Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Page 81
SAKAMÁL 8130 nóvember 2018
hverra hluta vegna varð hann ekki
við þeirri beiðni.
Þann 9. júlí fóru hjónin í Daly’s
leikhúsið þar sem þú sáu verkið
The Merry Widow, Káta ekkjan, og
fóru síðan heim á hótel og fengu
sér síðbúinn kvöldverð.
Kastaðist í kekki
Heldur betur kastaðist í kekki hjá
hjónunum í kvöldverðinum, en
hnútukast virtist vera orðið dag
legur viðburður hjá þeim. Reynd
ar gott betur því Ali hafði sést á al
mannafæri með rispur í andlitinu
og Marguerite hafði sést með mar
bletti sem hún hafði reynt að hylja
með kremi og púðri, en ekki tekist.
Á meðal deiluefna þeirra þetta
kvöld var aðgerð sem Marguer
ite þurfti að fara í. Ali vildi að að
gerðin yrði gerð í London, en
Marguerite heimtaði að þau færu
til Frakklands vegna hennar.
Minnst á morðhótun
Sagan segir að á meðan þau
snæddu í matsal hótelsins hafi
hljómsveitarstjórnandinn komið
aðvífandi og spurt hvort þau
vildu heyra eitthvert sérstakt lag.
Marguerite svaraði á frönsku: „Ég
vil ekki hlýða á tónlist,“ og bætti
síðan við: „Eiginmaður minn hef
ur hótað að drepa mig í kvöld.“
Hljómsveitarstjórinn taldi að
um væri að ræða glens af hálfu
þessarar fínu frúar, og svaraði:
„Frú, ég vona að þér verðið hér
enn í fyrramálið.“
Rifrildi hjónanna koðnaði nið
ur um síðir og Marguerite tók á
sig náðir upp úr klukkan eitt eft
ir miðnætti, en Ali ákvað að fara í
West Endhverfið, hugsanlega til
að kaupa sér kynlífsþjónustu konu
eða karls.
Skothvellir um miðja nótt
Um tvö leytið eftir miðnætti dró til
tíðinda á Savoyhótelinu. Þá var
næturvaktmanni gengið fram hjá
dyrum svítu Fahmyhjónanna.
Heyrði hann þá lágt flaut, leit yfir
öxlina og sá Ali krjúpandi. Hann
var að flauta á kjölturakka Margu
erite sem hafði elt vaktmanninn.
Vaktmaðurinn velti því ekki frekar
fyrir sér og hélt áfram för sinni.
Ekki hafði hann tekið mörg
skref þegar hann heyrði þrjá skot
hvelli. Hann flýtti sér til baka og
sá inn um dyrnar að Marguerite
henti frá sér skammbyssu. Ali lá í
hnipri upp við vegg og blóðið rann
í stríðum straumum úr sári á enni
hans og stóðu beinflísar út úr því.
Marguerite virtist í öngum sínum
og sagði í sífellu: „Hvað hef ég gert,
elskan mín.“
Verjandinn mikli
Hótelstjórinn var kallaður til og
var þá komið annað hljóð í strokk
inn hjá Marguerite, sem virtist fyrst
og fremst hafa áhyggjur af sjálfri
sér: „Ó, ágæti herra“ sagði hún við
hann, „ég hef verið gift í hálft ár, og
það hefur verið þrautaganga fyrir
mig. Ég hef þjáðst óumræðilega.“
Ali var fluttur helsærður á
sjúkrahús þar sem hann skildi við
skömmu síðar.
Marguerite var ákærð fyrir
morð og 10. september, 1923,
hófust réttarhöld yfir henni. Verj
andi hennar voru sir Edward
Marshall Hall og sir Henry Curtis
Bennett. Þá þegar var Edward
Marshall Hall, 65 ára, vel þekktur
fyrir einstök afrek sín í dómsölum
og hafði fengið viðurnefnið „The
Great Defender“, verjandinn mikli.
Mannorð Alis að engu gert
Ekki verða réttarhöldin reifuð
hér í smáatriðum heldur vind
ur sögunni beint í endasprettinn
og málalyktir. Í sinni lokaræðu til
varnar Marguerite, sem þegar
49 ára fasteignasali, Vicki Robinson, hvarf frá heimili sínu í Carrollwood, úthverfi Tampa í Flórída, þann 27. júní 1998. Vicki var fráskilin, móðir tveggja táninga og fljótlega beindust sjónir lög-reglunnar að Valessu, yngri dóttur hennar. Valessa var nefnilega horfin líka og vitað var að Vicki
hafði átt erfitt með að tjónka við hana enda var hún uppreisnargjörn með eindæmum.
Einna helst höfðu þær mæðgur deilt vegna nýjasta kærasta Valessu, Adams Davis. Adam, sem var 19 ára,
hafði nýlega verið sleppt úr fangelsi þar sem hann hafði afplánað sex mánaða dóm fyrir þjófnað og innbrot.
Sex dögum síðar voru Valessa, Adam og vinur þeirra, Jon Whispel, stöðvuð í bifreið Vicki eftir glæfralega
eftirför í Texas. Daginn eftir fannst lík Vicki í plastpoka í skóglendi skammt frá heimili hennar. Jon samdi við
ákæruvaldið og sagði að Valessa hefði, í LSD-vímu, stungið upp á því að þau myrtu móður hennar. Adam sá
um morðið og Valessa hjálpaði til. Adam fékk dauðadóm árið 1999 Valessa 20 ára dóm.
Smiðjuvegur 4C - 202 Kópavogur - S 587 2202
Ryðga ekki
Brotna ekki
HAGBLIKK
Álþakrennur & niðurföll
Litir á lager:
Svart, hvítt, ólitað, rautt, silvurgrátt og dökkgrátt
GERVIPRINSINN OG GLÆSIKVENDIÐ
n Fátt var sem sýndist hjá Ali og Marguerite n Hann var ekki prins og hún var vændis- og fylgdarkonan Hjónabandið einkenndist af átökum n Endaði með morði um miðja nótt
„Eiginmaður
minn hefur
hótað að drepa
mig í kvöld
Standard
Ex aminer
Vitnisburður
Marguerite hafði
mikil áhrif.
Fórnarlambið Ali Kamel
Fahmy Bey kolféll fyrir
Marguerite.
Prins, en
ekki prins
Grunnt var
á sadisma
hjá Ali sam-
kvæmt al-
mannaróm.