Ófeigur - 15.07.1947, Síða 40

Ófeigur - 15.07.1947, Síða 40
40 ÓFEIGUR gröfum sínum. Á þingi í haust endar tímabilið sem hófst með andláti þjóðstjórnarinnar 1942. Hið nýja tímabil byrjar ekki með að leggja fram 585 miljónir í pundum og dollurum. Sú inneign hvarf, meðan kommúnistum tókst að halda Framsókn í álagaviðjum, til að verja sveitina fyrir gullstraumnum. Fram undan eru erfiðir dagar,. hnípin þjóð í vanda. Mikil atvinna til lands og sjávar er strönduð, bæði á dýrtíð og af völdum náttúrunnar. Framundan er gífurlegasta kreppa, sem þjóðin hefur þekkt. Nú er tækifæri fyrir þjóðina að sýna í verki, að hún eigi skilið að vera orðin húsbóndi á sínu heimili. Hagfræðingar kommúnista spáðu að í ár yrðu seldar til útlanda vörur fyrir 800 miljónir, en sú spá rætist illa. Munu Bretar nú sem endranær verða bezta fyrir- myndin. Þeir björguðu menningu heimsins með því að fórna ekki aðeins blóði, tárum og svita heldur einnig þjóðar auði, samandregnum af mörgum kynslóðum. Bret- ar stóðu lengi einir í eldraun stríðsins og sýndu hetju- móð, sem aldrei gleymist. Nú eiga þeir í sams konar baráttu og við til að tryggja þjóð sinni mat, föt og þak yfir höfuð manna og andlega fæðu. Bretar láta komm- únista hvergi koma nærri nokkrum mannaforráðum en meina þeim ekki að stíga upp á kassa í Hyde Park til að flytja þar Einarsræður. Breska þjóðin lengir vinnu- daginn, sýnir ráðdeild og hófsemi í öllum hlutum og ætlar að vinna efnahagsstríðið með þrautsegju og manndómi, eins og baráttuna við nazismann, meðan sú raun var þreytt. Menn spyrja mig stundum, hvers vegna ég komi ekki til móts við Framsóknarmenn, úr því að þeir séu komnir á mína skoðun og vilji nú vinna á borgaralega vísu á móti bolsevikum. Ég greiddi atkvæði móti vantrausti á stjórnina í vetur, af því að hún er borgaraleg. En ég er ekki viss um alvöru allra ráðherranna. Ég vil lofa dag að kvöldi. Ég hef séð nálega allan þingflokk Fram- sóknar rjúfa með köldu blóði marggefin heit um að vinna eindregið gegn kommúnisma. Ég hefi séð á tveim flokksþingum Framsóknar, 1944 og 1946, yfir 200 vel mennta og ráðsetta menn, samþykkja aðgerðir lág- sigldra valdaspekúlanta, sem hafa rofið grið og heit og lagt áhrifamikinn og duglegan flokk í rústir. Ég veit að Hermann Jónasson, formaður flokksins bíður eftir tækifæri að fella núverandi stjórn með kommúnistum.

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.