Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 31

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 31
Bækur og menning 30. nóvember 2018 KYNNINGARBLAÐ Ástarsögudrottingin með ódýrustu jólabækurnar Rauða serían varð til í kreppunni 1985 þegar við hjónin fórum að gefa út nokkrar bækur í Rauðu seríunni hjá prentsmiðjunni Ásprent á Akureyri. Viðtökurnar fóru fram úr væntingum og landsmenn tóku framtakinu fagnandi. Þarna hafði verið gat í markaðnum og bækurnar rokseldust,“ segir Rósa Guðmundsdóttir, eigandi Ásútgáfunnar. Ásútgáfan hefur nú þegar gefið út 2.547 titla og er ekkert lát á. Útgáfan hefur séð landanum fyrir ástarsögum, örlagasögum, sögum um ástir og afbrot, undirferli og óvissu í hartnær 33 ár. Handhægar bækur Þegar útgáfan hófst var ekki hægt að kaupa vasabrotsbækur á íslensku. „Mér fannst það ósanngjarnt. Við leggjum áherslu á að bækurnar séu ódýrar svo allir hafi efni á að kaupa þær. Þess má geta að við erum án alls vafa með ódýrustu jólabækurnar. Einnig viljum við að bækurnar séu handhægar svo hægt sé að stinga þeim í veskið eða vasann. Svo skemmir ekki fyrir að við gefum bækurnar út sem rafbækur og hljóðbækur samhliða prentuðu útgáfunum. Fólk hefur tekið þessu afar vel,“ segir Rósa. Gerir nokkur bókaútgáfa betur? Fólk trúði ekki að þetta gæti gengið þegar Rósa byrjaði með rafbókabúðina. Það hélt að prentuðu bækurnar myndu hætta að seljast en það var fjarri lagi. Það er alveg nýr lesendahópur sem kaupir rafbækur. Margir Íslendingar sem búa erlendis vilja lesa á íslensku. Svo er eldra fólkið sem hefur alltaf lesið bækurnar en sér illa. En það getur lesið á spjaldtölvu. „Ég sendi þeim bækurnar í Word-skjali svo það þurfi ekki að hala þeim niður af netinu. Það er mjög vinsælt að gefa spjaldtölvu með áskrift að bókum í jólagjöf,“ segir Rósa. „Eftir að rafbók hefur verið keypt er alltaf hægt að sækja hana aftur inn á „mínar síður“ í rafbókabúðinni í hvaða tölvu sem er. Margir kaupa 10–15 rafbækur áður en farið er í frí og lesa svo í rólegheitum í spjaldtölvunni á ströndinni eða bústaðnum sem hefur ekkert internet. Stundum kemur á daginn að fólk uppgötvar að það vanti kannski eina bók í einhverri seríu. Þá má bóka að hún er til í rafbókabúðinni því þær eru alltaf til þar,“ segir Rósa. Fjölskyldusögur Ásútgáfan fær sendar 60 nýjar bækur á ensku í mánuði frá bókaútgáfunni Harlequin Enterprises og les Rósa um 15–20 bækur mánaðarlega til að velja í flokkana. Þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir og það vita lesendur. Rósa leggur líka upp úr því að gefa út fjölskyldusögur sem koma saman í seríum. „Ég bíð stundum hátt í fjögur ár eftir því að safna saman í seríu, því hver höfundur skrifar sjaldan meira en tvær bækur á ári um sömu fjölskylduna. Ég geymi bækurnar þangað til þær eru allar komnar og þá gef þær út allar í röð. Lesendur mínir vilja flestir lesa alla seríuna í einum rykk og láta ekki bjóða sér að fá 1–2 bækur á ári í fjögur ár. Við höfum svo alltaf lagt mikið upp úr því að hafa bækurnar á góðri íslensku og erum svo heppin að eiga frábæra og vel menntaða þýðendur. Góð þýðing er undirstaða góðrar bókar,“ segir Rósa. Hverjir lesa bækurnar? Rósa segir að fólk úr öllum stigum samfélagsins lesi bækurnar frá Ásútgáfunni. „Menntun virðist ekki skipta nokkru máli, það er engin tenging. Þeir sem sinna krefjandi störfum eru oft andlega þreyttir þegar þeir koma heim og vilja hvíla heilann. Það vita líka flestir hvað það er gott að lesa fyrir svefninn því þá sofnar maður í friði. Ég ræddi til dæmis við lækni sem sagði lestur virka eins og svefnpillu, þú einbeitir þér að lestrinum og gleymir öllum þínum vandamálum á meðan. Í dag er töluverð endurnýjun í lesendahópnum. Unga fólkið kynnist sögunum í sumarbústaðnum hjá ömmu og margir byrja að lesa bækurnar um þrítugt, þá komnir með börn og fjölskyldu. Það er líka ótrúlegt að 98% af lesendunum mínum lesa allar sex bækurnar sem koma út í hverjum mánuði,“ segir Rósa Stéttaskipting í bókmenntaumræðu „Þegar maður fylgist með bókmenntaumfjöllun í dag er ljóst að þar finnst skýr stéttaskipting. Mér hefur alltaf þótt skrítið að bækurnar okkar hafa aldrei fengið pláss í Kiljunni. Við vitum að lesendur okkar eru jafnmargir og þeir eru misjafnir. Bækurnar eru að sama skapi ólíkar og það skal enginn segja mér að engin þeirra sé nógu góð til þess að hún verðskuldi umfjöllun. Afleiðingarnar eru að fólk telur þetta ekki til bókmennta og hálfskammast sín fyrir að líta í bók úr Rauðu seríunni. Sem er algerlega fráleitt. Auðvitað eru þetta bókmenntir ekki síður en allar glæpasögurnar sem koma út ár hvert, eða bækurnar hennar Guðrúnar frá Lundi. Þær voru ekki álitnar góðar bókmenntir hér áður og margir skömmuðust sín fyrir að lesa þær. En í dag hafa þær fengið uppreist æru. Ég skora á bókmenntaunnendur sem hafa ekki enn dottið í Rauðu seríuna að líta í nokkrar bækur og sjá hvort þar leynist ekki gimsteinar. Sjálf veit ég að bækurnar eru frábærar, enda vel ég þær sjálf. En það á ekki að þurfa að skammast sín fyrir að lesa það sem maður hefur unun að,“ segir Rósa. Hvernig sögur eru þetta? Bækurnar sem koma út frá Ásútgáfunni lúta ákveðnum lögmálum og væntingum sem verður að uppfylla. „Í fyrsta lagi þarf að vera efni í henni, á blaðsíðu 15 þarf að vera komin spenna. Við stílum inn á rómantíkina en yfirleitt eiga sögupersónur við einhver vandamál að stríða. Sagan þarf að ganga upp og fólk verður að ná saman í lokin. Allar mínar bækur enda vel. Fólk vill ekki vera skilið eftir í uppnámi með óljós endalok. Við lesum til að öðlast gleði, ekki til að búa til ný vandamál. Saga sem gerist í Reykjavík Sögurnar innihalda langflestar sterkar persónur, bæði karla og konur. Það eru lögreglukonur, kvenkyns hermenn og karlarnir eru engar mannleysur. Þetta eru samt ekki bara sakleysingjar, það eru líka fúlmenni og illkvendi. Svo er gaman að segja frá því að aðalpersóna í bók sem kemur út eftir áramótin er bresk kona. Hún er læknir sem kemur til Íslands til að vinna á Landspítalanum. Þar kynnist hún íslenskum björgunarsveitarmanni sem hefur slasast í þyrluslysi. Sagan gerist á Íslandi. Það finnst mér frábært,“ segir Rósa. Bækurnar frá Ásútgáfunni má finna í öllum bestu bókabúðum landsins sem og fjölmörgum matvöruverslunum. Nánari upplýsingar má nálgast á asutgafan.is n
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.