Ófeigur - 15.07.1947, Síða 44
44
ÓFEIGUR
arstörf, eru þeir líkt settir og útigangshestar í harðind-
um. Þeir eru utangarðs hjá mannfélaginu. Þessi rétt-
lausa aðstaða þingmanna, utan af landi, er hættuleg
fyrir áhrif hinna dreifðu byggða, alveg sérstaklega eft-
ir að nokkur auðsöfnun hefur orðið í höfuðborginni og
mikill fjöldi bæjarmanna hefur myndarleg heimili, en
aðkomuþingmennirnir eru, svo að segja, út á gaddin-
um. Það verður að reisa nýtt þinghús, miðað við nútíma-
þarfir þjóðarinnar. Þar verður að vera heimavist fyrir
utanbæjarþingmenn, borðsalur fyrir þingmenn, setu-
stofur, lestrarsalur, bókasafn, skrifstofur, fundar- og
nefndaherbergi, vinnuherbergi forsetans og sómasam-
legur risnusalur fyrir forsetann, alþingi og ríkisstjórn-
ina. Þessi bygging á að rísa við Lækjargötu, á hinni
frægu gulllóð landsins. Bankastræti eitt aðskilur þá aðal-
setur íslenzkra stjórnarvalda, vinnuhús alþingis og ríkis-
stjórnarinnar. Þinghúsið væri ákjósanieg dómhöll, að-
setur hæstaréttar og undirdómstóla, sem eru nú sama
sem húsnæðislausir. Ekkert kristið ríki getur verið án
dómkirkju. Hallgrímskirkja á Skólavörðuhæð getur orð-
ið úrlausn hins unga lýðveldis í þeim efnum, jafnframt
því að vera kirkja stærsta safnaðar landsins.
Reykjavíkurbær er svo settur, að hann á ekki þak
yfir höfuð bæjarstjórnarinnar. Skrifstofur bæjarins eru
dreifðar út um alla borgina í leiguherbergjum: Fundir
bæjarstjórnar voru lengi í templarahúsinu, þar til óður
skríll gerði þann stað óhæfan til þeirra fundarhalda.
Þá var þing höfuðborgarinnar flutt í óvistlegasta fund-
arskýli, sem til var í öllum bænum, dimman sal, undir
súð. I sumar var bærinn útlægur ger úr þessum stað
og var þá í bili flúið í fundarsal efri deildar. Hefur
bæjarstjóm Reykjavíkur aldrei búið við svo glæsilegan
húsakost. Þegar alþingi kemur saman í haust, verður
bæjarstjórn húsvillt að nýju. En vera má, að dvölin í
sal efrideildar, verði til að auka skilning forustumanna
bæjarins á því, hve óviðurkvæmilegt það er, að höfuð-
borg í frjálsu landi, borg sem hefur árlega til ráðstöf-
unar, vegna sameiginlegra þarfa, um 50 miljónir króna,
skuli ekki fyrir löngu hafa reist sér ráðhús, sem væri í
einu skýli og starfsstöð fyrir stjórn bæjarins og auk
þess tákn um menningu og myndarskap bæjarbúa.
Hér er bent á álitshnekki, sem þjóðin bíður við, að
æðstu stjórnarvöld ríkisins og höfuðborgarinnar búa