Ófeigur - 15.07.1947, Side 47

Ófeigur - 15.07.1947, Side 47
ÓFEIGUR 47 þjóðmálabaráttunni, sem sýna með verkum sínum, að þeir eru stuðnings maklegir. Á þennan hátt er hægt að gera borgaralega stjórn varanlega, þó að skipt sé um menn, þegar þess er þörf. Næst áhrifum á valdamenn, kemur sú mikla nauðsyn að brjóta allar óeðiilegar viðjar af íslenzkum atvinnurekstri, því að nú eru slíkir f jötrar mestir á íslandi, ef frá eru taldin ráðstjórnarríkin. Þess má vænta, að ekki verið langt að bíða þeirrar stundar, þegar mjög fjölgar þeim mönnum hér á landi, sem ganga hiklaust fram í nýrri landvarnarhreyfingu, móti austrænni kúgun. Þegar Ófeigur hóf göngu sína, vorið 1944, var hann ekki aðeins minnsta blað landsins, heldur líka eina blaðið, sem treysti sér til að segja það, sem líf þjóðarinnar lá við að væri sagt af mörgum. Smátt og smátt f jölgaði liði á hinum borgaralegu víggörðum. Mik- ið munaði um tvo Mbl.menn, Bjarna Benediktsson og Valtý Stefánsson, og fylgi þeirra. Um þá má nú segja, með hetjuljóðaorðum Matthíasar: ,,Tvær hraustar hetjur bera hið hrakta lið í sand.“ Margir Sjálfstæðismenn skildu málið betur en fyrr, eftir að kommúnistar höfðu sýnt Ólafi og Bjarna bana- tilræði, undir múrum fundarhúss flokksins, meðan Bryn- jólfur var að semja um samstjórn við Ólaf Thors. Stefán Pétursson ritstjóri Alþýðublaðsins hafði séð fullkomna tvísýnu á lífi sínu utanlands og snerist við þá kynningu frá einlægri þjónkun við kommúnisma til hatriblandinn- ar andúðar. Forráðamenn Vísis, Björn Ólafsson og Kristján Guðlaugssson höfðu snemma skilið eðli komm- únista og haldið fram þeim málstað, svo langt sem fært var, án þess að rjúfa flokksheildina. Vann blað þeirra þjóðlegum málstað mikið gagn, með andófi gegn bylt- ingarstefnunni, þó að nokkrar brýr væru eftirskildar í gangfæru standi. Frá vordögum 1944 höfðu Hermann og Eysteinn fullt flokksþingsleyfi til að hef ja samstjórn með kommúnistum og sóttu þeir félagar jafnt og þétt á með að komast í flatsæng með bolsevíkum en þeir léku fimlega á leiðtoga Framsóknar en notuðu auðmýkt þeirra til að ná sem beztum kjörum hjá Mbl.mönnum. Um jólaleytið í vetur, sá Eysteinn, að honum yrði aldrei auðið að komast í stjórnarstól, nema hann yfirgæfi Her- mann og fylgdi brotalaust ráðum þeim, sem Ófeigur hafði gefið mönnum, sem ekki vilja sökkva með bylting-

x

Ófeigur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.