Dagblaðið Vísir - DV - 07.12.2018, Side 70
70 7. desember 2018FÓLK
Dalvegi 10-14 • 201 Kópavogi • 595 0570 • Parki.is
Vandaðar
innréttingar
Hjá Parka færðu hágæða
innréttingar, sérsniðnar að þínum
óskum og þörfum.
Bjóðum aðeins það besta fyrir þig!
Sigmundur dýrastur, Gunnar Bragi
skrópar í atkvæðagreiðslum
n Ólafur talar mest og leggur fram flest frumvörp n Karl Gauti ódýrastur
A
llir sexmenningarnir sem
sátu að sumbli á Klaustri
bar sitja áfram á Alþingi.
Upptaka af ósmekklegu
samtali hópsins hefur sett þjóð-
félagið á hliðina undanfarna viku
og hafa stærstu fjölmiðlar heims
fjallað um hneykslið. Ekki er ljóst
hverjar endanlegar afleiðingar
málsins verða. Sigmundur Dav-
íð Gunnlaugsson, formaður Mið-
flokksins, og Anna Kolbrún Árna-
dóttir, þingkona flokksins, ætla að
sitja sem fastast á þingi. Samherjar
þeirra, Bergþór Ólason og Gunnar
Bragi Sveinsson, eru farnir í leyfi
og óvíst er hvort eða hvenær þeir
mæta aftur til starfa. Þá var Karli
Gauta Hjaltasyni og Ólafi Ísleifs-
syni, þingmönnum Flokks fólks-
ins, vísað úr flokknum og eru núna
munaðarlausir.
DV tók saman snarpa tölfræði-
úttekt á störfum sexmenninganna
á Alþingi á þessu kjörtímabili.
Heimildir eru sóttar á vef Alþingis.
Úttekt á Klaustursmönnum:
Laun og kostnaður 2018
Laun: 10.402.210
Álag á þingfararkaup: 5.505.970
Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla: 1.297.115
Fastur ferðakostnaður í kjördæmi: 283.389
Fastur starfskostnaður: 377.852
Ferðakostnaður innanlands: 244.944
Ferðakostnaður utanlands: 600.833
Síma- og netkostnaður: 158.124
Samtals: 18.870.437 krónur
n Hefur stigið 26 sinnum í ræðustól Alþingis og
talað samtals í 1,5 klukkustundir.
n Sigmundur var fyrsti flutningsmaður laga um að
Alþingi væri með skipulagsvald á Alþingissvæðinu.
Hann hefur verið níu sinnum meðflutningsmaður
lagafrumvarpa.
n Hefur lagt fram sautján fyrirspurnir til ráðherra.
n Af 191 atkvæðagreiðslu sem Sigmundur átti að
sækja hefur hann 93 sinnum sagt já, 26 sinnum nei,
setið hjá í 50 skipti. Tuttugu og tvisvar sinnum hef-
ur hann verið fjarverandi.
n Sigmundur á sæti í efnahags- og viðskiptanefnd.
Hann hefur mætt á tíu fundi af átján, sem gerir 55%
mætingu.
Laun og kostnaður 2018
Laun: 11.011.940
Húsnæðis- og dvalarkostnaðargreiðsla: 1.340.410
Fastur ferðakostnaður í kjördæmi: 300.000
Fastur starfskostnaður: 400.000
Ferðakostnaður innanlands: 2.573.089
Ferðakostnaður utanlands: 667.427
Síma- og netkostnaður: 159.797
Samtals: 16.452.663
n Hefur stigið 33 sinnum í ræðustól Alþingis og
talað samtals í 1,2 klukkustundir.
n Anna Kolbrún var fyrsti flutningsmaður laga um
stofnun lagaráðs Alþingis sem hafi það hlutverk að
samræma reglur um samningu lagafrumvarpa og
annan undirbúning löggjafarmála. Hún hefur ver-
ið meðflutningsmaður sautján annarra lagafrum-
varpa.
n Hefur lagt fram fimmtán fyrirspurnir til ráð-
herra.
n Af 193 atkvæðagreiðslum sem Anna Kolbrún
hefur átt að taka þátt í þá hefur hún 99 sinnum sagt
já, 29 sinnum nei og 53 sinnum setið hjá. Tólf sinn-
um hún verið fjarverandi.
n Anna Kolbrún á sæti í allsherjar- og mennta-
málanefnd og velferðarnefnd. Hún hefur mætt á 15
fundi af 18 hjá fyrri nefndinni og 13 fundi af fimmt-
án hjá hinni síðarnefndu. Það gerir 85% mætingu.
Björn Þorfinnsson
bjornth@dv.is
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Anna Kolbrún
Árnadóttir