Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 43

Ófeigur - 15.07.1947, Blaðsíða 43
ÓFEIGUR 43 menn í Khöfn ekki svo mikið sem trékross á leiði skálds- ins. Gröf Skúla fógeta geymd undir gólfi út í Viðey. Á Bessastöðum er á gröf Gríms Thomsen steinn á stærð við potthlemm, með nálega ólæsilegu letri. Álíka dæmi um vítavert hirðuleysi um sögulegar minningar má telja í tugatali. Náskylt hirðuleysi um frægar grafir er smekk- leysi um opinberar byggingar. Forráðamenn landsins hafa verið mjög sljóskyggnir í þeim efnum. Áðsetur ríkisstjórnarinnar er í gömlu tugthúsi, sem einvalds- stjórn Dana rét reisa vegna þeirra fáu þjófa og bófa, sem þá voru til hér á landi. Dómkirkja landsins er sókn- arkirkja sem velviljaður Danakonungur lét reisa yfir fáeina þorpsbúa í Reykjavík, sem voru ekki fyrirferðar- meiri en það, að landlæknir þeirra tíma sagði á þingi, að ekki hæfði að reisa sjúkrahús, því að þeir lægju af sér öll veikindi heima í kotunum, og þyrftu enga hjúkrun. I stjórnarráðinu eru geymd dýrmætustu skjöl ríkisins,. með öllu óbætanleg, ef húsið brynni. Gólf, þak og inn- veggir eru úr timbri. Eldur gæti á hálftíma eytt hús- inu með öllu, sem í því er. Að stílnum til er húsið miðað við danskt smáþorp, en til viðbótar hefur útliti þess verið spillt með klastri á seinni árum. Á þessari lóð mundi sæmileg nútímabygging rúma tífalt lfeiri starfs- herbergi heldur en gamla fangelsið, en auk þess gæti höll á þessum stað verið táknræn fyrir hið endurreista lýðveldi og sett myndarsvip á miðbæinn, sem hefir þess fulla þörf. Alþingishúsið er virðuleg bygging og til mikils sóma fyrir þá kynslóð, sem tók við hinni fyrstu heimastjórn. Á þeim tíma var menntaskólinn mjög sæmilegur samkomustaður fyrir þingið, ef ekki var litið á metnað þjóðar, sem vildi sýna í orði og verki að hún væri fær um að fara vel með fullt frelsi. Sú tilfinn- ing var þess valdandi, að Jón Sigurðsson og lærisveinar hans létu, af sáralitlum efnum ríkissjóðs, reisa stór- myndarlegt hús fyrir þingið. En nú fullnægir þetta hús ekki lengur þörfum þjóðarinnar. Þingmenn og sér- staklega ráðherra hafa varla aðstöðu til að tala við gesti, nema helzt út í gluggakistum deildanna. Utan- bæjar þingmenn hafa óhentuga aðstöðu til vinnudvalar í Reykjavík. Þeir verða að keppa við námsmenn um herbergi og fæðiskaup á matsöluhúsum. Stundum verða tveir þingmenn að búa í sama herbergi. Þegar utan- bæjarþingmenn eru ekki á þingfundum, eða við nefnd-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Ófeigur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.