Ófeigur - 15.07.1947, Síða 49

Ófeigur - 15.07.1947, Síða 49
ÓFEIGUR 49 uga sókn kommúnista við að taka af öðrum eignir og atvinuaðstöðu, þrýstir til sameiginlegra átaka, öllum, sem unna frjálsu atvinnulífi, þó að þessum mönnum beri margt á milli um minniháttar málefni. Viðrétting hins íslenzka mannfélags birtist í fyrstu, sem máttug vörn móti fjandsamlegri tangarsókn kommúnista, er beita kreppunni annars vegar, en þjóðnýtingu eftir rúss- neskri fyrirmynd, til hinnar hliðar. Sjálfsbjargarhvöt allra dugandi manna knýr þá, undir þessum skilyrðum, til að taka höndum saman, þótt þeir séu skrásettir í mismunandi flokkum, til að láta ekki Iágsigldustu hreyf- ingu, sem eignast hefur fylgi á Islandi, eyðileggja fram- tíð óborinna kynslóða í landinu. En óháðir borgarar mega ekki láta sér nægja varnar- sigur yfir austrænni kúgun. Næsta stigið er enn erfiðara og engu síður þýðingarmikið. Framsýnir og þjóðhollir menn eiga eftir að skapa nýtt og glæsilegt ríki á Is- landi. Stofnendur hins forna þjóðveldis reistu hér ríki, sem verndaði menningu og manndóm fólksins, án skatta eða fékeyptra hlunninda til handa þegnunum. Hinu sögufræga mannfélagi fornaldarinnar var að langmestu leyti haldið við, með tómstundavinnu. En nú þykir það álitlegastur framavegur að reita sem flestar fjaðrir af ríkissjóði til handa einstaklingum, fyrir sem allra minnsta vinnu. Kommúnistar hafa sett þennan blæ á nútímalífið í landinu, og eru þó fleiri sekir. Ef ekki tekst að beina þjóðarskútunni frá þessum hættuskerjum, hlýtur hún að stranda og það fyrr en varir. Ríkið verður gjaldþrota og verður þá tekið undir ómyndugraeftirlit, líkt og gerð- ist með Nýfundnaland, fyrir nokkrum árum. Öll við- leitni kommúnista hefur, frá því að hreyfing þeirra tók að hafa áhrif hér á landi, stefnt að þessu marki: Gjaldþroti og gereyðingu hins vestræna mannfélags á Islandi. Þeir hafa metið borgaralega stjórnmálamenn eftir því, hve létt var að vef ja úlfhéðni að höfðum þeirra, við þessa upplausnarstarfsemi. Ef hið nýja þjóðveldi á að ná eðlilegum þroska, þarf landsfólkið og ekki síst svokallaðir forystumenn, að gerbreyta um stefnu. Það verður að skapa í hugum almennings löngun til að gera lýðveldið að sterkri og fullkominni byggingu. Menn þurfa að læra að vinna, að spara, að eiga traust heimili, að ala börn upp í foreldra- garði, að taka skynsamlegan þátt í að mynda ánægju-

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.