Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 24
24 FÓLK - VIÐTAL 30 nóvember 2018
G
uðrún Straumfjörð er
fædd árið 1911 og því 107
ára gömul í dag. Er hún
næstelsti núlifandi Ís
lendingurinn en man æsku sína
líkt og hún hefði gerst í gær.
Minnstu munaði að Guðrún hefði
aðeins náð fimm ára aldri því hún
veiktist illilega. Síðan þá hefur
heilsan verið góð og lukkan mik
il. Hún er mikill húmoristi og seg
ir langlífi sitt helst til komið vegna
þess hversu lítið hún hefur borðað
af ávöxtum og grænmeti.
Líkbílarnir á ferð allan
sólarhringinn
Faðir hennar var skósmiður með
stofu við Laugaveginn og fyrstu
árin bjó fjölskyldan við Grettis
götu. Þegar Guðrún var fimm ára
gömul tók faðir hennar við hús
vörslu í gamla pósthúsinu í Austur
stræti. Þar bjó Guðrún þangað til
hún var 23 ára. Ævin hefði hæg
lega getað orðið mun styttri því að
árið 1916 veiktist Guðrún illilega.
„Þegar ég var fimm ára fékk ég
lungnabólgu og varð mjög veik.
Það var vakað yfir mér og læknir
að nafni Thoroddsen kom og
sinnti mér. Eitt kvöldið var ég svo
veik að hann sagði: Ef hún kemst
yfir þessa nótt verður henni borg
ið á lífsleiðinni. Það hefur sannast.
Ég hef verið mjög heilsugóð eftir
þetta.“
Árið 1918 var örlagaár á Íslandi.
Þá geisaði frostaveturinn mikli,
Katla gaus, fyrri heimsstyrjöldinni
lauk, spænska veikin geisaði og
landið fékk fullveldi frá Dönum.
Þetta ár var Guðrún sjö ára.
„Ég man vel eftir þessum tíma,“
segir hún og minnist sérstaklega
frosthörkunnar. „Eitt sinn stóð ég á
horni Klapparstígs og Grettisgötu
og sá niður alla götuna út á sjó.
Það var allt frosið út á Viðeyjar
sund og fólk var á göngu á ísnum
út í Viðey. Ég man að kuldinn var
mikill og þetta hlýtur að hafa verið
erfiður tími fyrir fólk.“
Guðrún man einnig glöggt eft
ir spænsku veikinni enda fékk hún
veikina sjálf.
„Ég sjálf slapp ansi vel. Pabbi
minn fékk veikina, en mamma
ekki. Þetta var hryllilegt. Þegar
maður leit út á götu sá maður
alltaf líkvagnana á ferðinni. Allan
daginn, frá morgni til kvölds. Ég
sá þá aldrei nema þegar spænska
veikin geisaði.“
Misstir þú ættingja eða vini?
„Já, en ekki nærkomna ætt
ingja.“
Litlir peningar til fyrir jólin
Guðrún stundaði nám við Barna
skólann við Tjörnina. Í æsku henn
ar voru nútímaþægindi smám
saman að verða að veruleika.
Vatnsveitan var komin en ekki raf
lýsingin þegar Guðrún man fyrst
eftir sér. Heimilið var upplýst með
olíulömpum og kynt með gasi.
Seinna komu raflamparnir. Fjöl
skyldan keypti matvörur hjá Zim
sen á Lækjartorgi og föt hjá Mar
teini kaupmanni við Laugaveg.
Hvernig voru jólin á þessum
tíma?
„Þau voru róleg og góð. Ég var
einbirni og við vorum þrjú heima.
Það var ekki sama verslunarbrjál
æðið eins og í dag. Fólk hafði ekki
peninga og það var dýrt í gamla
daga, að manni þótti. Til dæm
is vínarbrauð. Hvað heldur þú að
vínarbrauð hafi kostað, sundur
skorið? Það kostaði tólf aura sem
þótti mikill peningur.“
Manstu eftir einhverjum jóla-
gjöfum?
„Það voru dúkkur aðallega.
Seinna fóru stelpur að hætta að
leika sér með dúkkur og fóru að
leika sér með bangsa. Ég fékk líka
alltaf nýjan kjól. Þá var ekkert síð
buxnastand komið hjá fólki. Alltaf
kjólar.“
Hvað var borðað?
„Lambasteik, mjög góð. Alltaf
súpa eða jólagrautur með, grjóna
grautur,“ segir Guðrún.
Hvað gerðir þú þér til skemmt-
unar?
„Það var nú ekki mikið hægt
að gera sér til skemmtunar. Ég
fór ekkert út að dansa enda hafði
ég ekki gaman af því. Þegar ég var
búin að borða klukkan átta fór ég
gjarnan á rúntinn svokallaða til
tíu, þá með annarri vinkonu. Við
gengum frá horninu á Lækjar
götu og Austurstræti að Herkastal
anum og til baka. Fram og aftur í
tvo tíma. Þetta var ánægjan,“ segir
Guðrún og glottir. „Mér var sagt að
ef ég yrði ekki komin heim á rétt
um tíma yrði húsinu lokað. Það
hefði aldrei verið gert, en ég þorði
ekki annað en að hlýða.“
Guðrún nam eitt ár í verslun
arskóla og starfaði eftir það aðal
lega við skrifstofustörf í Reykjavík.
Lengst af vann hún sem gjaldkeri
hjá Skipaútgerð ríkisins, í meira
en tuttugu ár. Hún kynntist eigin
manni sínum, Ólafi, á vinnustað
hans, í heildverslun Garðars Gísla
sonar.
„Okkur vantaði aldrei neitt og
höfðum það þokkalegt,“ segir hún.
Sigldu fram hjá kafbátunum
Guðrún man glöggt hvar hún
var þegar seinni heimsstyrjöldin
braust út. Þann 1. september árið
1939 þegar skriðdrekar Hitlers
stormuðu inn í Pólland.
„Ég og maðurinn minn höfð
um verið í heimsókn hjá kunn
ingjum okkar í Þýskalandi. Við
vorum á leiðinni heim aftur. Við
þvældumst í eina viku á Norður
sjónum í vondu veðri. Þá var fullt
af kafbátum ofansjávar en við viss
um ekkert hvað þetta var, enda
kom okkur það ekki við. Þegar við
komum heim til Íslands fengum
við fyrst að heyra að stríðið hefði
brotist út.“
Guðrún segir að Reykjavík hafi
verið að breytast mikið á þessum
árum. Úr bæ í borg og fólk flutti
af landsbyggðinni. Hernámið og
stríðið sjálft hafði hins vegar ekki
mikil áhrif á líf hennar og stríðs
gangurinn var sjaldan ræddur á
hennar heimili. Guðrún og Ólafur
eignuðust son árið 1941, Jón Þ.
Ólafsson.
„Hann er mikill íþróttamaður
og fór á Ólympíuleikana árið 1964
í Tókýó.“ Jón keppti þar í hástökki
og var valinn íþróttamaður ársins.
Þú hefur væntanlega verið
mjög stolt af honum?
„Auðvitað var ég það. Ég fylgd
ist með öllum íþróttum og var sjálf
í leikfimi í gamla daga hjá Í.R. í
mörg ár. Hann er mér til heiðurs,
sonur minn.“
Ferðaðist þú mikið?
„Já, ég ferðaðist óstjórnlega
mikið. Ég hef komið til fimmtán
landa. Þegar ég var sextug fór ég til
Kanada og hélt upp á afmælið mitt
þar. Það er annar af tveimur falleg
ustu stöðum sem ég hef komið á.
Hinn er Júgóslavía. Borg þar sem
heitir Bled.“
Ávextir og grænmeti óæti
Er langlífi í ættinni?
„Nei. Faðir minn féll og höfuð
kúpubrotnaði og móðir mín fór úr
hjartabilun. Hjartabilun er í ætt
geng hjá okkur.“
Hverju þakkar þú þitt langlífi?
„Ég grínaðist með það í gamla
daga að ég væri svona hraust af
því að ég borðaði ekki grænmeti
eða ávexti. Pabbi minn kynntist
dönskum háseta hjá Íslandsskip
um sem sigldu á milli Íslands og
Dan merkur. Hann kom eitt sinn
með epli handa mér en það var svo
hart að ég gat ekki tuggið það. Þá
hét ég að borða aldrei epli framar.
Í annað skipti kom hann með app
elsínu og hún var svo súr að það
fór sömu leið. Ég hef lítið borðað
af grænmeti á lífsleiðinni. Aðeins
hvítkál og blómkál.“
Guðrún segist aldrei hafa reykt
um ævina. „Áfengi hef ég smakk
að ef mér hefur verið boðið það.“ n
Kaldunnin þorsklifrarolía
Íslensk framleiðsla
120/180
60
220 ml
Dropi af
náttúrunni
„Fyrir mér er
Dropi heilindi og
lífsorka”
Lykill að langlífi er að borða
hvorki ávexti né grænmeti
n Guðrún Straumfjörð er 107 ára n Veiktist af spænsku veikinni og man frostaveturinn
„Ef hún
kemst yfir
þessa nótt verð-
ur henni borgið á
lífsleiðinni
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is