Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Síða 30
J ó n Yn g v i J ó h a n n s s o n
30 TMM 2018 · 1
Aðalsöguhetja Afleggjarans heitir Arnljótur, nafn sem er samsett úr orðum
sem þýða ljós og örn.13 Í ljósi þeirra kristilegu vísana sem finna má í sögum
Auðar Övu er ekki úr vegi að tengja hann við guðspjallamanninn Jóhannes,
en tákn hans er örn. Jóhannes er líklega sá guðspjallamannanna sem notar
margbrotnustu og flóknustu táknin, og sem sögumaður gerir Arnljótur það
sannarlega líka. En Arnljótur er ekki eina nafn sögumanns, hann er ýmist
kallaður Lobbi, Dabbi eða Addi þegar hann er ekki nefndur fullu nafni. Það
er einkum faðir hans sem notar gælunöfnin. Anna, barnsmóðir hans, veltir
þessu fyrir sér í sögunni: „Hvað kallar hann þig aftur? Hann virðist nota
mörg gælunöfn. Lobbi, Addi, Dabbi? / – Já, það er rétt. Þegar hann kallar mig
Dabba, þá ætlar hann að ræða við mig um framtíðina, um það hvað ég ætti
að taka mér fyrir hendur.“ (190–91) Þessi nafnanotkun lýsir hvoru tveggja,
óráðinni stöðu Arnljóts í lífinu, hann veit ekki nákvæmlega hvert hann
stefnir, og því hversu erfitt faðir hans á með að skilja þennan son sem helst
vill una sér við garðyrkju þrátt fyrir augljósar og miklar námsgáfur.
Það er kannski engin tilviljun að hugur lesandans leiti á slóðir Biblíunnar
þegar hann veltir fyrir sér nöfnunum í Afleggjaranum. Drjúgan hluta
bókarinnar starfar Arnljótur í munkaklaustri þar sem einn munkanna
verður eins konar staðgengill föður hans. Munkurinn ber nafn eins af postul-
unum, efasemdamannsins Tómasar.
Það eru þó kannski nöfn fjölskyldu sögumanns sem eru áhugaverðust
þegar rýnt er í táknræna merkingu nafna í Afleggjaranum. Barnsmóðir
Arnljóts heitir Anna og það gerir móðir hans líka. Heilög Anna er skv. apók-
rýfum bókum Nýja testamentisins nafn móður Maríu meyjar, hún er sem
sagt amma Jesú Krists. Sjálfur ber Arnljótur ekki biblíulegt nafn en hann
á sér tvíburabróður, hinn þroskahefta Jósef. Sögumaður sér ákveðin tengsl
með sjálfum sér og heilögum Jósef þegar hann skoðar af honum málverk,
en dýrlingurinn minnir hann líka á bróðurinn (196). Sem tvíburar eru þeir
í einhverjum skilningi eitt, og þá erum við komin með óbeina en nokkuð
áhugaverða ættarlínu, sem hefst með Önnu og endar með dóttur Arnljóts,
Flóru Sól. Þegar við bætist eitt af gælunöfnum Arnljóts, Dabbi, má halda
því fram að barnið sé í einhverjum skilningi af ætt Davíðs! Vísbendingarnar
hrannast upp um að Flóra Sól standi í sérstökum tengslum við Jesú Krist og
að þau tvö eigi ýmsa eiginleika sameiginlega.
Í kirkju klaustursins er mynd af Maríu í hásæti með Jesúbarnið sem
sögumaður sér í fyrstu heimsókn þeirra feðgina í kirkjuna að er nauðalíkt
barninu (132) og í annarri heimsókn þeirra talar sögumaður um barnið á
myndinni sem „tvífara“ dóttur sinnar. Hann er ekki einn um að sjá þessi
líkindi: „Það krýpur kona fyrir framan myndina og þegar hún stendur upp
horfir hún undrandi á dóttur mína og síðan aftur á barnið á myndinni,
nokkrum sinnum til skiptis. Ég veit hvað fer um huga hennar“ (197). Gamlar
konur í þorpinu telja að hún hafi lækningamátt. „Síðan barnið flutti í húsið
er ég miklu betri af exeminu“, segir nágrannakonan (220) og skömmu seinna