Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 56

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 56
S o F F í a a U ð U r B i r g i S d ó t t i r 56 Þorsteinn sonur hennar, sem hefur viðurnefnið Rauður, kemur mikið við sögu í þessu bindi; öðrum þræði er bókin þroskasaga hans. Á unglingsárum kemst Þorsteinn af eigin frumkvæði til föður síns á svæði sem hann hefur hernumið í Péttlandi og þangað heldur Auður að leita hans. Bókin endar á endurfundum þeirra Ólafs hvíta, fyrrverandi eiginmanns hennar. Blóðug jörð hefst á magnaðri lýsingu á orrustu víkinga í Dalriada, héraðs­ ríki Skota, árið 874 en þar fellur herkonungurinn Ólafur hvíti. Í næsta hluta er liðinn tæpur áratugur og Þorsteinn sonur Auðar er einnig fallinn. Sjálf er hún á leið til Íslands ásamt sex börnum Þorsteins og fleira fólki í þeim tilgangi að nema þar land líkt og bræður hennar og fleiri ættmenni hafa þegar gert. Þessi hluti er stuttur og lesandinn skilur við Auði og fylgdarlið hennar í sjávar­ háska undan suðurströnd Íslands. Þá vindur frásögninni aftur um fimm vikur í tíma og stærsti hluti þessa lokabindis snýst um aðdragandann að því að Auður lætur „gera knörr í skógi á laun“ og siglir í brott með miklu „fé og föruneyti“. Sá hluti sögunnar er verulega spennandi, enda aðalpersónan á flótta undan ófriði og þráir það eitt að koma sjálfri sér og afkomendum sínum í skjól. Þá víkur sögu aftur að sjávarháska Auðar og föruneytis og því lýst hvernig þau bjargast og lenda skipi sínu við ósa Ölfusár. Við sögu koma nýjar persónur og ný átök en bókinni lýkur ári síðar í Hvammsfirði þar sem Auður hefur numið land og framtíðin er björt. En þótt söguþræðir bókanna þriggja séu þannig raktir er aðeins hálf sagan sögð. Það sem einkennir bækurnar öðru fremur – og markar þeim um leið sérstöðu – er að í þeim ríkir sterkt kvennasjónarmið; það er heimur kvenna sem birtist lesendum þríleiksins ljóslifandi og sá heimur er sjaldnast fyrir­ ferðarmikill í íslenskum miðaldaritum. íslendingasögur frá sjónarhóli kvenna Í viðtali sem tekið var við Vilborgu í tilefni af útkomu fyrstu bókarinnar lýsir hún sögulegum bakgrunni skáldsögunnar og þeim ófriðartímum sem ríktu á Írlandi, Skotlandi og Suðureyjum á 9. öld og norskir víkingar blönduðust inn í; þetta voru tímar mikilla stríðsátaka karlanna. Síðan bætir hún við: „En á meðan karlarnir slógust voru konurnar heima á eyjunum og sáu um allt hitt. Um það fjallar bókin mín að miklu leyti.“16 Konur eru í aðalhlutverki allra bókanna. Ekki aðeins Auður sjálf, heldur einnig konur tengdar henni fjölskylduböndum, svo sem móðir hennar, amma og systur, en einnig konur úr hópi hjúa og ambátta. Eftir þessu var að sjálfsögðu tekið og í ritdómi um bókina lætur Sigrún Klara Hannesdóttir þau orð falla að lýsa mætti bókinni sem Íslendingasögu sem skrifuð er „frá sjónarhóli kvenna“.17 Í ofannefndu viðtali var Vilborg spurð hvort hún væri „að reyna að nálgast uppruna íslensku konunnar“ og játaði hún því:
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.