Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 2
2 30 nóvember 2018FRÉTTIR
K
ettir glæða höfuðborgina
lífi. Sumum fer lítið fyrir á
meðan aðrir valsa um eins
og kóngar í sínum kastala
og líta á heimilisfesti sína sem til-
lögur frekar en annað. Fimm mið-
bæjarkettir hafa vakið sérstaka
athygli á samfélagsmiðlum fyrir
að hafa gert sig heimakomna fjarri
heimkynnum sínum.
Facebook-hópurinn Spottaði
kött nýtur mikilla vinsælda og eru
meðlimir hans yfir tólf þúsund
talsins. Það vekur sérstaka lukku
meðlima hópsins að rekast á einn
af þessum fimm fræknu köttum,
en þeir eru mögulega jafnvel fræg-
ustu kisar landsins. Svona fyrir
utan jólaköttinn.
Kóngurinn Baktus
Frægasti miðbæjarkötturinn er án
efa ferski fressinn Baktus. Hafdís,
eigandi Baktusar, er jafnframt eig-
andi verslunarinnar Gyllti köttur-
inn. Baktus tók einhliða ákvörðun
um að hann væri fyrirtækjaköttur
frekar en einkaköttur og flutt-
ist búferlum frá heimili sínu yfir
á vinnustað Hafdísar. Skipti engu
hvað Hafdís reyndi, Baktus vildi
búa í versluninni. Hann hefur
einnig vanið komur sínar í verslun
Icewear þar sem hann leggur sig
gjarnan á ullarteppi, helst úti í
glugga til að geta fylgst með veg-
farendum og leyft þeim að dást að
sér. Þrátt fyrri að vera í fullu starfi
við að vera krútt þá leyfir Baktus
sér þó stundum að kíkja á pöbba
í nágrenninu, gestum til mikillar
gleði. Myndir af honum má finna
á Instagram undir myllumerkinu
baktusthecat og nýtur hann mik-
illa vinsælda meðal ferðamanna
sem þykir það hinn mesti feng-
ur að ná sjálfu með kattarkonungi
miðbæjarins.
Rósalind Rektor
Háskólakötturinn Rósalind er
gleðigjafi sem hefur vanið kom-
ur sínar í Háskóla Íslands. Hún er
metnaðargjörn læða og eftir að
hafa gert fullnægjandi könnun á
húsakosti og aðstæðum í skólan-
um óð hún beinustu leið inn til
rektors, tilbúin að taka við starf-
inu. Hægt er að fylgjast með
henni undir myllumerkinu #rosa-
lindrektor á Instagram. Rósalind
gleður og kætir háskólanema sem
eru að bugast undan verkefnaskil-
um og próflestri. Hún hefði
kannski frekar átt
að sækjast eftir
stöðu við námsráð-
gjöf?
Ráðhúskötturinn
Emil
Ráðhúskötturinn
Emil er pólitík-
usinn í hópnum.
Hann passar upp á
að borgarstjórnin
hagi sér nú sæmi-
lega í Ráðhúsinu,
töltir svo yfir í
Iðnó þar sem hann
leggst makinda-
lega á stól og leyfir
gestum að dást
að sér. Hann tek-
ur hlutverk sitt í
borgar stjórn mjög alvarlega og
hann hefur því verið „ spottaður“
meðal annars á borgarráðs-
fundi, ársfundi Strætó og núna
síðustu helgi var hann með yfir-
setu á sýningunni Handverk og
Hönnun í ráðhúsinu. Honum er
annt um samborgara sína og eiga
margir honum góðan greiða að
gjalda eftir að hann aðstoðaði þá í
borgar stjórnarkosningunum í maí
síðast liðnum. Aðdáendur Emils
eru duglegir að deila myndum
af honum á áðurnefndum hóp,
Spottaði kött.
Kötturinn Púki
Kötturinn Púki kattarvaktar
Laugarveginn. Myndir af Púka
sem deilt hefur verið á samfélags-
miðlum segja nánast sögu og má
vel sjá fyrir sér týpískan mánu-
dag hjá honum. Mættur klukkan
10 í vinnuna á ferðaskrifstof-
unni Around Iceland. Í hádeginu
bregður hann sér yfir í Mál og
menningu þar sem hann skoðar
nýjustu bókartitlana og fær sér bita
á kaffihúsinu Rúblunni. Eftir vinnu
bregður hann sér til eldri borgar-
anna á Vitatorgi en að því loknu
er gott að slappa af. Skellir hann
sér þá á uppáhaldsbarinn sinn,
Lebowski bar, áður en hann skellir
sér heim. Púki er á Facebook undir
nafninu Púki Kotturrinn.
Ófelía, drottning
Skólavörðustígs
Ófelía heldur til á Skólavörðustíg.
Hún er tignarleg í útliti, af svo-
nefndu ragdoll-kyni og vekur
athygli fyrir fallega loðna feldinn
sinn og himinblá augu. Hún er
einkum fræg fyrir smáglæpi, leik-
list og fyrirsætustörf. Henni brá
fyrir í kvikmyndinni Undir trénu í
hlutverki sem skipti sköpum fyrir
söguþráðinn. Ekki hefur hún þó
fengið mikið borgað fyrir hlut-
verkið en hún hefur ofan í sig með
harðfiskþjófnaði, starfsmönnum
Krambúðarinnar til gleði-
blandinnar mæðu. Vinsælt er að
smella af henni mynd enda ekki
oft sem maður hittir fyrir bláeygða
hefðarketti sem þar að auki eru
frægir leikarar. n
Á þessum degi,
30. nóvember
1718 – Karl XII., konungur Svíþjóðar,
deyr á meðan umsátur virkisins Fred-
riksten í Noregi stendur yfir.
Síðustu orðin
„Ekki láta þetta enda
svona. Segið að ég hafi
sagt eitthvað.“
– Mexíkóski byltingarmaðurinn
Pancho Villa (1878–1923)
1872 – Fyrsti milliríkjaknattspyrnuleik-
ur sögunnar fer fram á Hamilton
Crescent í Glasgow. Skotar og
Englendingar öttu kappi og lokatölur
voru 0-0.
1979 – The Wall, rokkópera hljóm-
sveitarinnar Pink Floyd, er gefin út.
1966 – Barbados fær sjálfstæði frá
Bretlandi.
1995 – Eyðimerkurstormi, sameigin-
legum hernaði 35 ríkja gegn Írak, er sagt
formlega lokið.
sem Klausturþingmennirnir töluðu ekki illa um
Ummæli þingmannanna sex sem
hittust á Klaustur Bar í síðustu
viku hafa vakið mikla athygli. Í
upptökum sem DV hefur undir
höndum láta fjórir þingmenn
Miðflokksins og tveir þingmenn
Flokks fólksins ýmis ljóst orð falla
um hina og þessa. Eins og Gunnar
Bragi Sveinsson, þingflokksfor-
maður Miðflokksins, orðaði það
á fimmtudag þá var hann með
„langan lista af fólki til að biðjast
afsökunar“. DV tók saman nokkra
einstaklinga sem þingmennirnir
töluðu ekki illa um.
Engin Ípekoglu
Þingmennirnir töluðu
ekki illa um tyrkneska
markmanninn Engin
İpekoİlu. Það má því
fullyrða að Engin
hafi ekki fengið það
óþvegið.
Birgitta Haukdal
Þingmennirnir minnt-
ust ekki einu slæmu
orði á söngkonuna og
barnabókahöfundinn
Birgittu Haukdal.
Sven Bergmann
Ef ekki hefði verið
fyrir viðtal sænska
blaðamannsins Svens
Bergmann í Ráðherra-
bústaðnum vorið 2016
þá gæti vel verið að
Sigmundur Davíð væri
enn forsætisráðherra.
Það var samt ekki
talað illa um Sven.
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Sigmundur er vissu-
lega umdeildur meðal
þjóðarinnar en ekki í
þessum hópi, hugsan-
lega þar sem hann er
hluti af hópnum. Það
bara talað vel um hann
á upptökunum.
Dagur B.
Eggertsson
Það má segja að fáir ef
einhverjir í Miðflokkn-
um og Flokki fólksins
séu hrifnir af borgar-
stjóra Reykjavíkur,
þingmennirnir töluðu
þó ekki illa um hann – í
þetta skiptið.
Kettirnir sem eiga miðbæinn
Erla Dóra
erladora@dv.is
Kóngurinn Baktus
Rósalind Rektor
Ráðhúskötturinn Emil
Kötturinn Púki
Ófelía, drottning Skólavörðustígs