Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Síða 54
Bækur og menning 30. nóvember 2018KYNNINGARBLAÐ
H jónin Agnes Sigurðardóttir og Ólafur Þröstur Ólafsson, stofnuðu bruggverksmiðjuna
Kalda á Árskógssandi í Eyjafirði
árið 2006. Tveimur árum síðar kom
Kaldi á markað. Og í fyrra opnaði
heilsulindin Bjórböðin, sem hafði
lengi verið draumur Agnesar.
„Við sáum að þarna var tækifæri
og okkur fannst vanta eitthvað nýtt
í jólasöluna,“ segir Agnes aðspurð
af hverju Kaldi fór í framleiðslu á
jólabjór. „Á þessum tíma voru fjórar
eða sex tegundir til í Vínbúðinni og
markaðurinn kallaði á meira úrval.“
Jólakaldi hefur borið aldurinn
vel, viðtökurnar eru góðar á hverju
ári og Jólakaldi selst alltaf upp.
„Viðtökurnar voru gríðarlega góðar
strax fyrsta árið, það var greinilega
þörf á honum,“ segir Agnes.
Viðtökurnar eru góðar á hverju
ári og eftirspurnin hefur aukist
ár frá ári, en Agnes segir að
núna sé komið ákveðið jafnvægi í
framleiðsluna og um 250 þúsund
flöskur framleiddar og seldar árlega.
Jólakaldi kemur í sölu um miðjan
nóvember, og er ávallt uppseldur um
þrettándann. Jólakaldi er á dælu á
14 veitingastöðum og á öllum betri
veitingastöðum fæst hann á flösku.
Árið 2015 ákvað Kaldi að
framleiða Súkkulaðiporter sem
var hugsaður fyrir sælkerana.
„Við ákváðum 2015 að framleiða
nýja vöru, þá brugguðum við
súkkulaðiporter sem við notum
Nóa Siríus súkkulaði í,“ segir Agnes.
„Viðtökurnar við honum hafa
einnig verið mjög góðar, magnið
er takmarkað eða um 60 þúsund
flöskur.“
Jólakaldi er að sjálfsögðu
í boði í Bjórböðunum fram að
þrettándanum. Og á jólahlaðborði
Kalda er hann í öndvegi, en síðasta
jólahlaðborðið er laugardaginn 1.
desember. „Kaldi verður síðan áfram
í boði á veitingastofunni hjá okkur
eftir að jólahlaðborðinu lýkur, en hún
er opin alla daga nema sunnudaga.“
Bjórböðin hlutu nýlega
nýsköpunarverðlaun Samtaka
ferðaþjónustunnar árið 2018. Eliza
Reid forsetafrú afhenti Bjórböðunum
verðlaunin á 20 ára afmæli
Samtaka ferðaþjónustunnar sem
fram fór á Hilton Reykjavík Nordica
laugardagskvöldið 10. nóvember.
Gjafabréf, sápur og fleira í
jólapakkann
„Við erum með bjórsápur. Við notum
bjórsalt og bjórólíur ofan í böðin,
sem gefa einnig góða lykt. Við eigum
líka sjampó, hárnæringu, og fleira.
Fyrir jólin munum við bjóða upp á
gjafapakka. Einnig eru gjafabréf í
boði, sem sníða má eftir vali hvers og
eins, hvort sem er ákveðin upphæð
eða meðferð,“ segir Agnes, en úrvalið
má skoða á heimasíðunni: bjorbodin.
is
Allar upplýsingar má fá í
síma 466-2505, netfanginu
bruggsmidjan@bruggsmidjan.is og á
heimasíðunni: bruggsmidjan.is n
BRUGGVERKSMIÐJAN KALDI:
Jólahefð í áratug