Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 44
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
Ég byrjaði að yrkja sem sjómaður á unga aldri. Það voru glettilega margir hagmæltir um borð og
við köstuðum á milli okkar stökum. Ég
hef verið um og innan við fermingu
þegar þetta byrjaði. Manni fannst
þetta ekki merkilegt og var ekki að
flíka því. Þannig að mest af þessu
hefur farið í glatkistuna,“ segir
Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson
sem var að senda frá sér ljóðabókina
Í heimahöfn, en það er fjórða ljóðabók
höfundar.
Hafsteinn er frá Ásbyrgi á
Hauganesi við Eyjafjörð en býr núna
í vesturbæ Kópavogs. Hann fór fyrst
fyrir alvöru að fást við listir eftir að
hann settist í helgan stein. „Ég er
svo dásamlega heppinn að vera
heilsuhraustur og nýt þess að fást við
listsköpun. Ég geri þetta umfram allt
ánægjunnar vegna,“ segir Hafsteinn.
Fyrir utan þykkar ljóðabækur hefur
Hafsteinn samið lög við sum ljóða
sinna og gefið út tvo geisladiska með
slíku efni. Þar syngur hann hvorki né
spilar sjálfur en flutningurinn er allur
í höndum einvalaliðs landsþekktra
söngvara og hljóðfæraleikara.
Lögin frá honum hafa náð hátt í
sönglagakeppnum, t.d. þriðja og
fjórða sæti í samkeppnum RÚV um
jólalög og sjómannalög. Enn fremur
hefur Hafsteinn fengist mikið við
myndlist og nýju ljóðabókina prýða
margar myndir eftir hann. Hefur
Hafsteinn haldið 14 sýningar.
Orti kvæði við leigubílastaura
Ef einhverjum finnst skrýtið að
fást við yrkingar úti á sjó þá hefur
Hafsteinn fengist við ljóðagerð á mun
sérstæðari stöðum. Gefum honum
orðið:
„Ég hafði lengi vel engan tíma í
þetta, ég var í mjög erilsömu starfi
sem forstjóri og framkvæmdastjóri
eigin fyrirtækis. En svo hætti ég
því og gerðist leigubílstjóri um tíma
og þá hafði ég miklu meiri tíma og
stundum orti ég á meðan á beið
við leigubílastaurana eftir næstu
ferð. Þá var gott að hafa meðferðis
skriffæri og tíminn leið miklu hraðar
við yrkingarnar.“
Rímuð og stuðluð ljóð og málefni
líðandi stundar
Í heimahöfn er þykk ljóðabók, yfir
100 blaðsíður og langflest ljóðin
eru háttbundin, stuðluð og rímuð.
Efnisvalið er fjölbreytt, þarna eru
ástarljóð og jólaljóð, sem Hafsteinn
hefur síðan samið lög fyrir. En
að sögn Hafsteins er algengast
að hann yrki um málefni líðandi
stundar. „Oft fæ ég hugmyndir við
að fletta morgunblöðunum. Ýmislegt
í tíðarandanum verður mér að
yrkisefni, vandamál og viðfangsefni
líðandi stundar. Ég á það til að vera
meinlegur en þá er það ekki eitthvað
sem kemur frá hjartanu, heldur skynja
ég ákveðið andrúmsloft í samfélaginu
sem ég samlagast.“
Hér gefur að líta skemmtilegt
kvæði úr bókinni:
Árið senn að lokum líður
Árið senn að lokum líður,
liggur brátt að fótum mér.
Ára fjöldi ennþá bíður,
elska það að lifa hér.
Minningar sem lækir líða,
langar svo að muna allt.
Sumt er ljóst og samfelld blíða,
svo er annað gleymsku falt.
Nýt mín þegar nýtt ár kemur,
notast þá við I-Pad spjald.
Það sem karlinn sjálfur semur,
segir lítið í það gjald.
Nú þarf ekki allt að muna,
aðeins þetta, copý, peist.
Galdra fram einn góðan spuna,
geyma hann og málið leyst. n
Í HEIMAHÖFN EFTIR HAFSTEIN REYKJALÍN:
Kveðskapur um daglega
lífið og fréttamálin