Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 124

Tímarit Máls og menningar - 01.02.2018, Page 124
U m s a g n i r u m b æ k u r 124 TMM 2018 · 1 eða einhverju rassgati hitans og Mið- jarðarhafsins. Nafnið mitt kemur líka úr bók. Sjálfstæðu fólki eftir Laxness. Þú ert þá eiginlega ekki til frekar en ég. Það er plús. (126) Textatengslin notar Jón Kalman svo bæði sem pólitískt samtal við hefðina og söguna og sem leið til að takast á við til- vistarlegar spurningar. Samtalið við hefðina Strax í upphafi veltir sögumaðurinn upp þeirri spurningu hvort það sé til eftir- breytni að nefna persónu eftir Ástu Sól- lilju „sem dó uppi á kaldri heiði, hóst- andi blóði á altari föður síns“ (11). Les- andinn situr uppi með spurninguna og fleiri tengingar við Sjálfstætt fólk, til dæmis þegar Ásta lendir í sumardvöl á einangruðum sveitabæ þar sem per- sónur virðast geta best átt heima í Sum- arhúsum. Kristín gamla býr þar með þumbaralegum syni sínum sem sinnir verkum með hund á hælunum og les „helst ævisögur, Íslendingasögur, frá- sagnir af sjómennsku og hrakningum“ og einstaka skáldsögur eftir dauða höf- unda – alls ekki Halldór Laxness. Það verður næsta skiljanlegt að Kristín gamla hverfi stundum aftur í tímann, og telji þá til dæmis að nú sé árið 1910, sem er einmitt á sögutíma Sjálfstæðs fólks, og ítreki tenginguna við sögu Ástu Sóllilju með því að hlaupa upp í fjalls- hlíð, finnast grátandi í gömlum, rósótt- um sparikjól og vera svo borin örmagna heim. (215) Við fáum einnig að vita að foreldrar Ástu, Helga og Sigvaldi, reyna að skapa „mótvægi við Halldór Laxness“ og „gæta jafnvægis“ með því að kaupa rit- röð Gunnars Gunnarssonar. Það fer þó „lítið fyrir jafnvæginu“ þegar ritröðin er notuð sem vopn í átökum þeirra hjóna – enda bókmenntasagan yfirleitt frekar vígvöllur fremur en huggulegt samsæti jafningja. Helga náði að kasta fimm eða sex bókum í áttina að Sigvalda, hitta hann með tveimur, Svartfugli og Skipum heið- ríkjunnar, öndvegis bækur, hreinustu dýrgripir, en hin síðarnefnda er góðar 500 síður og það er þungt að fá þannig bók í sig. (249–250) Jón Kalman hefur m.a. átt feminísk inn- legg í átök og valdabaráttu bókmennta- heimsins með því að „endurrita“ eldri skáldkonur inn í samtímann með vísun- um í verk þeirra. Og í Sögu Ástu gengur bróðir Sigvalda, skáldið, svo langt að lýsa því yfir að konur skilji andspyrnu- eðli bókmenntanna betur en karlar sem hafi í gegnum aldirnar „almennt orðið grófari, heimskari, grynnri vegna óverð- skuldaðra eða ímyndaðra yfirburða.“ (138) Jón Kalman beinir því spjótum að hinu karllega bókmenntalega hefðar- veldi um leið og hann nýtir sér það. Rósa María Hjörvar hefur bent á að Saga Ástu virðist fela í sér „allar íslensk- ar nútímabókmenntir“ og nefnir þar tvo karla sem upphaf og endi. […] öll einkenni íslenskra skáldsagna eru til staðar: eymdin í sveitinni, harkið á mölinni, Íslendingurinn sem stranda- glópur í útlöndum og íþyngjandi áhrif ættar og uppruna á örlög einstaklingsins. Samhliða þessu þræðir höfundur bók- menntasöguna aftur á bak, en verkið hefst á Laxness og endar hjá Jónasi Hall- grímssyni.10 Hins vegar umbreytir eða endurritar höfundurinn allar þessar bókmenntir sem koma við sögu. Eins og aðrar per- sónur sögunnar lesa Jósef og Ásta bækur og sem unglingar í sveitinni á sjötta ára- tugnum lesa þau m.a. nútímabókmennt-
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.