Ófeigur - 15.07.1947, Síða 57

Ófeigur - 15.07.1947, Síða 57
ÓFEIGUR 57 Kristjón Kristjónsson fékk mikinn frama og trúnað við landbúnaðarsýninguna. Sigurjón Guðmundsson, sem hlaut mjög harðan dóm á listanum er nú orðinn trún- aðarmaður Eysteins í viðskiptaráði. Jón Ivarsson, sem var neðarlega á listanum og talinn í varasömu deilainni er nú kominn í landsskattanefnd og varamaður Her- manns í „Stórráðinu“. Ein af ástæðunum til þess að áðurnefndir menn vaxa nú í trúnaði er sú, að til gisti- vina koma fá mannsefni, sem geta unnið vandaverk. Verður þess vegna að horfa til baka og leita til manna, sem fengið hafa æfingu við eitthvað annað en bitlinga og vegtylluveiðar. # # m Þegar Eysteinn hóf útvarpsræðu sína um fátæktina komst hann svo að orði, að ráðherrar myndu skýra málið, því að fjárhagsráð væri undir þeim. Þetta var sneið til Hermanns, til að minna hann á að nú væri hann 1 tölu þegnanna, nærri almúganum. Fyrir sitt leyti unir Hermann sinni vist víst líkt og nýveitt Afríkuljón, sem er komið í þokusúld, innan við járngrindur í dýragarði í London. # # # Þegar ríkisstjórnin kallaði saman fulltrúa stéttanna til að ræða um björgun atvinnulífsins, sendu kommún- istar einn mann á samkomuna til að bera fréttir. Síðan undirbjuggu bolsvikar mótmæla- og æsingafundi úti um land til að hindra að gripið yrði til skynsamlegra úr- ræða, þjóðinni til bjargar. Þessa menn vill Hermann fá til að stjórna landinu með sér. # # # Meðan þjóðstjórn var um málefni Akureyrar og kommúnistar áhrifalausir um bæjarmál, stóð hagur kaupstaðarins með blóma. En vorið 1944 fengu Fram- sóknarmenn á Akureyri ströng fyrimæli frá Hermanni og Eysteini um að sýna bolsevikum samstarfsvilja. Hófst síðan árangursríkt samstarf milli samvinnumanna og bolsevika. Eru nú sýnileg þrjú afkvæmi: Hafnargerð byrjuð norðan á Oddeyri. Kostar 15 milljónir. Hafin í Krossanesi rekstur síldarverksmiðju á bæjarins ábyrgð. Samvinnumenn í bænum urðu þar fyrir nokkrum von- brigðum. Ekki var fyrr gengið frá ákvörðun um að reka verksmiðjuna, á vegum borgaranna, en Steingrímur Aðalsteinsson og bolvíkingar hans hindruðu að gert yrði

x

Ófeigur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ófeigur
https://timarit.is/publication/1352

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.