Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Síða 33
S k á l d a ð í a U ð n i n a
33
mætasta auðlind sem völ er á. Í slíkum aðstæðum er vatn fyrst og fremst það
sem gerir líf mögulegt og vatnsbirgðirnar mælikvarði á það hversu marga
daga eða vikur feðginin geta búist við því að geta haldið áfram. Hafið sem hin
sjötuga Signe siglir um af miklu öryggi og sterkum ásetningi gefur til kynna
frelsið til athafna; henni eru allir vegir færir, ólíkt David og Lou, sem þvælast
um skorpna jörð í von um að finna lífvænlegan samastað.
Í sögunni af Signe hljómar rödd umhverfisverndarinnar á afdráttarlausari
hátt en í öðrum þráðum loftslagsbókanna tveggja. Þótt það megi segja að sýn
verkanna á umhverfisvandann sé afdráttarlaus, þá er henni fyrst og fremst
miðlað í atburðarás, persónusköpun og þeirri mynd sem dregin er upp af
söguheiminum. Signe hefur látið skoðanir sínar í ljós hátt og snjallt frá unga
aldri – svo hátt að faðir hennar skammar hana ítrekað fyrir að öskra í eyrun
á sér – og sá eiginleiki hennar fylgir henni þegar hún vex úr grasi og verður
ástfangin af Magnusi, ungum manni sem botnar lítið í afstöðu hennar til
virkjanaframkvæmda í Eidedal og vill heldur að þau verji tíma sínum og orku
í að koma sér þægilega fyrir og stofna fjölskyldu en að standa í mótmælum við
Systrafossa í hópi „Óslóarhippa“. Samband þeirra verður nauðalíkt sambandi
foreldra Signe, hún líkist náttúruverndarsinnanum föður sínum en Magnus á
meira sameiginlegt með móður hennar, sem er fyrst og fremst umhugað um
efnahagslegt öryggi í dalnum.
Með því að leggja áherslu á fjölskylduna á nýjan leik í Blá, sýnir Lunde
hvernig það ófremdarástand sem blasir nú við er að miklu leyti afleiðing
þeirra hugmynda sem mannkynið hefur haft um velgengni í gegnum tíðina
og væntinganna sem við gerum til þeirra sem standa okkur nærri. Þetta
verður ekki síst áberandi í Sögu býflugnanna, þar sem sögutími frásagnanna
þriggja verður táknrænn fyrir framrás tímans, orsakasamhengi fortíðar,
nútíðar og framtíðar. Metorðagirnd Williams, vonir um að nafn hans verði
ritað á spjöld sögunnar fyrir hugvit og snilligáfu, eru samofnar hugmyndum
um að manneskjan sé æðri ómennskum dýrum. Vísindin þjóna þeim tilgangi
að upphefja manninn, hefja hann til vegs og virðingar í mannlegu samfélagi.
George deilir ákafri löngun Williams eftir aðdáun sonar síns, hann þráir
arftaka sem er stoltur af föður sínum, stólar á hann og á honum velgengni
sína að þakka, en líkt og William elur metnaður hans fyrst og fremst af sér
sjálfhverfu og fjarlægð við einkasoninn. Afleiðingin af sjálfhverfum – og
mannhverfum – hugsunarhætti er svo jörðin sem Tao og sonur hennar sitja
uppi með níutíu árum síðar, þar sem tækifæri til hamingjuríks lífs eru veru
lega skert, auðlindir uppurnar.
Myndin sem Lunde bregður upp af yfirráðum manns yfir náttúru er þó
alls ekki einföld. Þótt sögupersónur missi gjarnan sjónar á heildarmyndinni,
eins og fólk hefur svo sannarlega ríka tilhneigingu til, eru fyrirætlanir þeirra
góðar. Löngun til að búa börnum sínum góða og trygga framtíð drífur þessar
persónur áfram, vandamálið felst í því að fjárhagslegt öryggi er þeim efst í