Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 17

Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 17
ÖFEIGUR 17 ráðamenn Framsóknar hafa komið stjórnmálahlið sam- vinnustarfsins þannig fyrir, að skattaverndin frá 1921 er glötuð, að samvinnufélögin fá 10—20% af innflutningi, þar sem þau ættu að hafa helming, að skip Sís eru undir sömu skattskyldu eins og gróðafyrirtæki, en Eimskip hefur öll þau sérréttindi, sem samvinnufélögin höfðu og eiga að hafa, en hafa misst. Vinir Eimskips hafa getað vemdað skattfrelsi þess alla stund, en Framsóknarflokk- urinn, undir stjórn gistivina, hefur síðan 1942 glatað í hrossakaupum flokkanna fengnum réttindum sam- vinnufélaganna og í sambandi við inngöngu Eysteins í núverandi landstjórn heitið og staðið við að fella á Al- þingi kröfu aðalfundar Sís 1946 um, að Sís mætti leyfast að kaupa og flytja inn erlenda vöru handa sínum félags- mönnum. Forustan hefir að vísu brugðizt, en hvað segja hinir 27 þús. félagsmenn ? Ætla þeir að Iáta hrossakaup um vegtyllur hindra, að samvinnufélögin nái rétti sín- um? Áðru en ég lauk störfum við Tímarit samvinnu- manna, ritaði ég um skattamál samvinnufélaganna í sambandi við skattfrelsi Eimskipafélagsins og reyndi að leggja þar grundvöll, sem samvinnumenn geta byggt á, hvenær sem frelsisbarátta félaganna hefst að nýju. Gistivinirnir hafa að vísu haldið illa á málinu. En í frjálsu landi leyfa borgararnir sér að taka upp að nýju góð mál, sem að óþörfu hafa verið lögð til hliðar. Er samvinnumönnum þá mjög aftur farið frá því, sem þeir voru 1920—21 ef þeir láta semja af sér réttmæt hlunn- indi, án þess að taka málin upp til nýrrar sóknar. Reynir þá á þau blöð og tímarit, sem kaupfélögin eiga aðgang að. Þau verða að fræða þjóðina um málið, eins og þegar dugandi menn berjast til að sigra, en ekki til að hafa stórmálin sem verzlunarvöru við samninga um metorð og vegtyllur.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.