Dagblaðið Vísir - DV - 30.11.2018, Side 88
30 nóvember 2018
46. tölublað 108. árgangur Leiðbeinandi verð 995 kr. dv.is/frettaskot askrift@dv.is Sími 512 7000
Bölvaður melur
er hún!
Bókabúð Forlagsins | Fiskislóð 39 | Opið alla virka daga 10–18 | Laugardaga 11–16 | www.forlagid.is
LANDSINS MESTA ÚRVAL BÓKA
GÖTUBARN Í
KALKÚTTA OG
REYKJAVÍK
Ævintýralegt ferðalag
ungs drengs frá Indlandi
til Íslands
Þóra Kristín Ásgeirsdóttir
skrifar sögu Hasims af
miklu næmi og innsæi
Saga af höfnun,
baráttuvilja og dug
Elsta jóla-
gjöf Bergþórs
Hver er elsta jólagjöfin sem þú
átt?
„Ég held að það séu rúm-
föt sem ég fékk frá mömmu og
pabba þegar ég var unglingur. Ég
hafði sagt mömmu að mig lang-
aði svo í dökkblá rúmföt. Þetta
var þegar úrvalið var lítið og ég
er svo skrýtinn að ég vil eigin-
lega alltaf vera öðruvísi en aðrir.
Mamma skellti sér auðvitað í að
sauma, án þess að ég vissi af. Á
Þorláksmessu gekk ég óvart inn
í þvottahús, þar sem pabbi var
að strauja þau. Ég mátti hafa mig
allan við að taka ekki eftir neinu,
sneri við á sekúndubroti og þótt-
ist ekkert vita. Það heppnaðist
ágætlega og tilhlökkunin eftir
jólunum varð ekkert minni. Þó
að þessi rúmföt séu
orðin dálítið lúin
mörgum áratug-
um síðar, fæ ég
alltaf yl í hjart-
að, af því að þau
minna mig á sam-
vinnu mömmu
og pabba við
að gleðja
mig.“
Mel B. hundsar Fjölni í nýrri ævisögu
N
ý ævisaga kryddpíunnar
Mel B., „Brutally honest“,
hefur vakið talsverða
athygli í heimspressunni.
Ástæðan er ekki síst opinskáar
lýsingar hennar á ástarsambönd-
um hennar við þá Eddie Murphy
og Stephen Belafonte sem og
eiturlyfja notkuninni. Íslenskir
aðdáendur verða þó fyrir sár-
um vonbrigðum því kryddpían
eyðir ekki einni setningu í sam-
band hennar við athafnamann-
inn Fjölni Þorgeirsson. Mel B. og
íslenski kvennaljóminn byrjuðu
saman árið 1996 og varði sam-
band þeirra í rúmt ár. Það vakti
mikla athygli á sínum tíma enda
voru Kryddpíurnar í hópi vinsæl-
ustu hljómsveita heims á þessum
tíma. Birtust myndir af parinu á
forsíðum erlendra stórblaða auk
þess sem íslenskir miðlar létu ekki
sitt eftir liggja.
Kryddpían virtist afar ánægð
með Fjölni miðað við viðtöl sem
hún veitti þegar þau voru saman. Í
einu viðtalinu sagði hún að Fjölnir
væri með „ótrúlegan líkama og
væri yndislegur maður.“ Parið ráð-
gerði að gifta sig en skyndilega
slitnaði upp úr sambandinu árið
1997. Hefur Fjölnir
látið hafa eftir sér að
tónlistarkonan hafi
„verið í rugli“ og hann
ekki viljað koma nálægt
því. Hann hafi því hætt með
henni ósáttur og það hafi tekið
hann langan tíma að jafna sig.
Vonsviknir aðdáendur geta
þó huggað sig við það að í fyrri
ævisögu sinni „Catch a Fire“,
sem kom út árið 2002, þá minnt-
ist kryddpían á Fjölni. „Eftir þetta
byrjaði ég með Fjölni Þorgeirssyni
frá Íslandi, sem ég kynntist einnig
í Blackpool. Ég féll kylliflöt fyrir
honum en síðan flutti hann aftur
til Íslands. Samband okkar var
mjög ástríðufullt.“ Svo mörg voru
þau orð.
Lítt þekkt
ættartengsl
Bræður glíma við
náttúruhamfarir
F
undur bankaráðs Seðla-
banka Íslands vakti
mikla athygli í vik-
unni, sérstaklega vegna
þeirrar staðreyndar að Þor-
steinn Már Baldvinsson, for-
stjóri Samherja, fékk boð um
að sitja fundinn. Hann hefur
átt í hatrömmum deilum við
Má Guðmundsson seðla-
bankastjóra, í kjölfar þess að 15
milljóna króna sekt bankans á
hendur Samherja vegna brota
á reglum um gjaldeyrismál var
dæmd ógild á dögunum. Már
ákvað að sitja ekki fundinn og
lét sig hverfa til útlanda á með-
an honum stóð.
Bróðir Más er einnig vanur
að glíma við náttúruhamfarir.
Það er jarðeðlisfræðingurinn
Magnús Tumi Guðmundsson,
prófessor við Háskóla Íslands.
Ýmsar ógnvænlegar eldstöðvar
víða um land hafa látið á sér
kræla undanfarin misseri og
Magnús Tumi hefur eflaust vak-
andi auga með þeim. Á meðan
þarf bróðir hans að glíma við
brjálaðan Þorstein Má og vildi
eflaust glaður skipta um hlut-
verk.