Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 44

Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 44
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ Ég byrjaði að yrkja sem sjómaður á unga aldri. Það voru glettilega margir hagmæltir um borð og við köstuðum á milli okkar stökum. Ég hef verið um og innan við fermingu þegar þetta byrjaði. Manni fannst þetta ekki merkilegt og var ekki að flíka því. Þannig að mest af þessu hefur farið í glatkistuna,“ segir Hafsteinn Reykjalín Jóhannesson sem var að senda frá sér ljóðabókina Í heimahöfn, en það er fjórða ljóðabók höfundar. Hafsteinn er frá Ásbyrgi á Hauganesi við Eyjafjörð en býr núna í vesturbæ Kópavogs. Hann fór fyrst fyrir alvöru að fást við listir eftir að hann settist í helgan stein. „Ég er svo dásamlega heppinn að vera heilsuhraustur og nýt þess að fást við listsköpun. Ég geri þetta umfram allt ánægjunnar vegna,“ segir Hafsteinn. Fyrir utan þykkar ljóðabækur hefur Hafsteinn samið lög við sum ljóða sinna og gefið út tvo geisladiska með slíku efni. Þar syngur hann hvorki né spilar sjálfur en flutningurinn er allur í höndum einvalaliðs landsþekktra söngvara og hljóðfæraleikara. Lögin frá honum hafa náð hátt í sönglagakeppnum, t.d. þriðja og fjórða sæti í samkeppnum RÚV um jólalög og sjómannalög. Enn fremur hefur Hafsteinn fengist mikið við myndlist og nýju ljóðabókina prýða margar myndir eftir hann. Hefur Hafsteinn haldið 14 sýningar. Orti kvæði við leigubílastaura Ef einhverjum finnst skrýtið að fást við yrkingar úti á sjó þá hefur Hafsteinn fengist við ljóðagerð á mun sérstæðari stöðum. Gefum honum orðið: „Ég hafði lengi vel engan tíma í þetta, ég var í mjög erilsömu starfi sem forstjóri og framkvæmdastjóri eigin fyrirtækis. En svo hætti ég því og gerðist leigubílstjóri um tíma og þá hafði ég miklu meiri tíma og stundum orti ég á meðan á beið við leigubílastaurana eftir næstu ferð. Þá var gott að hafa meðferðis skriffæri og tíminn leið miklu hraðar við yrkingarnar.“ Rímuð og stuðluð ljóð og málefni líðandi stundar Í heimahöfn er þykk ljóðabók, yfir 100 blaðsíður og langflest ljóðin eru háttbundin, stuðluð og rímuð. Efnisvalið er fjölbreytt, þarna eru ástarljóð og jólaljóð, sem Hafsteinn hefur síðan samið lög fyrir. En að sögn Hafsteins er algengast að hann yrki um málefni líðandi stundar. „Oft fæ ég hugmyndir við að fletta morgunblöðunum. Ýmislegt í tíðarandanum verður mér að yrkisefni, vandamál og viðfangsefni líðandi stundar. Ég á það til að vera meinlegur en þá er það ekki eitthvað sem kemur frá hjartanu, heldur skynja ég ákveðið andrúmsloft í samfélaginu sem ég samlagast.“ Hér gefur að líta skemmtilegt kvæði úr bókinni: Árið senn að lokum líður Árið senn að lokum líður, liggur brátt að fótum mér. Ára fjöldi ennþá bíður, elska það að lifa hér. Minningar sem lækir líða, langar svo að muna allt. Sumt er ljóst og samfelld blíða, svo er annað gleymsku falt. Nýt mín þegar nýtt ár kemur, notast þá við I-Pad spjald. Það sem karlinn sjálfur semur, segir lítið í það gjald. Nú þarf ekki allt að muna, aðeins þetta, copý, peist. Galdra fram einn góðan spuna, geyma hann og málið leyst. n Í HEIMAHÖFN EFTIR HAFSTEIN REYKJALÍN: Kveðskapur um daglega lífið og fréttamálin
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.