólk
áfram?
Aðspurður segir Erlendur að
meirihluti fólks sem leitar til
þeirra vilji losna við aukakíló.
Mörg dæmi séu þó einnig
um að fólk sem ekki glímir við
ofþyngd hafi samband og
vilji hreinlega bæta almennt
form, styrkja sig og líða
betur. „Annars leggjum við
mikla áherslu á að fitutap og
þyngdartap er ekki endilega
það sama og við einblínum
ekki á töluna á vigtinni. Við
erum líka mikið að vinna
með hugarfarið hjá fólki og
að komast inn fyrir skel-
ina. Hverju vilt þú í rauninni
breyta? Við viljum komast inn
fyrir þessar yfirborðskenndu
ástæður sem byggja á því
hvernig samfélagið segir að
þú eigir að vera. Af hverju
viltu þetta? Er það af því
það er orðið erfitt fyrir þig að
leika við börnin þín? Finnst
þér miður að hafa ekki meiri
orku í vinnunni og daglegu
lífi? Viltu verða fyrirmynd?
Oft eru verkir að hrjá fólk
og það stendur frammi fyrir
því að það er farið að glíma
við heilsuleysi og afleiðingar
hreyfingarleysis langt fyr-
ir aldur fram. Þegar við
komumst að þessum djúpu
ástæðum hjá fólki þá smell-
ur þetta oft saman og hjólin
fara að snúast,“ segir Erlendur.
Mikið aðhald og stuðningur
Vöðvasmiðjan býður upp á
fjarþjálfun, einkaþjálfun og
hópþjálfun. Einkaþjálfun-
in veitir nánasta og besta
aðhaldið en þjálfun í litlum
hópum getur líka verið afar
hvetjandi. Í fjarþjálfun-
inni, sem sumir velja vegna
erfiðrar staðsetningar eða
einfaldlega af fjárhagástæð-
um, kappkosta Erlendur og
Helena að veita mikið aðhald
og stuðning þar sem þau
eru í reglulegu sambandi við
skjólstæðinga sína og hjálpa
þeim að ná tökum á heil-
brigðum venjum. „Okkar fólk
nær árangri vegna þess að
við vinnum með því í að finna
lausnir sem henta því og eig-
um gott samtal vikulega hið
minnsta þar sem við förum
yfir stöðuna, hvernig gekk í
vikunni sem leið og hvort við
þurfum að breyta einhverju
fyrir framhaldið, við erum
ekki að krefja neinn um full-
komnun heldur að við gerum
okkar allra besta til að bæta
okkur viku fyrir viku.“
Erlendur og Helena eru
ekki hrifin af skyndilausnum
og öfgum í mataræði heldur
telja mikilvægt að reyna að
innleiða langtímaumbætur
á mataræði skjólstæðinga
sinna. „Við fræðum fólk um
mat og næringu þannig að
það verði meðvitaðra um
hvað það þarf að borða
mikið miðað við hreyfingu
sína, hvað er í því sem það er
að borða og svo framvegis.
Aðhaldið sem það fær leiðir
síðan til þess að það velur
fremur betri kostinn en þann
verri þegar það stendur
frammi fyrir ákvörðunum um
næringu.“
Erlendur og Helena
leggja metnað sinn í að
gera annasömu fólki kleift
að flétta líkamsrækt inn í líf
sitt, öðlast aukið heilbrigði
og lífsánægju og ná smám
saman markmiðum sínum í
þeim efnum.
Ítarlegar og afar fróðlegar
upplýsingar um starfsemi
Vöðvasmiðjunnar er að finna
á vefsíðunni vodasmidjan.
is og á Instagram-síðunni
www.instagram.com/coach_
erlendur. Fyrsta skrefið í
átt að bættum lífsstíl gæti
verið að fara inn á síðuna
og kanna það sem í boði er.
Gangi þér vel!
Erlendur Guðmundsson og Helena Pereira
VÖÐVASMIÐJAN:
Einstaklingsbundin þjálfun
og langtímaárangur