Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Síða 64

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Síða 64
J ó n k a r l H e l g a S o n 64 til er þeir sáu Grænland og fjöll undir jöklum.“ 12 Ekki er þess getið í Græn- lendinga sögu að Leifur hafi skírst til kristni, hvað þá kristnað Grænland, en honum er vel borin sagan. Hann er sagður „mikill maður og sterkur, manna skörulegastur að sjá, vitur maður og góður hófsmaður um alla hluti“.13 Persónuleiki Leifs í The Viking er í ágætu samræmi við Leif íslensku fornritanna. Hann birtist í fyrsta sinn á hvíta tjaldinu meðal gesta í veislu eða guðsþjónustu sem „Ólafur konungur, fyrsti kristni konungur Nor­ egs“ stendur fyrir í skála sínum í Noregi.14 Hvítklæddir prestar lesa þar úr ritningunni og skíra skeggjaðan víkingahöfðingja til kristinnar trúar. Leifur situr álengdar ásamt tveimur mönnum öðrum. Hann er í hnésíðum kufli með skikkju á öxlum, hefur sítt liðað hár og sitt snúna yfirskegg. Hann er kynntur með nafni í skjátexta og sagður „þekktur á norðurslóðum fyrir afl sitt, hugrekki og réttlætiskennd“.15 Fram kemur í spjalli hans við annan sessunautinn að hann sé á leið til Grænlands en ætli einungis að sækja þangað vistir, markmið hans er að kanna ókunn lönd sem liggi enn lengra í vestur. Í samtali við konung skömmu síðar sýnir Leifur Ólafi kort þar sem Noregur, Bretland, Ísland og Grænland eru dregin ónákvæmum dráttum en vestan þeirra fellur hafið eins og foss fram af endimörkum heimskringlunnar. „Faðir minn, Eiríkur rauði, fann Grænland … Það hljóta að vera önnur lönd handan þess,“ segir Leifur með vísan til kortsins.16 Ólafur minnir hins vegar á þá trú manna að endimörk heimsins liggi skammt vestan Grænlands og bætir við: „Að sigla þangað og finna ný lönd – það væri nú ævintýri sem sæmdi þér, Leifur.“17 Þá tekur konungur af sér hálsmen með stórum róðukrossi og hengir um hálsinn á Leifi um leið hann segir: „Njóttu frægðar og frama á ferðum þínum.“18 Þessi orð eru bergmál orðanna „muntu giftu til bera“ sem Ólafur Tryggvason lætur falla í Eiríks sögu rauða. Munurinn er sá að í stað þess að gera Leif út sem kristniboða til Grænlands veitir konungurinn áformum hans um að kanna lönd í vestri kristilega blessun í kvikmyndinni. iii Beinn samanburður milli fornsagnanna og kvikmyndarinnar er út af fyrir sig forvitnilegur en hann er þó fremur villandi ef ekki er tekið tillit til þeirra milliheimilda sem Jack Cunningham studdist við þegar hann hóf að skrifa handrit sitt að The Viking. Mikilvægust þeirra var skáldsagan The Thrall of Leif the Lucky eftir Ottilie A. Liljencrantz, hálfþrítuga bandaríska skáldkonu af sænskum ættum.19 Við undirbúning skrifa sinna kynnti hún sér margt það sem skrifað hafði verið á ensku um Leif heppna og sporgöngumenn hans á undangengnum árum og áratugum, þeirra á meðal verk eftir Rasmus Bjørn Anderson, atorkusaman bandarískan fræðimann og þýðanda af norskum ættum. Bók hans, America Not Discovered by Columbus (1874), lék stórt hlutverk við kynningu fornra frásagna um Vínland vestanhafs. Meðal ann­ arra heimilda sem Liljencrantz nýtti var The Viking Age (1899) eftir Paul du
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.