Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 24

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Blaðsíða 24
24 FÓLK - VIÐTAL 30 nóvember 2018 G uðrún Straumfjörð er fædd árið 1911 og því 107 ára gömul í dag. Er hún næstelsti núlifandi Ís­ lendingurinn en man æsku sína líkt og hún hefði gerst í gær. Minnstu munaði að Guðrún hefði aðeins náð fimm ára aldri því hún veiktist illilega. Síðan þá hefur heilsan verið góð og lukkan mik­ il. Hún er mikill húmoristi og seg­ ir langlífi sitt helst til komið vegna þess hversu lítið hún hefur borðað af ávöxtum og grænmeti. Líkbílarnir á ferð allan sólarhringinn Faðir hennar var skósmiður með stofu við Laugaveginn og fyrstu árin bjó fjölskyldan við Grettis­ götu. Þegar Guðrún var fimm ára gömul tók faðir hennar við hús­ vörslu í gamla pósthúsinu í Austur­ stræti. Þar bjó Guðrún þangað til hún var 23 ára. Ævin hefði hæg­ lega getað orðið mun styttri því að árið 1916 veiktist Guðrún illilega. „Þegar ég var fimm ára fékk ég lungnabólgu og varð mjög veik. Það var vakað yfir mér og læknir að nafni Thoroddsen kom og sinnti mér. Eitt kvöldið var ég svo veik að hann sagði: Ef hún kemst yfir þessa nótt verður henni borg­ ið á lífsleiðinni. Það hefur sannast. Ég hef verið mjög heilsugóð eftir þetta.“ Árið 1918 var örlagaár á Íslandi. Þá geisaði frostaveturinn mikli, Katla gaus, fyrri heimsstyrjöldinni lauk, spænska veikin geisaði og landið fékk fullveldi frá Dönum. Þetta ár var Guðrún sjö ára. „Ég man vel eftir þessum tíma,“ segir hún og minnist sérstaklega frosthörkunnar. „Eitt sinn stóð ég á horni Klapparstígs og Grettisgötu og sá niður alla götuna út á sjó. Það var allt frosið út á Viðeyjar­ sund og fólk var á göngu á ísnum út í Viðey. Ég man að kuldinn var mikill og þetta hlýtur að hafa verið erfiður tími fyrir fólk.“ Guðrún man einnig glöggt eft­ ir spænsku veikinni enda fékk hún veikina sjálf. „Ég sjálf slapp ansi vel. Pabbi minn fékk veikina, en mamma ekki. Þetta var hryllilegt. Þegar maður leit út á götu sá maður alltaf líkvagnana á ferðinni. Allan daginn, frá morgni til kvölds. Ég sá þá aldrei nema þegar spænska veikin geisaði.“ Misstir þú ættingja eða vini? „Já, en ekki nærkomna ætt­ ingja.“ Litlir peningar til fyrir jólin Guðrún stundaði nám við Barna­ skólann við Tjörnina. Í æsku henn­ ar voru nútímaþægindi smám saman að verða að veruleika. Vatnsveitan var komin en ekki raf­ lýsingin þegar Guðrún man fyrst eftir sér. Heimilið var upplýst með olíulömpum og kynt með gasi. Seinna komu raflamparnir. Fjöl­ skyldan keypti matvörur hjá Zim­ sen á Lækjartorgi og föt hjá Mar­ teini kaupmanni við Laugaveg. Hvernig voru jólin á þessum tíma? „Þau voru róleg og góð. Ég var einbirni og við vorum þrjú heima. Það var ekki sama verslunarbrjál­ æðið eins og í dag. Fólk hafði ekki peninga og það var dýrt í gamla daga, að manni þótti. Til dæm­ is vínarbrauð. Hvað heldur þú að vínarbrauð hafi kostað, sundur­ skorið? Það kostaði tólf aura sem þótti mikill peningur.“ Manstu eftir einhverjum jóla- gjöfum? „Það voru dúkkur aðallega. Seinna fóru stelpur að hætta að leika sér með dúkkur og fóru að leika sér með bangsa. Ég fékk líka alltaf nýjan kjól. Þá var ekkert síð­ buxnastand komið hjá fólki. Alltaf kjólar.“ Hvað var borðað? „Lambasteik, mjög góð. Alltaf súpa eða jólagrautur með, grjóna­ grautur,“ segir Guðrún. Hvað gerðir þú þér til skemmt- unar? „Það var nú ekki mikið hægt að gera sér til skemmtunar. Ég fór ekkert út að dansa enda hafði ég ekki gaman af því. Þegar ég var búin að borða klukkan átta fór ég gjarnan á rúntinn svokallaða til tíu, þá með annarri vinkonu. Við gengum frá horninu á Lækjar­ götu og Austurstræti að Herkastal­ anum og til baka. Fram og aftur í tvo tíma. Þetta var ánægjan,“ segir Guðrún og glottir. „Mér var sagt að ef ég yrði ekki komin heim á rétt­ um tíma yrði húsinu lokað. Það hefði aldrei verið gert, en ég þorði ekki annað en að hlýða.“ Guðrún nam eitt ár í verslun­ arskóla og starfaði eftir það aðal­ lega við skrifstofustörf í Reykjavík. Lengst af vann hún sem gjaldkeri hjá Skipaútgerð ríkisins, í meira en tuttugu ár. Hún kynntist eigin­ manni sínum, Ólafi, á vinnustað hans, í heildverslun Garðars Gísla­ sonar. „Okkur vantaði aldrei neitt og höfðum það þokkalegt,“ segir hún. Sigldu fram hjá kafbátunum Guðrún man glöggt hvar hún var þegar seinni heimsstyrjöldin braust út. Þann 1. september árið 1939 þegar skriðdrekar Hitlers stormuðu inn í Pólland. „Ég og maðurinn minn höfð­ um verið í heimsókn hjá kunn­ ingjum okkar í Þýskalandi. Við vorum á leiðinni heim aftur. Við þvældumst í eina viku á Norður­ sjónum í vondu veðri. Þá var fullt af kafbátum ofansjávar en við viss­ um ekkert hvað þetta var, enda kom okkur það ekki við. Þegar við komum heim til Íslands fengum við fyrst að heyra að stríðið hefði brotist út.“ Guðrún segir að Reykjavík hafi verið að breytast mikið á þessum árum. Úr bæ í borg og fólk flutti af landsbyggðinni. Hernámið og stríðið sjálft hafði hins vegar ekki mikil áhrif á líf hennar og stríðs­ gangurinn var sjaldan ræddur á hennar heimili. Guðrún og Ólafur eignuðust son árið 1941, Jón Þ. Ólafsson. „Hann er mikill íþróttamaður og fór á Ólympíuleikana árið 1964 í Tókýó.“ Jón keppti þar í hástökki og var valinn íþróttamaður ársins. Þú hefur væntanlega verið mjög stolt af honum? „Auðvitað var ég það. Ég fylgd­ ist með öllum íþróttum og var sjálf í leikfimi í gamla daga hjá Í.R. í mörg ár. Hann er mér til heiðurs, sonur minn.“ Ferðaðist þú mikið? „Já, ég ferðaðist óstjórnlega mikið. Ég hef komið til fimmtán landa. Þegar ég var sextug fór ég til Kanada og hélt upp á afmælið mitt þar. Það er annar af tveimur falleg­ ustu stöðum sem ég hef komið á. Hinn er Júgóslavía. Borg þar sem heitir Bled.“ Ávextir og grænmeti óæti Er langlífi í ættinni? „Nei. Faðir minn féll og höfuð­ kúpubrotnaði og móðir mín fór úr hjartabilun. Hjartabilun er í ætt­ geng hjá okkur.“ Hverju þakkar þú þitt langlífi? „Ég grínaðist með það í gamla daga að ég væri svona hraust af því að ég borðaði ekki grænmeti eða ávexti. Pabbi minn kynntist dönskum háseta hjá Íslandsskip­ um sem sigldu á milli Íslands og Dan merkur. Hann kom eitt sinn með epli handa mér en það var svo hart að ég gat ekki tuggið það. Þá hét ég að borða aldrei epli framar. Í annað skipti kom hann með app­ elsínu og hún var svo súr að það fór sömu leið. Ég hef lítið borðað af grænmeti á lífsleiðinni. Aðeins hvítkál og blómkál.“ Guðrún segist aldrei hafa reykt um ævina. „Áfengi hef ég smakk­ að ef mér hefur verið boðið það.“ n Kaldunnin þorsklifrarolía Íslensk framleiðsla 120/180 60 220 ml Dropi af náttúrunni „Fyrir mér er Dropi heilindi og lífsorka” Lykill að langlífi er að borða hvorki ávexti né grænmeti n Guðrún Straumfjörð er 107 ára n Veiktist af spænsku veikinni og man frostaveturinn „Ef hún kemst yfir þessa nótt verð- ur henni borgið á lífsleiðinni Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.