Ófeigur - 15.07.1947, Síða 55

Ófeigur - 15.07.1947, Síða 55
 ÖFEIGUR 55 Guðmundur bóndi á Hofi hefur í hárri elli uppskorið sæmd, sem hann átti margfaldlega skilið. Leiðtogar Búnaðarfélagsins hafa á Akureyrarfundi sínum sam- þykkt þakkir til Guðmundar fyrir baráttu hans fyrir stéttasamtökum bænda. Var þetta einkennilegur sigur. Þegar leiðtogar Búnaðarfélagsins gerðu þá höfuðsynd, haustið 1944, fyrir mjög þurfandi ráðherraefni Fram- sóknar og Sjálfstæðis, að kalla búnaðarþing saman og láta það falla frá sexmannagrundvellinum og gefa eftir átta milljónir af fé bænda, í von um að fá að launum borgaralega stjórn, reis Guðmundur til mikils andófs gegn þessu athæfi. Kallaði hann saman bændafund á Selfossi og voru þar samþykkt öflug mótmæli gegn þessu löglausa og ábyrgðarlausa athæfi. Leiðtogar f lokk- anna höfðu aldrei ætlað sér annað með þessari veiði- brellu en að létta á ríkissjóði við myndun ríkisstjórnar með kommúnistum, enda varð sú raunin á. Guðmundur á Hofi gafst ekki upp og beitti sér fyrir kröfunni um óháð bændasamtök. Líkaði þeim sem stóðu að gjöfinni stórilla og komu með helztu skörunga sína óboðnir á fund bænda á Selfossi vorið 1945. Var nú sótt fast að Guðmundi en hann varðist vel með sínum liðsafla. Undir morgun, næsta dag, gerði einn af leiðtogum eftir- gjafarinnar sig líklegan til að leggja hendur á Guðmund sem fundarstjóra. Guðmundur og samstarfsmenn hans höfðu sent út fundarboð um allt land og buðu bændum að láta fulltrúa koma á stofnfund sumarið 1945. Greip nú nokkur ótti hina örlátu milljónagefendur og gripu þeir til tveggja bjargráða. Þeir settu af stað allt áróðurslið Búnaðarfélagsins og þeirra flokka, sem stóðu að mill- jónagjöfinni, til að véla bændur, svo að þeir kysu á Laugarvatnsfundinum þá menn, sem vildu engin óháð samtök. Jafnframt var kallað saman búnaðarþing á slætti og samþykkt sú breyting á lögum félagsins, að það mætti hafa sérstaka bændadeild, innan sinna vé- banda og skyldi Bjarni Ásgeirsson stýra henni og hans eftirmenn á veldisstóh búnaðarþings. Meðan stóð á þessu þinghaldi var Gi.ömundur á Hofi kallaður til Reykjavíkur með samliðsmenn sína, líkt og þegar Lúter var boðaður til Worms. Átti að láta Selfossmenn taka aftur allar sínar hættulegu kenningar um óháð sam- tök bænda. Var beitt miklum rosta og frekju við Sel- fossmenn á þessum fundi en þeir létu það ekki á sig

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.