Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 79

Tímarit Máls og menningar - 01.04.2019, Page 79
S v i F i ð m e ð g U l l F r á S ó l U 79 kvikmyndatónlistina. En þótt rokkið hafi ekki verið áberandi þegar ferill Jóhanns fór á verulegt flug var jaðarrokk upphafspunkturinn á ferli hans og var aldrei langt undan. Í þessu ljósi er áhugavert að skoða síðustu kvik­ myndatónlist Jóhanns úr hinni sérkennilegu en kynngimögnuðu Mandy eftir Panos Cosmatos. Öllu jöfnu einkennist tónlist Jóhanns af einhverju sem kalla mætti „angistarfegurð“ þar sem tónlistin er uppfull af fallegum og tilfinninga­ ríkum laglínum og hljómum, sem berjast um athygli við djúpan og harm­ rænan hljóðheim og rafræna upplausn og bjögun. Þótt stöku lög hafi miðlað aggressjón (t.d. í Sicario og Arrival) er þungamiðjan alltaf fegurð og mýkt, aldrei væmin en mjög oft átakanlega falleg. Í Mandy bregður hins vegar svo við að fegurðin er í farþegasætinu en draugalegt djöflaeitur leiðir för. Kvik­ myndaunnendur biðu þessarar myndar með nokkurri eftirvæntingu í lok árs 2018; ekki aðeins var þetta síðasta kvikmyndatónlistin sem Jóhann Jóhanns­ son samdi heldur hafði Cosmatos komið sér ærlega á kortið sem listrænn og áræðinn leikstjóri með fyrstu mynd sinni, Beyond the Black Rainbow (2010). Ekki minnkaði spennu­ og óvissustigið þegar fréttist að Nicolas Cage myndi leika aðalhlutverkið, en árin þar á undan hafði hann annaðhvort leikið í vandræðalegum hörmungamyndum eða stórkostlegum meistaraverkum. Mandy fellur í síðari flokkinn, á því leikur enginn vafi. Ég var svo lán­ samur að ná einni af örfáum sýningum á myndinni í Bíó Paradís og það er upplifun sem gleymist seint. Red er hæglátur skógarhöggsmaður sem býr úti í skógi ásamt Mandy, konu sinni, en hún ver sínum dögum við listsköpun og lestur fantasíubóka. Samband þeirra er náið og fallegt, en leiðtogi sértrúar­ hóps fær Mandy á heilann eftir að hafa séð hana á göngu í skóginum, gengið brýst inn til parsins og endar á því að pynta og brenna Mandy fyrir framan Red. Knúinn af heimagerðu LSD, vodka, kókaíni og djöfullegri hefndarheift tekur Red til við að elta sértrúarhópinn uppi með sérsmíðaðri exi og vélsög; blóðið vellur og geðveikin ágerist jafnt og þétt uns Red murkar lífið úr öllum óvinum sínum og keyrir inn í sólarlagið með drauginn konu sína sér við hlið. Mandy er hægfljótandi, litríkt, martraðarkennt og aggressívt listaverk; hel­ reið inn í hyldýpi ofbeldis og geðveiki og á sama tíma óður til tíðarandans á fyrri hluta níunda áratugarins, bæði í tæknibrellum, áferð, takti – og tónlist. Myndin hefst á lokaorðum Douglas Roberts, sem var tekinn af lífi árið 2005 fyrir mannrán, nauðgun og morð: „When I die, bury me deep, lay two spea­ kers at my feet, wrap some speakers around my head, and rock and roll me“. Og það er einmitt það sem myndin gerir; hún hristir og veltir öllu um koll og áhorfandanum eru engin grið gefin. Myndin er knúin áfram af áferð, stemmningu og tóni, enda grunnsagan einföld og stutt. Cage á stórleik ásamt öðrum leikurum, filteranotkun leik­ stjóra og kvikmyndatökumanns er áberandi, en tónlist Jóhanns leikur að minnsta kosti eitt aðalhlutverkanna og er nánast ómögulegt að ímynda sér þessa mynd með annarri tónlist. Það sem er fréttnæmt er hversu ólík tón­
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.