Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Qupperneq 38
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Einn miði – Þrjú söfn!
Listasafn Íslands, Fríkirkjuvegi 7 við Tjörnina
Safn Ásgríms Jónssonar, Bergstaðastræti 74
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar, Laugarnestanga 70
LISTASAFN ÍSLANDS VIÐ TJÖRNINA:
Upplifun á aðventu
Listasafn Íslands er þjóðlistasafn og leggur megináherslu á 19. og 20. aldar list, íslenska og erlenda. Það
á merkasta safn íslenskra verka hér á
landi og eftir alla helstu myndlistarmenn
þjóðarinnar. Það hefur einnig að geyma
vaxandi safn erlendra verka eftir
heimsfræga listamenn, svo sem Pablo
Picasso, Edvard Munch, Karel Appel,
Hans Hartung, Victor Vasarely, Richard
Serra og Richard Tuttle.
Listasafn Íslands heldur að staðaldri
fjölbreyttar sýningar sem endurspegla
listaverkaeign þess. Auk þess efnir það
árlega til víðtækra sérsýninga á verkum
íslenskra sem erlendra listamanna. Í
tengslum við þær eru gefin út ítarleg og
vönduð rit.
Listasafn Íslands við Tjörnina
Í dag eru fjórar mjög ólíkar sýningar í
safninu. Fullveldissýningin Lífsblómið
fjallar um fullveldi Íslands í 100 ár.
Að sýningunni standa Stofnun Árna
Magnússonar í íslenskum fræðum,
Þjóðskjalasafn Íslands og Listasafn
Íslands. Handrit, skjöl og myndlistarverk
frá þessum stofnunum mynda kjarnann
í sýningunni. Auk þess hafa önnur
söfn og stofnanir, sem og einkaaðilar,
bæði hér á landi og í Danmörku,
lánað verk á sýninguna. Myndlistin
ljær umræðunni um ýmis átakamál
á fullveldistímanum rödd og ýmsar
sögulegar heimildir veita okkur aðgang
að hugsun og lífi genginna kynslóða.
Í hjarta sýningarinnar er að finna
handrit og mikilvæg skjöl er varða
íslenska menningu og snerta sjálfsmynd
þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttuna og
fullveldi þjóðarinnar.
Fjársjóður þjóðar
Í fórum Listasafns Íslands eru á tólfta
þúsund verka af ýmsum gerðum, frá
ýmsum löndum og ýmsum tímum. Á
sýningunni Fjársjóður þjóðar er dágott
úrval verka úr þessari safneign, sem
gefur yfirlit yfir þróun myndlistar á
Íslandi frá öndverðri nítjándu öld til
okkar daga. Með um það bil áttatíu
listaverkum er dregin fram fjölbreytni
þeirra miðla og stílbrigða sem einkenna
þessa stuttu en viðburðaríku sögu.
Fyrstu áratugina byggðist safneign
Listasafns Íslands einvörðungu upp á
gjöfum, málverkum eftir höfðinglega
erlenda listamenn, einkum danska
og norræna, en upp úr þar síðustu
aldamótum urðu listaverk eftir
Íslendinga æ meira áberandi. Núna er
aðeins um tíundi hluti listaverkaeignar
safnsins erlendur þó svo að enn séu
ögn fleiri erlendir en íslenskir listamenn
höfundar verka í Listasafni Íslands.
Véfréttir
Úrval verka Karls Einarssonar
Dunganons sem er ætlað að varpa ljósi
á líf og list þessa einstaka listamanns
sem hafði alla tíð sterkar taugar til
Íslands og arfleiddi íslensku þjóðina
að verkum sínum. Varðveitir Listasafn
Íslands rúmlega tvö hundruð myndverk,
en ljóð hans, úrklippubækur og önnur
gögn eru geymd í Þjóðskjalasafni
Íslands.
Bókfell í Vasulka-stofu
Í febrúar 2014 dvaldi Steina um
mánaðar skeið á Íslandi og vann að
hugmynd um rafrænt verk í samvinnu
við Listasafn Íslands og Árnastofnun.
Hún fékk aðgang að handritunum
í Árnastofnun og þannig birtist ný
hlið á höfundarverki hennar þar sem
fornsögunum er búin nýstárleg umgjörð
í formi rafræns listaverks. Í verkið valdi
Steina ýmis handrit sem hún skeytti
saman með hugvitsamlegum hætti
þannig að þau líða áfram og vindast,
snúast, umhverfast og bólgna út líkt
og bóluþang í straumröst. Í fyrsta sinn
verður ritlistin og blekteikningin Steinu
að viðfangsefni þegar blóðrauðir
höfuðstafir og ægifagrar myndir renna
fyrir augum áhorfandans í hægfljótandi
sístreymi.
Safn Ásgríms Jónssonar
Sýningin Korriró og dillidó veitir allri
fjölskyldunni kærkomið tækifæri til að
kynnast þeim einstaka ævintýraheimi
skrautbúinna álfa og ógnvekjandi
trölla sem Ásgrímur Jónsson túlkaði
af mikilli einlægni og ástríðu. Áhersla
er lögð á að virkja ímyndunarafl gesta
og gefa þeim kost á að njóta þessa
menningararfs sem um margt getur
varpað ljósi á ótta, drauma og þrár
genginna kynslóða og sambúð þeirra
við ógnvekjandi náttúru landsins.
Krakkaklúbburinn Krummi
Vönduð og skemmtileg dagskrá fyrir
fjölskyldur í hverjum mánuði. Þann 8.
desember kl. 14 verður jólakortasmiðja
á safni Ásgríms Jónssonar við
Bergstaðastræti 74.
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Tengingar
Sigurjón Ólafsson og nokkrir
samferðamenn hans.
Í tilefni þess að þann 21. október
2018 voru liðin 30 ár frá því að
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar var
opnað almenningi, er efnt til sýningar
þar sem fjórtán myndlistarmenn, sem
allir tengdust Sigurjóni og list hans með
einum eða öðrum hætti, eiga samtal við
verk Sigurjóns í fyrrum vinnustofu hans.
Listamennirnir eru Erlingur
Jónsson, Gerður Helgadóttir,
Gestur Þorgrímsson, Guðmundur
Benediktsson, Guðmundur Elíasson,
Hallsteinn Sigurðsson, Helgi Gíslason,
Jón Benediktsson, Kristín Jónsdóttir
frá Munkaþverá, Páll Guðmundsson frá
Húsafelli, Svava Björnsdóttir, Sverrir
Haraldsson, Tove Ólafsson og Örn
Þorsteinsson.
Hinir ýmsu viðburðir
Listasafn Íslands er með fjölda viðburða
tengda list og almennri menningu sem
hægt er að finna upplýsingar um á
heimasíðu og Facebook-síðu safnsins.
Meðal þeirra eru Gæðastundir sem er
dagskrá eldri borgara, Krakkaklúbburinn
Krummi, Freyjujazz, Flautukórinn,
fjölbreytt skólastarf, leiðsögn af ýmsum
toga og fleira.
Safnbúð Listasafn Íslands við
Tjörnina. Við munum standa fyrir
jólamarkaði frá og með 4. desember.
Bækur, kort og plaköt á ótrúlegu verði
til jóla.
Nánari upplýsingar er að finna á
listasafn.is
Listasafn Íslands við Tjörnina
Opið daglega frá kl. 10 til 17 (lokað
mánudaga)
Safn Ásgríms Jónssonar
Opið daglega frá kl. 13 til 17 (lokað
mánudaga)
Listasafn Sigurjóns Ólafssonar
Opið laugardaga og sunnudaga frá kl.
13 til 17 n